Verkfall í tveimur öðrum skólum
Verkfallsaðgerðir voru í dag boðaðar í tveimur skólum til viðbótar; í Heiðarskóla í Reykjanesbæ og Árbæjarskóla í Reykjavík. Verkföll eru því yfirvofandi í alls þrettán skólum. Fjórum leikskólum, sex grunnskólum, tveimur menntaskólum og einum tónlistarskóla.