Lögreglan stuggaði við unglingum á Miklubraut
Unglingarnir sem mótmæltu háu bíómiðaverði í dag gripu til þess að stöðva umferð á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Nokkuð lið lögreglu kom á staðinn og stuggaði við unglingunum sem flest létu sér segjast og hurfu á braut.