Koma Arons sé skýr yfirlýsing frá Víkingum
Það dró til tíðinda í dag í herbúðum Víkings Reykjavíkur sem leikur í Bestu deildinni í fótbolta en Víkingurinn Aron Elís Þrándarson hefur ákveðið að snúa heim úr atvinnumennsku og skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning við uppeldisfélag sitt.