Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. 20.7.2021 23:03
Krónan vill rúman milljarð króna í bætur frá ríkinu Krónan fer fram á ríflega milljarð króna í bætur frá íslenska ríkinu út af meintum hagnaðarmissi á árunum 2015 til 2018 af völdum innflutningshamla sem brutu gegn EES-samningnum. Málið á sér langan aðdraganda og varðar innflutning á fersku kjöti, eggjum og mjólkurvörum. 20.7.2021 16:37
Matthías frá Eimskip til Borgarplasts Matthías Matthíasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Borgarplasts og tekur við af Guðbrandi Sigurðssyni. Á árunum 2009 til 2020 starfaði Matthías sem framkvæmdastjóri flutningasviðs hjá Eimskip. 20.7.2021 13:38
Norðurál ræðst í fimmtán milljarða framkvæmdir Norðurál og Landsvirkjun hafa gert með sér samkomulag um þriggja ára framlengingu á raforkusölusamningi og mun hann taka gildi þann 1. janúar 2023. Í framhaldinu mun Norðurál fara í fimmtán milljarða króna framkvæmdir: byggingu steypuskála við álverið á Grundartanga. 20.7.2021 07:40
Segir ásakanir ÁTVR vera rógburð og vill afsökunarbeiðni Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisvefverslunarinnar Santewines, segir að allar ásakanir ÁTVR um skattsvik og undanskot séu rógburður. Hann fer fram á að kærurnar verði dregnar til baka og ÁTVR biðjist afsökunar í helstu fjölmiðlum. 19.7.2021 12:52
Heildarlaun lækkuðu í sumum starfsgreinum Grunnlaun hækkuðu að jafnaði um 6,6% milli áranna 2019 og 2020. Á sama tíma hækkuðu heildarlaun fullvinnandi um 5,3% og því ljóst að stytting vinnutíma hefur haft áhrif á þróunina. 19.7.2021 10:32
„Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert. 16.7.2021 14:36
Taka yfir annað stærsta eggjabú landsins Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Líflands ehf. á helmingshlut í Nesbúeggjum ehf. Eftir kaupin er fyrirtækið alfarið í eigu Líflands sem átti áður 50 prósent hlutafjár í eggjabúinu. 16.7.2021 13:50
Frá Ölmu til Eimskips María Björk Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips. Hún kemur til starfa frá Ölmu íbúðafélagi þar sem hún hafði verið framkvæmdastjóri síðastliðin sjö ár. 16.7.2021 09:30
200 milljóna króna gjaldþrot Ostabúðarinnar á Skólavörðustíg Skiptum í þrotabúi Þriggja grænna osta, sem rak veitingastaðinn Ostabúðina við Skólavörðustíg 8 frá 2015-2019, er lokið. Rúmlega sjö milljónir króna fengust greiddar upp í forgangskröfur. 16.7.2021 09:08
Elmar þarf ekki að snúa aftur í gamla starfið Elmar Ásbjörnsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra bankasviðs Seðlabanka Íslands en staðan var auglýst laus til umsóknar í lok júní. 16.7.2021 09:03
Flateyri komin í tísku hjá Íslendingum „Mig langaði að prófa að fara á verbúð,“ segir Sunna Reynisdóttir aðspurð hvernig áratuga ástarsamband þeirra Magnúsar Eggertssonar er til komið. Hjónin reka saman Bryggjukaffi á Flateyri við Önundarfjörð þar sem gestagangur í sumar hefur farið fram úr björtustu vonum heimafólks. 16.7.2021 08:15
ÁTVR kærir Arnar til lögreglu og skattayfirvalda Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur kært Arnar Sigurðsson, frönsku netverslunina Santewines SAS og innflutningsfyrirtækið Sante ehf. til lögreglu og Skattsins. Fyrirtækið er sakað um að standa ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti. 16.7.2021 07:45
Vatnsforði Þórisvatns aldrei mælst minni á miðju sumri Vatnshæð Þórisvatns hefur aldrei mælst lægri um þetta leyti árs frá því farið var að nýta vatnið sem helsta vatnsforðabúr þjóðarinnar og er yfirborð þess núna sjö metrum lægra en í meðalári. Talsmaður Landsvirkjunar segir þó enga ástæðu til að óttast raforkuskort í vetur. 15.7.2021 22:22
Margfalt fleiri hlutabréfaeigendur og gengi rýkur upp Hlutabréfaeigendur eru fjórfalt fleiri en þeir voru í lok árs 2019, en þeir hafa farið úr átta þúsund í 32 þúsund. Þá hefur gengið hlutabréfa rokið upp á síðustu tólf mánuðum og aðeins eitt félag á markaði sýnir neikvæða ávöxtun. Almenningur sýnir stöðugt meiri áhuga á hlutabréfaviðskiptum. 15.7.2021 19:00
Bréf í Solid Clouds halda áfram að lækka Gengi hlutabréfa í íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds lækkaði um 14,9 prósent í dag. Frá skráningu félagsins á markað á mánudaginn hafa bréf í því lækkað um 36 prósent. 15.7.2021 18:42
Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. 14.7.2021 22:44
Annar ársfjórðungur Arion umfram spár Samkvæmt drögum að uppgjöri Arion banka fyrir annan ársfjórðung 2021 er afkoma bankans umtalsvert umfram spár greiningaraðila á markaði. 14.7.2021 14:30
Dagný ráðin framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co. Dagný Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co., Eldvarnamiðstöðvarinnar og Rafborgar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi Gíslasyni & co. 14.7.2021 11:02
Icelandair skoðar vetnis- og rafknúið innanlandsflug Icelandair Group hefur skrifað undir tvær viljayfirlýsingar um að kanna möguleika á orkuskiptum í innanlandsflugi félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 14.7.2021 10:17
Hluthöfum fækkar um fjögur þúsund Hluthöfum í Íslandsbanka hefur fækkað um fjögur þúsund frá því bankinn var skráður á hlutabréfamarkað í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í Markaði Fréttablaðsins í dag en fækkunin nemur liðlega sautján prósentum. 14.7.2021 08:08
„Algjör sprenging“ í einkafluginu Sprenging hefur orðið í komum einkaflugvéla á Reykjavíkurflugvöll frá mánaðamótum, að sögn rekstrarstjóra á vellinum. Reiknað er með meiri umferð nú í júlímánuði en í júlí 2019, sem var einn besti mánuður fyrirtækisins frá upphafi. 14.7.2021 07:00
Bílaleigubílar þrefaldast í verði: „Þetta er bara lögmálið um framboð og eftirspurn“ Dæmi eru um verð á bílaleigubílum hafi meira en þrefaldast frá því í desember en fjölmargir ferðamenn hafa gripið í tómt undanfarna daga. Mikil umframeftirspurn er eftir bílaleigubílum og er útlit fyrir að bílaleigur verði nærri uppseldar fram í ágúst. 14.7.2021 06:00
Verktakar börðust hart um að fá að breikka Lögbergsbrekku Vegagerðinni bárust fjögur tilboð í tvöföldun Suðurlandsvegar á 3,3 kílómetra kafla um Lögbergsbrekku í útjaðri Reykjavíkur en tilboð voru opnuð í dag. Þrjú þeirra reyndust undir 937 milljóna króna kostnaðaráætlun. Það lægsta kom frá Jarðvali sf. í Kópavogi, upp á 791 milljón króna, sem var 84,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. 13.7.2021 21:31
Óvænt lausn fannst við veggjakroti á Melabúðinni Starfsmönnum Melabúðarinnar var ekki skemmt þegar þeir mættu til vinnu í morgun og við blasti útkrotuð framhlið verslunarinnar. 13.7.2021 18:57
Nýr Landspítali 16,3 milljörðum dýrari Ráðgert er að kostnaður við nýbyggingar Landspítalans á Hringbraut muni nema 79,1 milljarði króna þegar allt er talið. Það er 16,3 milljörðum meira en kostnaðarmat gerði ráð fyrir árið 2017, ef miðað er við verðlag síðasta desembermánaðar. 13.7.2021 06:51
Hvetur fólk til að fórna bílnum sínum í þágu ferðaþjónustunnar Örtröð hefur myndast á Keflavíkurflugvelli síðustu daga og greinilegt að aukið líf er nú að færast í ferðaþjónustuna. Nú er svo komið að bílaleigur eiga í stökustu vandræðum með að anna eftirspurn en að sögn Samtaka ferðaþjónustunnar eru bílaleigubílar nánast uppseldir á Íslandi út ágústmánuð. 13.7.2021 06:00
Íslandsbanki græddi 1,8 milljarða á mánuði Íslandsbanki hagnaðist að meðaltali um 1,8 milljarða á mánuði á öðrum ársfjórðungi 2021. Það er umfram væntingar. 12.7.2021 18:29
Sjöfalt fleiri brottfarir erlendra farþega Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 42.600 í nýliðnum júnímánuði eða sjö sinnum fleiri en í júní 2020, þegar brottfarir voru um sex þúsund. 12.7.2021 15:45
Skúli hefði viljað sjá lægra verð hjá Play Skúli Mogensen, stofnandi og fyrrverandi forstjóri WOW air, segist hafa viljað sjá flugfélagið Play bjóða upp á lægri fargjöld með það fyrir augum að standast aukna samkeppni úr öllum áttum. Skúli reiknar með því að framboðið í flugi til og frá Íslandi nái nýjum hæðum sumarið 2022. 12.7.2021 15:16
Vonar að stjórnvöld endurtaki ekki leikinn Styrkir sem stjórnvöld veittu háskólum til að bjóða upp á sumarnámskeið á síðasta ári fólu ekki í sér ólögmæta ríkisaðstoð að sögn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Félag atvinnurekenda (FA) er ósammála niðurstöðunni og segir hana vera vonbrigði. 12.7.2021 13:34
Sigurlína hringdi inn fyrstu viðskipti Solid Clouds Í dag hófust viðskipti með hlutabréf tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds í Kauphöllinni í morgun. Sigurlína Ingvarsdóttir, stjórnarformaður Solid Clouds, hringdi inn fyrstu viðskiptin. 12.7.2021 13:08
Frá Arion banka til Sparisjóðs Suður-Þingeyinga Eyjólfur Vilberg Gunnarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Eyjólfur er með viðskiptafræðimenntun frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Einnig er Eyjólfur að taka löggildingu fasteigna- og skipasala, með skipstjórnarréttindi, vélavarðaréttindi og knattspyrnuþjálfararéttindi. 12.7.2021 09:53
Verð á hlutabréfum Play rauk upp í morgun Hlutabréfaverð flugfélagsins Play hefur hækkað mikið í fyrstu viðskiptum eftir að félagið var skráð í Kauphöllina í morgun. Þegar best lét í morgun höfðu bréfin hækkað um 41 prósent í verði, miðað við útboðsgengið 18, sem var gengi almennra fjárfesta. 9.7.2021 11:19
Aldrei hafa jafn margar íbúðir selst yfir ásettu verði frá 2013 Enn er mikil eftirspurn á fasteignamarkaði. Sölutími íbúða heldur áfram að styttast, fasteignaverð hefur hækkað um allt land, auglýstar eignir hafa ekki verið færri í fjögur ár og hefur leiguverð hækkað á höfuðborgarsvæðinu hækkað í fyrsta skipti í níu mánuði. 9.7.2021 09:16
Telja sig hlunnfarna um milljónir í laun frá Pizzunni Hópur starfsmanna pítsukeðjunnar Pizzunnar telur sig hlunnfarinn um laun frá fyrirtækinu. Stéttarfélag starfsmannanna er með á milli sex og sjö milljóna króna í innheimtu frá fyrirtækinu vegna vangreiddra launa, einkum þar sem yfirvinnutímar hafa ekki verið greiddir sem slíkir. 9.7.2021 07:00
Íbúfen, Panodil og Paratabs til sölu í Staðarskála N1 hefur hafið sölu lausasölulyfja í Staðarskála í Hrútafirði. Hingað til hafa vegfarendur um þjóðveg 1 þurft að fara tugi kílómetra til að sækja þessa þjónustu. 8.7.2021 13:20
Þota frá Play lenti í fyrsta sinn á Reykjavíkurflugvelli Forráðamenn flugfélagins Play og Kauphallar Íslands fögnuðu því í tólf þúsund feta hæð yfir hálendi Íslands í dag að fyrirtækið er að fara á hlutabréfamarkað. Hin hefðbundna bjölluhringing var tekin upp til að sýna á föstudag þegar markaðsviðskipti hefjast með bréf félagsins. 7.7.2021 22:55
Fyrirtæki sem greiddi út hundruð milljóna braut samning við Reiknistofu lífeyrissjóða Hugbúnaðarfyrirtækið Init braut samninga við Reiknistofu lífeyrissjóða (RL) með því að semja við undirverktaka án heimildar. Þetta er niðurstaða úttektar ráðgjafafyrirtækisins Ernst & Young (EY) á samningi aðilanna um rekstur tölvukerfisins Jóakims. 7.7.2021 20:54
Landsbankinn hækkar vexti íbúðalána Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti nýrra óverðtryggðra íbúðalána með föstum vöxtum um 0,10 til 0,15 prósentustig. 7.7.2021 17:28
Fjórir verktakar sóttu um að brúa Hornafjörð með einkafjármögnun Fjórir aðilar skiluðu inn umsókn til Vegagerðarinnar um þátttöku í innkaupaferli vegna nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót en frestur rann út í gær. Þetta er fyrsta útboðið frá því sérstök lög voru samþykkt í fyrra sem heimila ríkinu að semja við einkaaðila um fjármögnun samgönguframkvæmda. 7.7.2021 13:45
Gjaldþrot Skelfiskmarkaðarins nam 295 milljónum Skiptum er lokið í þrotabúi veitingastaðarins Skelfiskmarkaðarins sem rekinn var við Klapparstíg. Lýstar kröfur í þrotabúið námu 295 milljónum og fengust tæplega fjórar milljónir greiddar. 7.7.2021 13:31
Herra Hnetusmjör kominn í nikotínpúðabransann Rapparinn Herra Hnetusmjör, Árni Páll Árnason, hefur komið á laggirnar eigin nikótínpúðabúð á Dalvegi í Kópavogi, sem opnar kl. 14 í dag. 7.7.2021 10:44
Arctica Finance samdi við Seðlabankann og greiðir 700 þúsund í sekt Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands og Arctica Finance hf. gerðu með sér samkomulag þann 1. júní síðastliðinn um að ljúka deilum sínum með sátt. Arctica Finance mun greiða 700 þúsund krónur vegna brota félagsins í verðbréfaviðskiptum. 7.7.2021 10:27
Hagar úthluta kauprétti að einu prósenti hlutafjár í félaginu Í tilkynningu frá Högum hf. í dag kemur fram að á fundi stjórnar félagsins þann 25. júní hafi verið ákveðið að veita tilteknum lykilstarfsmönnum félagsins kauprétti að allt að 11.806.246 hlutum í félaginu, eða sem samsvarar einu prósenti af hlutafé Haga hf. 6.7.2021 23:10