Hausar live í Lava Tunnel
Plötusnúðurinn Untitled úr Drum & bass hópnum Hausar spilar þar danstónlist í Raufarhólshelli, eða Lava Tunnel. Útsendingin er á vegum íslenska viðburðafyrirtækisins Volume sem sérhæfir sig í útsendingum þar sem plötusnúðar þeyta skífum á framandi stöðum.