Aldrei munu fleiri hafa verið heitavatnslausir í einu

Heitt vatn verður tekið af gríðarstóru svæði á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og ekki komið á aftur fyrr en á miðvikudag. Heitavatnslaust verður í öllum Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi, Kópavogi, Norðlingaholti, Breiðholti, Almannadal og Hólmsheiði. Lokað verður fyrir svokallaða Suðuræð klukkan tíu í kvöld og hafist handa við að tengja Suðuræð 2 inn á dreifikerfið. Aldrei munu fleiri hafa verið heitavatnslausir í einu.

22
02:54

Vinsælt í flokknum Fréttir