Hjúkrunarfræðingar hræðast alvarleg atvik í starfi
Tæplega áttatíu prósent hjúkrunarfræðinga hafa áhyggjur af því að lenda í alvarlegu atviki í starfi samkvæmt nýrri könnun. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir nauðsynlegt að bæta starfsaðstæður.