Blaðamannafundur Svandísar í heild
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra boðaði til blaðamannafundar klukkan 10:30 í dag. Þar kynnti hún nýtt lagafrumvarp um málefni Grindavíkur. Blaðamannafundurinn fór fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu strax að loknum ríkisstjórnarfundi. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar, var einnig viðstödd fundinn.