Þak fauk af vélaskemmu í Bolungarvík í miklu hvassviðri
Þak fauk af vélaskemmu í Minni-Hlíð í Bolungarvík í morgun í miklu hvassviðri. Þakið fauk á harðfiskhjalla þar sem fiskur hékk til þurrkunar. Tjónið á þakinu, hjallanum og fisknum er talið hlaupa á milljónum króna.