Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tókust harkalega á um kjaramál í Sprengisandi Forstjóri flugfélagsins Play og forseti ASÍ tókust vægast sagt harkalega á vegna launakjara í Sprengisandi í morgun þegar kjaramál starfsmanna flugfélagsins voru til umræðu. Forstjórinn segir framferði ASÍ óboðlegt og rangt að grunnlaun séu um 260 þúsund. 23.5.2021 13:07
Ósanngjarnt að bera saman launakjör flugfélaganna Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segir ósanngjarnt að bera saman launakjör nýstofnaðs lággjaldaflugfélags við önnur rótgróin flugfélög. Hann segir glærur sem birtar voru í morgun með áformum félagsins um lágan launakostnað eldgamlar og að þær eigi ekkert skylt við það sem félagið sé að gera í dag. Kjarasamningar félagsins séu ekkert til að skammast sín fyrir. 21.5.2021 11:59
Sigurlína nýr stjórnarformaður Solid Clouds Sigurlína Ingvarsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Solid Clouds, framleiðanda fjölspilunartölvuleiksins Starborne. 21.5.2021 10:16
Biobú kaupir meirihluta hlutafjár í ísgerðinni Skúbb Biobú hefur keypt meirihluta hlutafjár í ísgerðinni Skúbb ehf. Seljandi er Jóhann Friðrik Haraldsson, einn af stofnendum félagsins. 21.5.2021 09:35
Lækka leiguna hjá 190 leigutökum um 25 þúsund krónur Bjarg íbúðafélag hyggst lækka leiguna hjá 190 leigutökum sínum um 14 prósent um næstu mánaðamót. Leigan fer þannig úr 180 þúsund krónum í 155 þúsund krónur. 21.5.2021 08:11
Play seldi fjárfestum hugmynd um lægri laun en hjá WOW Flugfélagið Play undirbjó á sínum tíma glærukynningu fyrir mögulega fjárfesta þar sem áform voru kynnt um að lækka launakostnað starfsmanna allverulega frá því sem verið hafði hjá WOW air. 21.5.2021 06:27
Uppbygging hjá KR meðal stærri áfanga í sögu félagsins Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður íþróttafélagsins KR, undirrituðu í hádeginu samning um fyrirhugaða uppbyggingu á KR-svæðinu. Meðal annars á að byggja fjölnota knatthús ásamt því að heildarskipulagi KR-svæðisins á að breyta. 20.5.2021 15:47
Sigríður Hrund nýr formaður FKA Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir og eigandi Vinnupalla, var kosin nýr formaður Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Siguríður Hrund var kosin formaður til tveggja ára og tekur við stöðunni af Huldu Ragnheiði Árnadóttur. 20.5.2021 12:39
Verðlaunuðu greiningarbúnað fyrir höfuðhögg Seifer, greiningarbúnaður fyrir höfuðhögg íþróttafólks hlaut á dögunum Guðfinnuverðlaunin 2021. Búnaðurinn inniheldur hreyfi- og hröðunarnema sem mæla meðal annars höggkraft, hröðun og horntíðni höfuðhöggs. 20.5.2021 11:33
Tryggvi áfram formaður í nýskipuðu Hugverkaráði SI Tryggvi Hjaltason hjá CCP hefur skipaður formaður í nýju Hugverkaráði Samtaka iðnaðarins. 20.5.2021 11:19
Met slegið í fjölda seldra íbúða Í mars var slegið met í fjölda seldra íbúða í einum mánuði þegar 1.300 kaupsamningar voru útgefnir. Hefur meðalsölutími íbúða aldrei verið styttri á höfuðborgarsvæðinu og seldist tæplega þriðjungur eigna þar yfir ásettu verði. 20.5.2021 10:15
16,9 milljarðar í styrki vegna faraldursins Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar með talið einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki. 20.5.2021 09:54
Hóta málsókn og saka ASÍ um „annarlegan áróður“ Nýja flugfélagið Play hefur lýst yfir sárum vonbrigðum með að Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafi í dag hvatt landsmenn til að sniðganga flugfélagið vegna lágra launa sem flugfélagið mun bjóða starfsfólki sínu. Félagið krefst þess að ASÍ dragi fullyrðingar sínar til baka annars verði það að leita réttar síns í málinu. 19.5.2021 20:15
Hvetja landsmenn til að sniðganga flugfélagið Play Alþýðusamband Íslands hvetur landsmenn til að sniðganga hið nýja flugfélag Play þar til það hefur „sýnt að það ætli að vera hluti af íslenskum vinnumarkaði og bjóða starfsfólki sínu kaup og kjör sem gilda hér á landi,“ eins og segir í tilkynningu. 19.5.2021 17:37
Dönsk skip flytja koltvísýring til förgunar á Íslandi Samið hefur verið um að danska skipafélagið Dan-Unity CO2 sjái um flutning á koltvísýringi til förgunar í fyrirhugaðri miðstöð Carbfix í Straumsvík. Siglingarnar eiga að hefjast árið 2025 en stefnt er að því að farga allt að þremur milljónum tonna af koltvísýringi árlega árið 2030. 19.5.2021 16:20
Valeria til Advania Advania hefur ráðið Valeriu Rivina sem nýjan forstöðumann veflausna. Hún hefur tíu ára stjórnunarreynslu í upplýsingatæknigeiranum og hefur leitt umfangsmikil stafræn umbóta- og þróunarverkefni. 19.5.2021 15:40
CCP vann til Webby verðlauna CCP Games vann í gær til hinna virtu Webby netverðlauna fyrir smáleik innan leiksins EVE Online. Nánar tiltekið snúast verðlaunin sem CCP vann um samfélagsþjónustu innan tölvuleikja og heitir verkefnið sem vann Project Discovery. 19.5.2021 12:05
Verðbólga yfir markmiði fram á mitt næsta ár Verðbólguhorfur hafa versnað og verðbólga verður ekki komin niður í markmið Seðlabankans fyrr en um mitt næsta ár samkvæmt spá bankans í dag. Meginvextir voru hækkaðir í dag um 0,25 prósentustig. 19.5.2021 11:54
Íbúðaverð hækkað um tæp 14 prósent síðasta árið Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% milli mars og apríl. Hefur hún nú hækkað um 6,7% síðastliðna þrjá mánuði og um 13,7% síðastliðið ár. 19.5.2021 10:33
Bein útsending: Seðlabankinn gerir grein fyrir hækkun stýrivaxta Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á fundi sem hefst klukkan 9:30 í Seðlabankanum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því eitt prósent. 19.5.2021 09:00
Seðlabankinn hækkar stýrivexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1 prósent. 19.5.2021 08:30
Stjörnutorg Kringlunnar mun færa sig um set Til stendur að ráðast í miklar framkvæmdir á þriðju hæð Kringlunnar sem munu meðal annars skila sér í nýrri mathöll, breyttu Ævintýralandi og svokölluðum búbblublómaskála. Kostnaður er áætlaður um milljarður króna og framkvæmdatíminn um eitt og hált til tvö ár. 19.5.2021 07:39
Árni Huldar til KPMG Law Árni Huldar Sveinbjörnsson hefur hafið störf hjá KPMG Law. Hann starfaði áður sem yfirlögfræðingur Lykils fjármögnunar hf. og nú síðast sem sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils. 18.5.2021 14:03
Spá kröftugum efnahagsbata og að faraldurinn verði kveðinn í kútinn á seinni hluta árs Hagfræðideild Landsbankans segir útlit fyrir að böndum verði komið á heimsfaraldurinn á seinni hluta þessa árs og að landsframleiðsla aukist hérlendis um 4,9% á árinu. Þá er gert ráð fyrir að verðbólga gangi hægt og sígandi niður eftir því sem líður á árið. 18.5.2021 12:56
Ráðin forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins Kristín Inga Jónsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsdeildar Póstsins. Hún hefur starfað hjá Póstinum frá árinu 2019 sem markaðssérfræðingur. 18.5.2021 11:54
Mistök Þjóðskrár hafa ekki áhrif á vísitölu neysluverðs Leiðrétting Þjóðskrár á vísitölu íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur engin áhrif á mælingar Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni en greint var frá því í gær að Þjóðskrá hafi gert mistök við birtingu talnanna þann 20. apríl. 18.5.2021 11:34
Bein útsending: Stafræn framtíð íslenskunnar Í dag fer fram ráðstefna um stafræna framtíð íslenskunnar. Stjórnendur framsækinna fyrirtækja fara yfir notkun máltæknilausna á neytendamarkaði og fjölbreytt verkefni máltækniáætlunar verða kynnt. 18.5.2021 08:01
ÁTVR ætlar að kæra vínkaupmann til lögreglu Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur hafið undirbúning að beiðni um lögbann á vefverslunum með áfengi hér á landi, sem ekki eru á vegum ríkisverslunarinnar. 17.5.2021 11:47
Opna kaffihús og boða mikla uppbyggingu í Reykjadal Nýtt kaffihús opnaði um liðna helgi við minni Reykjadals í Hveragerði og hefur vakið þónokkra athygli. Mikil uppbygging hefur farið fram í Reykjadal að undanförnu. Göngustígar þangað hafa verið lagfærðir og búið er að malbika vegin alveg að gönguleiðinni, og sömuleiðis malbika bílastæði sem áður voru malarlögð. 16.5.2021 21:01
Fyrsta flugið verður til London í lok júní Fyrsta flug flugfélagsins Play verður til Stansted-flugvallar í london í lok júní, að sögn forstjóra félagsins. 16.5.2021 12:33
Leyfi í höfn hjá Play og fyrsta flugvélin á leið til landsins Flugfélagið Play hefur fengið flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu. Fyrsta flugvélin var afhent í Houston Texas í Bandaríkjunum. Náið samstarf við stærsta flugvélaleigusala heims er ætlað að tryggja hagstæð kjör á þremur systurvélum. 16.5.2021 11:42
ÁTVR aldrei grætt meira en neftóbakssala hrynur alveg Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur aldrei velt meiru en árið 2020, sem var metár í sögu verslunarinnar. Veltan var yfir 50 milljörðum. 15.5.2021 09:44
Erfið ákvörðun að hætta hjá Icelandair Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármála hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Eva Sóley hóf störf í byrjun árs 2019 og hefur að sögn félagsins verið í lykilhlutverki við að koma því í gegnum fordæmalausar rekstraraðstæður. 14.5.2021 19:01
Stytta sér leið með kaupunum á Lumina Origo hefur keypt heilbrigðislausnina Lumina af Lumina Medical Solutions. Hyggst fyrirtækið nýta lausnina í áframhaldandi þróun á notendaviðmóti sjúkraskrárkerfisins Sögu sem er nýtt af meginhluta heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi. 14.5.2021 18:44
Jóhanna Margrét til Skeljungs Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Skeljungi. 14.5.2021 15:36
Björn Ingi dæmdur til að greiða áttatíu milljónir króna Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson, sem í seinni tíð hefur verið kenndur við Viljann, hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi Pressunnar ehf. áttatíu milljónir króna. 14.5.2021 14:12
Björn Þorfinnsson nýr ritstjóri DV Björn Þorfinnsson hefur verið ráðinn ritstjóri DV. Hann tekur við starfinu af Tobbu Marinós sem lét nýlega af störfum. 14.5.2021 13:23
Landsbankinn sér annað en Íslandsbankinn í kristalskúlunni Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslandsi haldi meginvöxtum bankans óbreyttum í 0,75% við næstu vaxtaákvörðun þann 19. maí. Þó telur deildin að óðum styttist í vaxtahækkun. 14.5.2021 12:54
Bein útsending: Þarf ég hagfræðipróf til að eiga heimili? Viðreisn mun í dag streyma fundi þar sem rætt verður um kostnað og óvissuna við að eignast og reka heimili. Yfirskrift fundarins er: Þarf ég hagfræðipróf til að eiga heimili? 14.5.2021 11:31
Reikna með hækkun stýrivaxta í næstu viku Greining Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur við vaxtaákvörðunina þann 19. maí. Þetta kemur fram í spá Greiningar Íslandsbanka. 14.5.2021 09:52
Tryggingatrampólínið fékk að fjúka Akandi vegfarendur misstu á dögunum mikilvæga vörðu á leiðinni út úr Reykjavík eftir Vesturlandsvegi, þegar trampólín tryggingafélagsins VÍS á húsþaki við jaðar Grafarholts var fjarlægt með húð og hári. 13.5.2021 10:00
Hopp vill leigja út bíla Hopp endurnýjaði allan flota sinn á höfuðborgarsvæðinu á dögunum með nýjustu kynslóð af rafskútum og undirstrikaði þar með yfirburði sína á íslenska rafskútumarkaðnum. Flotinn stækkaði um leið úr 300 í 1.100 hjól. 13.5.2021 08:01
Gríðarleg hækkun álverðs bætir hag Landsvirkjunar Gríðarlegar verðhækkanir á málmum, bæði áli og kísli, stórbæta afkomu Landsvirkjunar en álverð hefur hækkað um áttatíu prósent á einu ári. Raforkukaupendur hafa samtímis aukið notkun sína og stefnir í að raforkukerfið verði fullnýtt. 12.5.2021 23:59
Hörður tekur við starfi yfirmanns markaðs- og samskiptasviðs Sýnar Hörður Harðarson hefur verið ráðinn nýr yfirmaður markaðs- og samskiptasviðs Sýnar. 12.5.2021 14:56
Ráðin lögfræðingur hjá Nasdaq á Íslandi Adela Lubina hefur verið ráðin sem lögfræðingur á lögfræðisviði hjá Nasdaq kauphöllinni á Íslandi og Nasdaq verðbréfamiðstöð. 12.5.2021 14:19