Seldi húsið í Grindavík á föstudag og rændur um nóttina í Reykjavík
Marcel Marik frá Tékklandi lenti í þeirri ömurlegu lífsreynslu að vegabréfi hans og verðmætum var stolið úr bíl fyrir utan hús vinar hans í Reykjavík á föstudaginn. Nokkrum klukkustundum fyrr seldi hann húsið sitt í Grindavík. Hann vonast til að geta búið áfram í Grindavík.