Segir stöðu kórónuveirufaraldursins gjörbreytta
Sóttvarnalæknir segir stöðu kórónuveirufaraldursins gjörbreytta vegna ómíkron-afbrigðisins, sem hann segir í raun nýja veiru. Faraldurinn sé nú í veldisvexti og sjö daga nýgengi aldrei verið hærra. Hann hyggst afhenda ráðherra minnisblað um nýjar innanlandsaðgerðir í dag.