Furðar sig á andstöðu við gæludýr á kaffihúsum
Um helmingur svarenda í nýrri könnun er andvígur því að fólk megi taka með sér hunda eða ketti á veitingastaði. Eigandi Kattakaffihússins í miðbæ Reykjavíkur furðar sig á andstöðu landsmanna við gæludýr á kaffihúsum og segir Íslendinga alveg sér á báti miðað við nágrannalöndin.