Byggja þurfi meira áður en vextir lækka
Fasteignamarkaðurinn er nokkuð stöðugur þó vísitala íbúðaverðs rokki upp og niður milli mánaða. Þetta segir fasteignasali sem hefur mun meiri áhyggjur af því sem gerist þegar vextir taka að lækka, en hann segir ekki nóg byggt til að koma í veg fyrir miklar hækkanir þegar þar að kemur.