Pepsi-mörk kvenna: Markasyrpa 15. umferðar | Myndband Sautján mörk voru skoruð í 15. umferð Pepsi-deildar kvenna. Íslenski boltinn 8. september 2016 23:15
Máni lætur Valskonur heyra það: Eru nógu sterkir og stórir karakterar í þessu liði? Valur kom sér inn í toppbaráttuna með flottum sigri á Stjörnunni en fékk svo skell gegn Þór/KA. Íslenski boltinn 8. september 2016 15:15
Þorsteinn um mögulega þátttöku Hörpu: Setur aðra leikmenn í óeðlilega stöðu Eftir 3-0 sigur Breiðabliks á ÍBV í 15. umferð Pepsi-deildar kvenna er ljóst að leikur Blika og Stjörnunnar á laugardaginn verður nánast úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn. Íslenski boltinn 7. september 2016 20:00
Valorie rekin sem þjálfari Selfoss Valorie Nicole O´Brien hefur verið rekin sem þjálfari Selfoss í Pepsi-deild kvenna, en þetta herma heimildir Vísis. Íslenski boltinn 6. september 2016 21:32
Umfjöllun og viðtöl: FH - Selfoss 1-1 | Selfoss í fallsæti þrátt fyrir stig FH og Selfoss gerðu 1-1 jafntefli í 15. umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta í kvöld á Kaplakrikavelli. Íslenski boltinn 6. september 2016 19:45
Stjarnan og KR með mikilvæga sigra Stjarnan komst aftur á beinu brautina í Pepsi-deild kvenna með 3-1 sigri á ÍA eftir að hafa lent 1-0 undir. Íslenski boltinn 6. september 2016 19:23
Titilvonir Vals litlar eftir skell á Akureyri Þór/KA gerði sér lítið fyrir og skellti Val, 4-0, í Pepsi-deild kvenna fyrir norðan, en eftir þetta tap eru titilmöguleikar Vals nánast úr sögunni. Íslenski boltinn 6. september 2016 19:11
Leik Breiðabliks og ÍBV frestað Fer fram á morgun og verður þá í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Íslenski boltinn 6. september 2016 15:45
Helena tekur við ÍA Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna fyrir næsta tímabil hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Íslenski boltinn 4. september 2016 19:11
Pepsi-mörk kvenna: Markasyrpa 14. umferðar | Myndband Mikil spenna er komin í Pepsi-deild kvenna eftir úrslitin í 14. umferð sem var leikin í gær og fyrradag. Íslenski boltinn 2. september 2016 23:15
Harpa segir ólíklegt að hún verði með á EM Markadrottningin Harpa Þorsteinsdóttir segir ólíklegt að hún verði með á EM í Hollandi á næsta ári. Íslenski boltinn 2. september 2016 19:30
Pepsi-mörk kvenna: Eiði ekki Vanda(ðar) kveðjurnar Ummæli Eiðs Benedikts Eiríkssonar, þjálfara Fylkis, eftir 4-0 tap Árbæinga fyrir Breiðabliki í gær voru til umræðu í Pepsi-mörkum kvenna sem verða á dagskrá á Stöð 2 Sport HD klukkan 20:00 í kvöld. Íslenski boltinn 2. september 2016 17:00
Einn af lykilmönnum Stjörnunnar úr leik Stjarnan verður væntanlega án tveggja lykilleikmanna á lokasprettinum í Pepsi-deild kvenna. Íslenski boltinn 1. september 2016 20:12
Blikar kláruðu Fylki á fimm mínútna kafla | Myndir Breiðablik minnkaði forskot Stjörnunnar á toppi Pepsi-deildar kvenna niður í tvö stig með öruggum 4-0 sigri á Fylki í lokaleik 14. umferðar á Kópavogsvelli í kvöld. Íslenski boltinn 1. september 2016 19:53
Lokaspretturinn í deildinni og EM næsta sumar í óvissu hjá Hörpu Markahæsti leikmaður Pepsi-deildar kvenna, Harpa Þorsteinsdóttir, spilar væntanlega ekki mikið meira með Stjörnunni í sumar þar sem hún er ólétt. Íslenski boltinn 1. september 2016 13:48
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 2-1 | Valur opnaði toppbaráttuna upp á gátt Valur lagði Stjörnuna 2-1 í toppslag Pepsi-deildar kvenna í fótbolta í kvöld á heimavelli. Laufey Björnsdóttir tryggði sigurinn í uppbótartíma. Íslenski boltinn 31. ágúst 2016 21:45
Sigríður tryggði KR stigin þrjú á Selfossi | Þór/KA á góðu róli Sigríður María S. Sigurðardóttir tryggði KR sinn fyrsta sigur síðan 24. júní þegar hún skoraði eina markið gegn Selfossi á útivelli í 14. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Íslenski boltinn 31. ágúst 2016 19:47
Eyjakonur sóttu sigur á Skagann ÍBV vann sinn fjórða sigur í síðustu fimm leikjum þegar liðið lagði ÍA að velli í 14. umferð Pepsi-deildar kvenna á Norðurálsvellinum á Akranesi í kvöld. Íslenski boltinn 31. ágúst 2016 19:15
Pepsi-mörk kvenna: Öll mörkin úr 13. umferðinni | Myndband Þrettándu umferð Pepsi-deildar kvenna lauk í gær með fjórum leikjum. Íslenski boltinn 25. ágúst 2016 22:30
Pepsi-mörk kvenna: KR í frjálsu falli Slæm staða KR var til umræðu í Pepsi-mörkum kvenna. Íslenski boltinn 25. ágúst 2016 17:30
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - ÍBV 2-1 | Stjörnukonur náðu fimm stiga forskoti Stjarnan náði fimm stiga forskoti á toppi Pepsi-deildar kvenna með naumum 2-1 sigri á ÍBV á heimavelli í kvöld en þetta var sjötti sigurleikur Stjörnunnar í röð. Íslenski boltinn 24. ágúst 2016 20:30
Valur vann en staða KR og ÍA slæm Stjörnustúlkur eru sem fyrr á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 2-1 sigur á ÍBV en það fóru fram þrír aðrir leikir í deildinni í kvöld. Íslenski boltinn 24. ágúst 2016 19:54
Pepsi-mörk kvenna: Óskiljanleg ákvörðun dómarans Mark í leik Selfoss og ÍA í Pepsi-deild kvenna var skyndilega dæmt af, öllum að óvörum. Enski boltinn 18. ágúst 2016 15:30
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - ÍBV 1-2 | ÍBV upp í fjórða sætið með góðum sigri ÍBV svaraði fyrir tapið í bikarúrslitunum og lyfti sér upp í 4. sæti Pepsi-deildar kvenna með 2-1 sigri á Val í 12. umferð í kvöld. Íslenski boltinn 17. ágúst 2016 22:00
Stjarnan náði tveggja stiga forystu | Mikilvægir sigrar ÍA og FH Stjarnan náði í kvöld tveggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna þegar liðið vann öruggan 0-3 sigur á Fylki í Árbænum. Íslenski boltinn 17. ágúst 2016 20:39
Blikar töpuðu tveimur stigum fyrir norðan Breiðablik varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu Pepsi-deildar kvenna þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Þór/KA fyrir norðan í kvöld. Íslenski boltinn 17. ágúst 2016 20:12
Hulda Birna ráðin framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍA Hulda Birna Baldursdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA (KFÍA). Íslenski boltinn 17. ágúst 2016 08:00
Geir: Félögin ráða í hvað EM-peningarnir fara | Ekkert eftirlit Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er KSÍ búið að úthluta 453 milljónum króna til aðildarfélaga sambandsins. Þetta er hluti af peningunum sem KSÍ fékk vegna frábærs árangurs karlalandsliðsins á EM í Frakklandi. Íslenski boltinn 16. ágúst 2016 19:48
Sjáðu mörkin og bikarinn fara á loft í gær | Myndband Breiðablik varð í gær bikarmeistari í 11. sinn eftir 3-1 sigur á ÍBV á Laugardalsvelli en Blikar eru því handhafar beggja stóru titlanna í íslenskum kvennafótbolta. Íslenski boltinn 13. ágúst 2016 15:15
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍBV 3-1 | Blikar bikarmeistarar í 11. sinn | Myndir Breiðablik varð í kvöld bikarmeistari í 11. sinn eftir 3-1 sigur á ÍBV á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 12. ágúst 2016 22:15