Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðinn sjóðstjóri Kríu Sæmundur K. Finnbogason hefur verið ráðinn til Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Hann mun starfa sem sjóðstjóri Kríu, sem er nýr sprota- og nýsköpunarsjóður sem hefur það að markmiði að stuðla að uppbyggingu fjármögnunarumhverfis sprota-, tækni-, og nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi. 6.9.2021 13:37
Breskur sjóður kaupir gagnaverið Verne Global fyrir 40 milljarða Breski sjóðurinn Digital 9 Infrastructure hefur fest kaup á gagnaverinu Verne Global fyrir 231 milljón sterlingspunda eða rúma 40 milljarða króna. 6.9.2021 11:32
Enn grímuskylda í Hagkaup vegna Tax free-daga Athygli hefur vakið að grímuskylda er enn í verslunum Hagkaups en ekki í systurversluninni Bónus. 6.9.2021 11:03
Tvær hópuppsagnir í ágúst Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í ágúst þar sem 65 starfsmönnum var sagt upp störfum. 6.9.2021 10:34
Netárás skýri truflanir á þjónustu SaltPay Fjármálafyrirtækið SaltPay segir að síðdegis í dag hafi verið gerð tölvuárás á fyrirtækið sem varð til þess að talsverðar truflanir hafa orðið á þjónustufyrirtækisins. Þetta segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 3.9.2021 22:46
Ingvar hættur hjá Orkuveitunni Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitu Reykjavíkur til síðustu tíu ára, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. 3.9.2021 16:17
Telur galið að stóru fjölmiðlarnir fái ríkisstyrki Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Vodafone og Stöð 2 segir að sér finnist það galið að fyrirtæki á borð við Sýn og Árvakur, sem reki stóra fjölmiðla, njóti sérstaks ríkisstuðnings. Taka þurfi á fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði og erlendra aðila sem starfi samkvæmt öðrum leikreglum en innlend fyrirtæki á auglýsingamarkaði. 3.9.2021 15:57
Ráðin sérfræðingar hjá Expectus Giovanna Steinvör Cuda, Hafdís Mist Bergsteinsdóttir og Ottó Rafn Halldórsson hafa verið ráðin sérfræðingar hjá ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækinu Expectus. 3.9.2021 14:26
Magnús reyndist sannspár og áskriftin að Viaplay hækkar um 69 prósent Viaplay hefur hækkað verðið á heildarpakka sínum úr 1.599 krónum í 2.699 krónur og nemur hækkunin 69 prósentum. Í tilkynningu Viaplay til viðskiptavina sinna kemur fram að aukið framboð á efni þýði að verð á áskrift komi til með að hækka. Viaplay býður einnig upp á ódýrari áskriftarleið sem inniheldur ekki íþróttaefni. 3.9.2021 08:00
Arion hækkar vexti eftir ákvörðun Seðlabankans Inn- og útlánavextir hjá Arionbanka hækka í dag eftir að Seðlabankinn hækkaði nýlega stýrivexti. Bankinn er annar stóru bankanna sem hækkar vexti í kjölfar stýrivaxtahækkunarinnar en Landsbankinn reið á vaðið í fyrradag. 3.9.2021 07:41
FÍ og Heimsferðir leggja fram nýjar tillögur til að greiða fyrir samruna Ferðaskrifstofa Íslands hefur afturkallað samrunatilkynningu sína er varðar fyrirhuguð kaup á Heimsferðum. Samkeppniseftirlitið hefur haft mögulegan samruna til rannsóknar en lætur nú málinu lokið. 2.9.2021 12:09
Selja hlut sinn í P/F Magn fyrir tíu milljarða króna Stjórn Skeljungs tekið ákvörðun um að hefja einkaviðræður við Sp/f Orkufelagið um sölu á öllu hlutafé í P/F Magn, dótturfélagi Skeljungs á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs Sp/f Orkufelagið. 2.9.2021 11:32
N1, Olís, Sky Lagoon og KFC vinsæl meðal handhafa ferðagjafarinnar Alls hafa 128.892 Íslendingar sótt svokallaða ferðagjöf en 85.079 hafa verið notaðar og 70.778 fullnýttar. Samkvæmt mælaborði ferðaþjónustunnar nemur upphæð notaðra gjafa 411 milljónum króna. 2.9.2021 07:01
Tap Sýnar tvöfaldaðist á öðrum ársfjórðungi Sýn tapaði 117 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 60 milljónir á sama tímabili í fyrra. Ef horft er til fyrri helmings 2021 dregst tap saman milli ára og fer úr 410 milljónum í 348 milljónir. 1.9.2021 17:52
Pétur Jakob Pétursson ráðinn til HPP, prótínverksmiðju Héðins Pétur Jakob Pétursson hefur verið ráðinn markaðs- og sölustjóri hjá HPP, en HPP er háþróuð prótínverksmiðja sem hönnuð var frá grunni og smíðuð hjá Héðni. Með HPP geta sjávarútvegsfyrirtæki fullnýtt aflann hundrað prósent með framleiðslu á lýsi og fiskmjöli, jafnt á landi sem um borð í skipum. 1.9.2021 12:10
Karl Eskil ráðinn til að stýra heimasíðu og miðlum Samherja Karl Eskil Pálsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samherja og mun hann miðla fréttum á heimasíðu og samfélagsmiðlum félagsins, auk þess sem hann mun sinna innri vef Samherja þar sem upplýsingum og fræðsluefni er komið til starfsfólks. 1.9.2021 11:39
Ársreikningum skilað fyrr og betur Alls hafði 16.290 ársreikningum verið skilað til ársreikningaskrár fyrir reikningsárið 2020 á fimmtudaginn í síðustu viku. Á sama tíma á síðasta ári hafði 15.504 ársreikningum skilað til ársreikningaskrár og jafngildir þetta því fjölgun á skiluðum ársreikningum um fimm prósent milli ára. 1.9.2021 11:34
Grímuskyldan afnumin í Bónus Frá og með deginum í dag verður ekki grímuskylda í verslunum Bónus. Framkvæmdastjóri Bónus segist finna fyrir mikilli grímuþreytu meðal almennings. 1.9.2021 11:28
Aríel tekur við formennsku í Sjómannadagsráði Aríel Pétursson, varaformaður Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins frá síðasta aðalfundi sem fram fór í vor, tók í dag við formennsku í ráðinu af Hálfdani Henrýssyni. Hálfdán hefur starfað með Sjómannadagsráði óslitið í 34 ár. 1.9.2021 11:08
Einbeita sér að áfangastöðum þar sem eftirspurn er sterk Icelandair mun fljúga til 25 áfangastaða í vetraráætlun flugfélagsins sem nær frá 1. október til 31. mars. Félagið gerir hlé á flugi áfangastaða á borð við Helsinki og Glasgow þar sem eftirspurn hefur ekki náð sér á strik. 1.9.2021 08:55
Bein útsending: Ársfjórðungsuppgjör Play Play mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. 1.9.2021 08:02
Krónan afnemur grímuskyldu Krónan mun afnema grímuskyldu í verslunum sínum á morgun, 1. september. Telja forsvarsmenn keðjunnar að viðskiptavinum og starfsfólki sé nú treystandi til að meta sjálft hvort þörf sé á grímu. 31.8.2021 19:49
Sjóðsstaða sterkari en áætlað var þrátt fyrir fjórðu bylgjuna Handbært fé frá rekstri flugfélagsins Play er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir eftir fyrri árshelming. Þá er sjóðsstaða sterkari og eftirspurn eftir flugi sögð vaxandi. 31.8.2021 19:18
Landsbankinn ríður á vaðið og hækkar vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,20 prósentustig. Tæp vika er liðin frá stýrivaxtahækkun Seðlabankans og er Landsbankinn fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna vaxtabreytingar í kjölfarið. 31.8.2021 17:42
Frosti nýr framkvæmdastjóri Olís Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. og mun hefja störf föstudaginn 3. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum. 31.8.2021 16:33
Nýjasta leik CCP tekið vel í Kína Á þremur vikum hafa þrjár milljónir manna spilað nýjasta leik CCP í Kína. Fyrirtækið segir viðtökurnar við símaleiknum EVE Echoes frábærar. 31.8.2021 16:05
Ragnheiður Erlingsdóttir nýr framkvæmdastjóri Zik Zak Ragnheiður Erlingsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Zik Zak. Hún tekur við starfinu af Skúla Malmquist, sem var ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins í júlí. 31.8.2021 15:47
Ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga Gunnar Örn Petersen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Hann tekur við starfinu af Elíasi Blöndal Guðjónssyni. 31.8.2021 10:58
Makrílafli innan lögsögu Íslands dregist verulega saman í sumar Makrílstofninn í Norðaustur-Atlantshafi mælist nærri sextíu prósentum minni en í fyrra og hefur ekki mælst minni í áratug. Makrílafli innan lögsögu Íslands hefur einnig snarminnkað í sumar og hafa útgerðir þurft að sækja megnið af makrílnum alla leið í Smuguna. 30.8.2021 20:58
Samningar lausir og framhaldið velti á umbótum hjá KSÍ Icelandair fundaði með forsvarsfólki Knattspyrnusambands Íslands í dag um stöðu mála innan sambandsins. Samningar milli Icelandair og KSÍ eru nú lausir en Icelandair segir að sambandið verði að sýna fram á áætlun um umbætur áður en ákvörðun verður tekin um áframhaldandi samstarf. 30.8.2021 17:32
Stuðningsaðili óskar eftir samtali við KSÍ vegna frétta síðustu daga Coca-Cola á Íslandi, CCEP, hefur lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu Knattspyrnusambands Íslands í íslensku samfélagi í kjölfar frétta síðustu daga. Hefur félagið í bréfi óskað eftir samtali við fulltrúa KSÍ um málið. 30.8.2021 13:54
Ráðinn viðskiptaþróunarstjóri hjá Datera Datera hefur ráðið til sín Hjalta Má Einarsson sem viðskiptaþróunarstjóra og hefur hann þegar hafið störf. 30.8.2021 11:43
Kafaði ofan í hvað einkenni ferðir Íslendinga til Kanarí „Það er alveg skýrt að fyrir Íslendinga hefur Kanarí fyrst og fremst aðdráttarafl vegna sólarinnar og strandanna. Það er miklu minni áhugi á menningartengdri ferðaþjónustu og söfnin, heldur en ég hafði fyrirfram gert ráð fyrir.“ 30.8.2021 09:02
Meðallaun hækkað um 204 prósent frá árinu 2000 Meðallaun á Íslandi hafa hækkað um 204% í íslenskum krónum á árunum 2000 til 2020 samkvæmt tölum OECD. Það er mun meiri hækkun en í nálægum löndum en næsta ríki í röðinni er Noregur með 114% hækkun í norskum krónum. 27.8.2021 15:00
Stjórnendur Kviku greiddu 70 prósent lægri fjárhæðir fyrir hlutabréfin Sex æðstu stjórnendur Kviku banka seldu hlutabréf í bankanum fyrir hundruð milljóna króna á gengi dagsins í gær. Á sama tíma nýttu stjórnendur sér áskriftaréttindi og keyptu fyrir um hundrað og fimmtíu milljónir króna í bankanum. Almennir kaupendur greiddu þannig um þrisvar sinnum meira fyrir hlutabréfin í bankanum í gær en stjórnendurnir. 27.8.2021 15:00
Origo kaupir í verslun á Akureyri til að mæta eftirspurn eftir Apple-vörum Origo hefur keypt 70% eignarhlut í Eldhafi sem er innflutningsaðili á Apple-vörum og rekur samnefnda verslun á Akureyri. Er markmiðið með kaupunum að auka breiddina í vöruúrvali Origo. 27.8.2021 14:16
Eðvald fer fyrir nýrri deild Kviku Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn forstöðumaður hagdeildar á fjármálasviði Kviku banka en deildin er ný á fjármálasviði bankans. 27.8.2021 13:27
Matvælastofnun varar við neyslu á þremur vörum frá Lýsi Matvælastofnun varar við neyslu þriggja fæðubótarefna frá Lýsi sem innihalda ólöglega varnarefnið etýlen oxíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni en Lýsi hefur innkallað allar framleiðslulotur af Sportþrennu, Lýsi Omega3 kalk/D-vítamín og Omega3 Calcium/Vitamin D. 27.8.2021 13:01
Hörður og Ólöf leiða nýjan viðskiptamiðil á Vísi Nýr miðill sem sérhæfir sig einkum í fréttum um íslenskt viðskiptalíf og efnahagsmál hefur göngu sína á Vísi á næstunni. Fyrir miðlinum fara þau Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir en auk þeirra kemur til starfa viðskiptablaðamaðurinn Þorsteinn Friðrik Halldórsson. Um verður að ræða fréttamiðil í áskrift. 27.8.2021 11:02
Skiptir máli að fá ferðamenn einnig um Egilsstaðaflugvöll Austfirðingar kalla eftir því að Egilsstaðaflugvöllur verði þróaður sem millilandaflugvöllur og þannig opnaðar fleiri gáttir fyrir ferðamenn inn í landið. 27.8.2021 10:34
Forstjóri Kviku meðal þeirra sem seldu bréf fyrir tugi milljóna Nokkrir af æðstu stjórnendum Kviku seldu bréf fyrir tugi milljóna króna í dag. Marínó Örn Tryggvason forstjóri keypti 2,5 milljónir hluta á genginu 7,16 krónur á hlutinn en seldi á sama tíma fjórar milljónir hluta á 23,5 krónur á hlutinn. Hann kom út í 70 milljónum í plús með viðskiptum dagsins. 26.8.2021 20:01
Stofnandi Creditinfo ráðinn forstjóri SaltPay Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, hefur verið ráðinn nýr forstjóri greiðslumiðlunarfyrirtækisins SaltPay. Áður sat Reynir í stjórn fyrirtækisins. 26.8.2021 18:27
Tjörvi hættir eftir nítján ár hjá Bændasamtökunum Tjörvi Bjarnason, sviðstjóri útgáfu- og kynningarsviðs Bændasamtakanna, hefur sagt upp störfum eftir nítján ár hjá samtökunum. Hann hefur stýrt rekstri Bændablaðsins í fjölda ára og unnið sem almannatengill fyrir bændur svo fátt eitt sé nefnt. 26.8.2021 18:26
Jóhann Óskar ráðinn yfirflugstjóri PLAY Jóhann Óskar Borgþórsson hefur verið ráðinn yfirflugstjóri hjá flugfélaginu PLAY. Jóhann hefur komið víða við í fluggeiranum en hann hefur starfað hjá fjórum öðrum flugfélögum ásamt því að hafa setið í stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna. 26.8.2021 17:42
Stefna borginni og vilja að bíleigendur fái að nota stöðvarnar Orka náttúrunnar (ON) hefur stefnt Ísorku og Reykjavíkurborg til að freista þess að fá niðurstöðu kærunefndar útboðsmála fellda úr gildi. Vonast fyrirtækið til að geta opnað 156 götuhleðslur fyrir rafbíla á ný. 26.8.2021 15:44