Stafrænu ökuskírteinin kynnt til sögunnar
Stafræn ökuskírteini voru formlega kynnt til sögunnar á blaðamannafundi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag. Þar fjölluðu dómsmálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ríkislögreglustjóri um fyrirhugaða útgáfu skírteinanna.