Bakþankar

Bakþankar

Fréttamynd

Hinn fyrsti makríll

Í ferð minni til Óslóar í vikunni hitti ég gamlan skólabróður minn sem dvalist hefur þar um nokkurt skeið. Hann þóttist forframaður, vildi kynna mig fyrir siðum þessara stóru frændþjóðar og krafðist þess að ég keypti makríl í dós

Bakþankar
Fréttamynd

Hvað á barnið að heita?

Einhver sagði mér einu sinni að maður ætti alltaf að skíra nafni sem hæfir forseta. Það er ágætis ráð og viðmið þegar flett er í gegnum nafnabækur og misjafnar samsetningar skoðaðar. Ætli þau Tíbrá og Brúnó hefðu orðið góðir húsráðendur á Bessastöðum?

Bakþankar
Fréttamynd

Hjartveiki í Vatnsmýri

Það er búið að gera hjartveika akureyska stelpu að "poster-girl“ fyrir því að ef flugvöllurinn fer muni börn deyja. Þetta er ósvífið og ósmekklegt.

Bakþankar
Fréttamynd

Viltu verða stuðmóðir?

Æskuvinkona mín eignaðist barn fyrir nokkrum mánuðum. Eins og mér leiðist tal um bleiur og barnastóla þá verð ég nú að viðurkenna að ég gladdist þegar mér bárust fregnir af óléttu hennar. Henni fæddist sonur. Krummi og hann er eiginlega fullkominn.

Bakþankar
Fréttamynd

Heilbrigðiskerfi á hlaupum

Undanfarna daga er búið að vera einstaklega notalegt að vera á Facebook þar sem hver á fætur öðrum tilkynnir um maraþonhlaup í þágu góðgerða. Það er fallegt hvað margir styrkja eitthvað sem er þeim tengt, í minningu eða til stuðnings einhverjum sem þeim þykir vænt um. Það minnir okkur á það góða við að vera í samfélagi manna.

Bakþankar
Fréttamynd

Viltu kaffi?

Tiltölulega nýlega fór þeim skiptum sem starfsmenn ÁTVR spurðu mig um skilríki að fækka. Allan þrítugsaldurinn, blessuð sé minning hans, var stundin jafnvandræðaleg þegar ég mætti á kassann. Verð ég spurður eða ekki? Vissara að rétta bara kortið til þess að koma í veg fyrir að þurfa að leita að ökuskírteininu til að sanna 28 ára aldur minn.

Bakþankar
Fréttamynd

Árið er 2033…

Ég vakna við vindinn. Fyrsta haustlægðin er mætt. Horfi út um gluggann. Lítill hvítur plastpoki flýgur í hringi á bílastæðinu. Einhver hefur keypt brauðstangir með pitsunni í gær. Hólmsheiðin er samt allt í lagi hverfi þannig lagað. Þetta er reyndar svolítið frá en húsnæðisverðið er alla vega eftir því.

Bakþankar
Fréttamynd

Dvergurinn með happdrættismiða

Eruð þið búin að heyra söguna af dvergnum sem var að selja happdrættismiða og bankaði upp á á sambýli fyrir þroskahefta með þeim afleiðingum að þroskahefta fólkið handsamaði hann og lokaði inni í skáp því það hélt að hann væri álfur?

Bakþankar
Fréttamynd

Fangakúlur samfélagsins

Hjónabönd hanga eins og fangakúla um ökkla samfélagsins. Ég varpa þessu fram, sísona, þó að það sé vissulega erfitt því kúlan er úr járni. Þetta er nefnilega ekki fullmótuð hugmynd hjá mér. Hjónabandið er það hins vegar.

Bakþankar
Fréttamynd

Helvítið hann Hannes

Það sést ekki á mér en stundum gleymi ég að borða. Í síðustu viku fattaði ég það um tíuleytið að ég hafði gleymt kvöldmatnum. Aðframkominn af næringarskorti gekk ég þungum skrefum að nálægum pitsustað og pantaði konung flatbakanna: pepperóní og ananas.

Bakþankar
Fréttamynd

Barbarískir skokkarar

Margir láta hlaupabylgjuna sem tryllir lýðinn víða um heim fara í taugarnar á sér. Hlauparar hlaupa líka í fötum sem leyna alltof litlu, hafa brenglaðan tónlistarsmekk, auk þess sem þeir virðast allir byrja að snýta sér á ferð án þess að nokkuð tissjú komi þar við sögu.

Bakþankar
Fréttamynd

Þriðja árstíðin

Stundum er sagt í hálfkæringi að á Íslandi séu bara tvær árstíðir; vor og haust. Það er ekki rétt. Þær eru þrjár: Sumar, haust og jól.

Bakþankar
Fréttamynd

Hötum fortíðina

Það er ekkert verra en að hlusta á einhvern mæra eitthvað gamalt. Allt sem er nýtt er betra en það sem er gamalt. Denzel Washington er miklu betri leikari en Sir Laurence Olivier, Mike Tyson hefði getað lamið Muhammed Ali með annarri og Pelé kæmist varla í liðið hjá Ungmennafélaginu Magna á Grenivík.

Bakþankar
Fréttamynd

Við steypum í kvöld

Tilbúið til samsetningar, leiðbeiningar fylgja. Þetta hljómaði hreint ekki svo illa, við færum létt með þetta. Svona handlagin bæði! Ég hugsaði mig ekki tvisvar um þegar ég sá hýsið síðan auglýst á afslætti í ofanálag, nú skyldi byggður garðskúr.

Bakþankar
Fréttamynd

Brattari á útlensku

Á mínum stutta blaðamannsferli hef ég tekið viðtöl við nokkra bráðskemmtilega útlendinga sem hingað komu vegna áhuga á hruninu og meintum hetjuviðbrögðum Íslendinga við því.

Bakþankar
Fréttamynd

Bliki í þrjár klukkustundir

Það er erfitt að útskýra það og ég hef á tilfinningunni að maður megi ekki segja það. Maður gæti verið stimplaður þjóðernissinni, orð sem fólk hefur ólíkan skilning á en yfirleitt neikvæðan, eða þá væminn.

Bakþankar
Fréttamynd

Fávitar og hommar

Ég sagði vinum mínum frá þeirri upplifun að hafa farið á afskekkta eyju í Viktoríuvatni þar sem börnin örmögnuðust af hlátri yfir að ég væri svo hvít að það væri enginn litarmunur á handarbakinu og lófanum.

Bakþankar
Fréttamynd

Öryggi og hræðsla

Heimurinn er öruggari staður nú en fyrir tveimur áratugum. Þetta er stór fullyrðing. Mig langar næstum til að vera ósammála henni án þess að heyra rökin. Er þetta satt?

Bakþankar
Fréttamynd

Mannréttindi og sýnileiki

Nú, þá hljótið þið að þekkja Steffý og Hrefnu,“ sagði konan áhugasöm og leit til skiptis á mig og kærustuna mína. Við litum hvor á aðra og ég fór í huganum í gegnum samræður mínar við þessa ókunnugu konu. Ég hafði sagt henni frá náminu, sumarstarfinu, fjölskyldunni og svo þegar kærastan mín kom aðvífandi sagði ég konunni að hún væri í lögfræði. Steffý og Hrefna hringdu engum bjöllum á neinum þessara vígstöðva.

Bakþankar
Fréttamynd

Eggjasamlokurnar kvaddar

Næstum þrjú ár eru síðan ég skreið á fertugsaldurinn, og það sama á við um marga vini mína. Aldurinn fer misilla í mannskapinn, sumir eiga erfitt með að kyngja því að vera orðnir þetta gamlir á meðan aðrir taka hækkandi aldri fagnandi.

Bakþankar
Fréttamynd

Flugnafælan

Ótti er órökrétt tilfinning. Fólk óttast ólíka hluti, sumir óttast margt, aðrir fátt. Ég óttast til dæmis eftirtalið: hæð (en þó ekki of mikla – mér líður illa á svölum fimm hæða fjölbýlishúss en ágætlega á þverhníptri, 200 metra hárri klettabrún), hafið (það er einhvern veginn endalaust á alla kanta, dimmt og djúpt og hýsir allskyns hættu – en samt hef ég snorklað innan um risaskötur þar sem ekki sér til botns og líkað vel), sársauka (sem er síðan aldrei svo slæmur þegar á reynir) og síðast en ekki síst, það órökréttasta af öllu: skordýr.

Bakþankar
Fréttamynd

Innflytjendur óskast

Allir réttir sem teljast sérstaklega íslenskir eru bragðvondir og ólystugir. Fyrir utan auðvitað pönnuköku- og rúgbrauðsbakstur eigum við okkur enga sérstaka sögu eða hefð í matargerð

Bakþankar
Fréttamynd

Uns hún sannar sig

Hún greip fram í fyrir kynninum, mótmælti og hló ekki að bröndurunum hans. Hún sló hann út af laginu og hálfpartinn gerði lítið úr innleggjum hans.

Bakþankar
Fréttamynd

Ekki trúuð á eina lausn

Skólakerfi má aldrei vera heilagt. Þess vegna er ég sammála nýja menntamálaráðherranum um að við þurfum að skoða alla skólana okkar ofan í kjölinn.

Bakþankar
Fréttamynd

Strákasaga

Þegar ég var fimm ára ansaði ég engu öðru nafni en Emil, gekk um með pottlok og blótaði yfirvaldinu fyrir að gera mig ekki að strák.

Bakþankar
Fréttamynd

Druslufantasíur

Eldgamalt, landlægt og óþolandi er eitt fyrirbæri sem á ensku kallast "victim blaming“. Það er þegar fundnar eru fordómafullar og ómálefnalegar ástæður til að skella skuldinni á þolendur ofbeldis.

Bakþankar