Innlent

Katrín Júlíusdóttir trúlofuð

Boði Logason skrifar
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra er trúlofuð.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra er trúlofuð.
„Já, það er rétt, ég er alsæl og hamingjusöm" segir hin nýtrúlofaða Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra. Unnusti Katrínar, Bjarni Bjarnason, bað hennar á milli jóla og nýárs en þau hafa verið saman um nokkurt skeið.

„Maður getur gengið út þó að maður sé ráðherra," segir Katrín hlæjandi en vill ekki gefa það upp hvernig hann bað hennar. „Það er bara á milli okkar, en þetta var mjög persónulegt og æðislega fallegt. Þetta verður frábært ár," segir Katrín að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×