Ekkert neyslurými í meira en hálft ár
Ekkert neyslurými hefur verið rekið á Íslandi í meira en hálft ár. Erfiðlega hefur gengið að finna því nýjan stað þrátt fyrir mikinn vilja. Borgarstjóri viðraði þá hugmynd í dag að rýmið yrði opnað aftur í bíl en þannig var það rekið í ár þar til því var lokað.