Gríðarmjótt á munum í Bandaríkjunum
Úrslit nýafstaðinna þingkosninga í Bandaríkjunum velta á niðurstöðum í þremur ríkjum, þar sem gríðarmjótt er á munum. Hin svokallaða ,,rauða bylgja" repúblikana reið varla yfir, að sögn stjórnmálaskýrenda, og demókratar unnu hálfgerðan varnarsigur - þó að þeir bíði nú milli vonar og ótta.