Að minnsta kosti eins til tveggja milljarða tjón á Seyðisfirði
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum þann 5. janúar að greiða tvo þriðju af kostnaði við hreinsunarstarf á Seyðisfirði vegna hamfaranna í desember 2020. Forsætisráðherra segir að heildartjón hlaupi á einum til tveimur milljörðum hið minnsta.