Ísland í dag - Mikilvægt að borða hamingjusamar hitaeiningar
Dagný Magnúsdóttir listakona rekur ævintýralegt kaffihús í Þorlákshöfn sem gegnir einnig mikilvægu menningarhlutverki í bænum. Við hittum Dagnýju nú á dögunum og fengum að heyra hugmyndina á bakvið kaffihúsið, hvernig það sé að reka kaffihús á landsbyggðinni og þeim áskorunum sem fylgja rekstrinum og segir Dagný að oft á tíðum hafi hana langað að gefast upp og hreinlega loka kaffihúsinu.