Hildur Lilliendahl - Drullastu til að leggja góðu málefni lið
Hildur Lilliendahl er líklega ein sú allra sjóaðasta í því að taka við skítkasti úr hinum ýmsu áttum. Hér er hún hinsvegar að upplifa nýja og bókstaflegri útfærslu af fyrirbærinu. Hildi líkar það ekkert sérstaklega illa, enda stendur hún í þessu fyrir gott málefni og leggur sín lóð á vogarskálarnar fyrir Þroskahjálp.
ADHD samtökin, Barnaheill – Save the Children á Íslandi, MND félagið á Íslandi og Þroskahjálp taka þátt í skemmtilegu verkefni með Mýrarboltanum HÉR Á VÍSI. Almenningur getur haft áhrif á það hvernig milljón króna góðgerðarsjóður skiptist á milli félaganna í einfaldri kosningu á með því að fara inn á síðuna VISIR.IS/DRULLASTU og kjósa það félag sem helst ætti að fá stóran hluta af góðgerðarsjóðnum.
TAKTU ÞÁTT HÉR!