Bæjarstjórinn dreif sig heim úr fríi
Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur var nýfarinn í sumarfrí þegar skjálftahrinan hófst á Reykjanesskaga og dreif sig aftur heim. Hann segir tímasetninguna óheppilega þar sem margir viðbragðsaðilar séu í sumarfríi og býst við gosi.