Fimmtán ára drengur í haldi vegna hnífaárásar í Þýskalandi

Fimmtán ára drengur er í haldi þýsku lögreglunnar í tengslum við hnífaárás í borginni Solingen í gærkvöld þar sem þrír voru drepnir og minnst átta slösuðust. Lögregla telur þó ekki að um árásarmanninn sé að ræða heldur hafi drengurinn vitað af árásinni. Umfangsmikil leit hefur staðið yfir að árásarmanninum og náði hún út fyrir borgarmörkin.

2
01:09

Vinsælt í flokknum Fréttir