„Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“
Ísland mætir Bosníu í Laugardalshöll annað kvöld, miðvikudag, í því sem er fyrsti leikur liðsins í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer 2026. Eftir það ferðast liðið til Georgíu og mætir heimamönnum þann 10. nóvember næstkomandi. Elvar Örn Jónsson er spenntur fyrir komandi viku með landsliðinu.