Bílar

Bílar

Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.

Fréttamynd

Vin Diesel á Dodge Charger Daytona í Fast And The Furious

Það verður ekki bara ofursprækur Nissan GT-R bíll sem fær hlutverk í næstu Fast And The Furious kvikmynd, sem verður sú sjötta í röðinni, heldur mun Van Diesel spretta um göturnar á Dodge Charger Daytona bíl í myndinni. Það er afar viðeigandi í ljósi fyrri mynda, því Vin Diesel hefur oft ekið á bandaríksum kraftabílum í myndunum. Þessi nýja mynd kemur til sýninga í maí á þessu ári og bíða verður sýninga á henni til að sjá hvort hann verður búinn nitro-búnaði til að auka afl hans eða hvaða aðrar breytingar verða gerðar á honum til að halda í við þá breyttu japönsku ofurbíla sem hann ávallt er að kljást við í Fast And The Furious myndunum.

Bílar
Fréttamynd

Ferrari og Maserati vélar í Alfa Romeo

Fiat er svo umhugað að koma Alfa Romeo aftur á kortið að það ætlar að fá Ferrari og Maserati við að aðstoða Alfa Romeo við vélasmíði í nýja bíla sína. Þessi fyrirtæki tilheyra öll Fiat samstæðunni. Fiat ætlar að setja Guilia bílinn og tveggja sæta "roadster" sportbíl á markað á næsta ári í viðbót við Alfa Romeo 4C sportbíl sem lengri bið verður eftir. Bætast þessir bílar við fyrri gerðirnar MiTO og Guilietta. Sergio Marchionne forstjóri Fiat hefur látið hafa eftir sér að stærsta vandamál Alfa Romeo sé að framleiða vélar sem eru þess verðar að vera í bílum með merki Alfa Romeo.

Bílar
Fréttamynd

Mercedes Benz kaupir 12% í kínversku bílafyrirtæki

Í síðustu viku keypti Daimler AG, móðurfélag Mercedes Benz 12% hlut í Bejing Automotive Group (BAIC) fyrir 111 milljarða króna og fær með því tvo menn í stjórn þess. Kaup þess eru liður í þeim áformum Mercedes að ná keppinautum sínum á lúxusbílamarkaði aftur, það er BMW og Audi. Það hefur sviðið mjög hjá Daimler að Mercedes hafi tapað á síðustu árum forystunni í sölu á lúxusbílum, en BMW tók framúr þeim í magni árið 2005 og Audi árið 2011. Því ætlar Mercedes að breyta og ná aftur forystunni fyrir enda þessa áratugar. Þessi nýju kaup eiga að tryggja betri aðgang að kínverskum bílamarkaði fyrir bæði Mercedes og BAIC og að auðveldara verði fyrir þau bæði að keppa á þeim vaxandi markaði. Tapaði forystunni í lúxusbílasölu Í Kína seldi Audi 406 þúsund bíla í fyrra og jók söluna um 30% milli ára á meðan Mercedes jók hana aðeins um 1,5% og náði 196 þúsund bíla sölu þar. BMW náði hinsvegar mestri aukningu, 40% og seldi 303 þúsund bíla. Því eru blikur á lofti fyrir Mercedes Benz á þessum mikilvæga markaði og ljóst að eitthvað róttækt varð að gera. Í hinum hrynjandi markaði í Evrópu eru vaxtatækifærin helst á nýmörkuðum og þar spilar Kína stærstan þátt. BAIC á meirihlutann í Bejing Benz Automotive Co. verksmiðjunni í Peking sem framleiðir Mercedes C- og E-class bíla og GLK jeppann. BAIC framleiðir einnig bíla í Kína fyrir Hyundai. Daimler og BAIC hafa einnig bundist samstarfi um söluumboð sín í Kína og sameina nú sjálfstæð umboð hvers um sig.

Bílar
Fréttamynd

Fersk kynslóðarbreyting á Honda CR-V

Einn alvinsælasti jepplingur síðustu ára á Íslandi er Honda CR-V. Það sem meira er, hann er langvinsælasti jepplingur í Bandaríkjunum og slær léttilega við heimabílunum Ford Escape og jeppanum Ford Explorer og seldist í meira en 300.000 eintökum á síðasta ári. Hann er þekktur fyrir áreiðanleika og fátíðar bilanir og endist von úr viti. Svo vel hefur hann endst hér á landi að 98% allra CR-V bíla sem selst hafa frá upphafi sölu hans eru enn á götunum. Það er því greinilega nokkuð varið í þennan bíl og svo var reyndar raunin er honum var reynsluekið á dögunum. Var þar um að ræða nýja kynslóð bílsins af árgerð 2013. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á bílnum og allar til að gera góðan bíl betri. Virkar stærri en forverinn en er minni Í fyrsta lagi er bíllinn fallegri að utan, en fyrri kynslóð hans var orðin nokkuð á eftir og breytingar því tímabærar. Hann er allur rennilegri og greinilega hefur verið unnið ríkulega í loftflæði hans, allt til að minnka eyðslu bílsins. Honda hefur þó ekki dottið í þann pitt að gera hann svo sportlegan að minnka gluggalínu hans, eins og og við svo marga nýja bíla í dag. Það verður gjarnan til þess að útsýni úr bílnum, sérstaklega úr aftursætum, skerðist mjög. Annar pittur sem Honda féll ekki í var að gera bílinn stærri, heldur þvert á móti er bíllinn aðeins minni þó að útlitið bendi til þess þveröfuga. Vel útfærð verkfræðileg hönnun hans innanborðs hefur hinsvegar gert það að verkum að hann er rýmri en forverinn og á það við um öll mál hans. Meira rými fyrir ökumann sem og aftursætisfarþega auk hins flata gólfs í afturhluta bílsins skapar góða rýmistilfinningu. Eftirtektarvert er gott fótarými afturí. Skottrými er yfrið og ætti að duga flestum til ferðalaga. Í dýrustu Executive útgáfu bílsins kemur hann með gullfallegum leðursætum og ýmislegt annað góðgæti fylgir þá með eins og rafstýrt ökumannssæti, glerþak, rafstýrður afturhleri og lyklalaust aðgengi og ræsing. Fín innrétting en of mikil notkun ódýrari gerðar plasts Geymslurými öll eru til fyrirmyndar og í miðjustokki eru gríðarlega rúmmiklar geymslur og geta hæglega látið kvenmannsveski hverfa. Ekki er skortur á glasahöldurum. Fimm tommu upplýsingaskjár gefur mælaborðinu snaggaralegan svip þó stærri skjáir prýði margan bílinn í dag. Á skjánum má stýran öllum fjáranum í bílnum og á honum birtist útsýni bakkmyndavélar ef sett er í bakkgír. Hitastýrð miðstöð er vel þegin breyting á bílnum. Mælaborðið er einfalt en skiljanlegt og allt til staðar sem þarf. Allar mögulegar tengingar eru í bílnum og ekki er ónýtt að geta stýrt lagavali gegnum iPhone. Það eina sem hægt er að setja út á innréttinguna er notkun á því er virðist ódýrari gerð plasts, sem setur hann aðeins niður í samanburði við margan annan nýjan bílinn í dag. Allt er þetta þó greinilega vel smíðað eins og við mátti búast hjá Honda. Í bílinn má fá radartengdan skriðstilli, akreinaaðstoð og árekstrarviðvörunarkerfi, en fjarlægðarkynjarar framan og aftan er staðalbúnaður. Kostar frá 6,0 til 7,9 milljónum Fá má CR-V með 2,0 lítra og 150 hestafla bensínvél eða 2,2 lítra og 155 hestafla dísilvél. Báðar eru þær þýðgengar og öflugar vélar en eyðslan með dísilvélinni er umtalsvert lægri. Á móti kemur að bensínbíllinn er talsvert ódýrari sem munar 900 þúsund krónum. Bensínbíllin má aðeins fá sjálfskiptan en dísilbílinn bæði bein- og sjálfskiptan. Ef keyptur er dísilbíll með beinskiptingu munar ekki nema 100 þúsund krónum á honum og bensínbílnum. Eyðsla beinskipts bíls er að auki einum lítra minni í blönduðum akstri, ekki nem 5,6 lítrar á hundraðið. Geri aðrir jepplingar betur. Ódýrast bíllinn er sjálfskiptur bensínbíll á 5.990.000 kr. Dýrasta útgáfa hans er sjálfskiptur dísilbíll í Executive útgáfu, á 7.890.000 kr. Akstur Honda CR-V er einkar ljúfur, fjöðrun til fyrirmyndar og bíllinn er allur stífur og góður. Ekki ber mikið á hliðarhalla er lagt er á hann, stöðugleiki á vegi veitir fína öryggistilfinningu. Það sem helst má setja út á aksturánægjuna er ný rafræn stýring sem stelur aðeins tilfinningu fyrir vegi og minnkar skemmtanagildið við aksturinn. Þegar allt er tekið saman er Honda CR-V ferlega fínn bíll sem skorar hátt á flestum sviðum. Hann hefur ávallt verið góð kaup og búast má við að hann endist gríðarlega vel eins og forverar hans. Endursöluverð er alltof gott á þessum bíl og oftar en ekki er slegist um þá, þá sjaldan að fólk vill selja þá. Hann er á fínu verði sem fyrr og ætti sem áður að seljast vel hér, enda heppilegur við íslenskar aðstæður. Kostir Frábært rými Góð tilfinning fyrir smíðagæðum Mikið útsýni úr bílnum Gallar Full einföld innrétting og notkun ódýrs plasts Rafræn stýring dregur úr tilfinningu í akstri

Bílar
Fréttamynd

Draumasamkoma mótorhjólamannsins

Daytona Bikeweek er 10 daga samkoma mótorhjólaáhugamanna sem haldin var fyrst árið 1937 á Daytona Beach í Florida. Hafsteinn Emilsson er öllum hnútum kunnugur í Daytona enda hefur hann ekki misst af Bikeweek frá 1996 og er því að fara núna í 18. skiptið í röð. Hafsteinn segir að þessar ferðir hafi verið mjög vinsælar hjá Íslendingum og þeir hafa fjölmennt þangað í áraröð. Fjöldinn er æði misjafn, allt frá 12 og uppí 45 manns, en í fyrra voru þeir 28 talsins og það stefnir í svipaðan fjölda í ár. Þátttakendur eru konur jafnt sem kallar og á aldrinum frá 18 til 82 ára, en allir með sama áhugamálið, mótorhjól. Þátttakendur hafa bæði valið sér að fara á eigin vegum eða nýta sér skipulagða ferð þar sem flugið, gistingin og farastjórn er innifalin og eru þeir reyndar fleiri. Síðustu 10 árin hefur Icelandair boðið upp á sérferðir á Daytona Bikeweek undir fararstjórn Hafsteins. Eftir Bikeweek dagana efnir Hafsteinn ávallt til tveggja daga hjólaferðar um Florída á Harley Davidson hjólum og er þá farið mest um sveitir í miðfylkinu þar sem umferð er lítil og fallegir smábæir. Þá er íslenski fáninn alltaf á hjólunum og það hefur oft komið fyrir að við erum stoppuð af Íslendingum sem búsettir eru í Flórída eða fyrrverandi hermönnum sem voru á Íslandi sem spyrja okkur hvort við séum frá Keflavík, eða Reykjavík. Þeir vilja síðan allt fyrir okkur gera. Daytona Bikeweek er ein stærstu mótorhjólasamkomu og sýning á heimsvísu, eins og allt sem amerískt er. Á Bikeweek koma saman um sex hundruð þúsund mótorhjólaáhugamenn árlega. Hver sá sem framleiðir eitthvað tengt mótorhjólum, lætur sig ekki vanta með sýningarbás þar, hvort sem um er að ræða mótorhjól, aukahluti fyrir mótorhjól, mótorhjólafatnað, smurolíur, hnakka, spegla, gleraugu eða hvers konar fylgihluti. Allar tegundir af hjólum er að finna til sýnis og sölu, torfæruhjól, þríhjól, hippahjól og kappaksturshjól. Í fyrra keyptu tveir Íslendingar mótorhjól á sýningunni, svo ferðin er stundum ekki bara farin til að svala forvitninni, heldur með kaup í huga. Daytona er álíka fjölmenn og Reykjavík og í annarri viku marsmánaðar ár hvert fyllist bærinn af mótorhjólum og hjólafólki. Vinsælt er t.d að rölta niður aðalgötu bæjarins, "Main Street“ þar sem sölubásar eru við hvert fótmál og sýningar á hverju götuhorni. Síðustu ár hefur ásókn seljenda verið svo mikil að sýningar og sölubásar hafa verið settir upp í nærliggandi bæjum eins og Ormond Beach. Þar er líka að finna mótorhjólaverslunina Bruce Rossmeyer Harley Davidson sem er stærsta Harley verslun og umboð í heimi. J & P eru þar við hliðina er með alla hugsanlega aukahluti fyrir mótorhjól og allan hlífðarfatnað. Það er einnig keppt á mótorhjólum í Daytona og ýmsar keppnir fara fram þá 10 daga sem Bikeweek stendur yfir. Eru þær flestar haldnar á International Speedway kappakstursbrautinni í Daytona. Þar má sjá Motorcross og Super Race keppnir flesta daga. Við Speedway er stór markaður með notuð hjól og varahluti í gömul hjól. Þar er bæði gaman og fróðlegt að skoða og tala við þá sem þar eru með sölubása. Hafsteinn segir að enn séu laus sæti í ferðina á Daytona Bikeweek, sem er 8 daga ferð og kostar 153 þúsund krónur með öllu

Bílar
Fréttamynd

Hverjir keppa um titilinn Bíll ársins?

Á bílasýningunni í New York í lok mars verður lýst kjöri á Bíl ársins 2013. Það eru 66 þekktir bílablaðamenn um allan heim sem kjósa þann bíl, en nú er komið í ljós hvaða 10 bílar það eru sem koma til greina í kjörinu. Það eru Audi A3, Range Rover, Mazda6, Mazda CX-5, Mercedes-Benz A-Class, Peugeot 208, Porsche Boxster/Cayman, Subaru BRZ/Toyota GT86, Volkswagen Golf og Volvo V40. Það vekur sérstaka athygli að enginn bandarískur bíll er þarna á meðal þó verðlaunin verði afhent í New York. Mörgum bílablaðamönnum kemur það reyndar ekki mikið á óvart. Þýskir og japanskir bílar eru áberandi á listanum, 4 þeirra eru frá Þýskalandi og 3 frá Japan. Eldri sigurvegarar Fyrri sigurvegarar í þessu kjöri hafa verið Volkswagen up! árið 2012, Nissan LEAF árið 2011, Volkswagen Polo 2010, Volkswagen Golf 2009, Mazda2 2008, Lexus LS 460 2007, BMW 3-línan 2006 og Audi A6 fyrir árið 2005. Aftur eru þýskir bílar mjög áberandi, eiga 5 af þeim 8 bílum sem hlotið hafa þennan titil hingað til. Ætli það verði 6 af 9 eftir kjörið í mars? Greint verður frá hvaða bílar hafa náð þremur efstu sætunum í kjörinu á bílasýningunni í Genf þann 5. mars en krýning á Bíl ársins bíður New York bílasýningarinnar þann 27. mars. Sportbíll ársins Það er ekki minni spenna fyrir kjöri á sportbíl ársins við sama tækifæri. Þar keppa um hituna bílarnir Aston Martin Vanquish, Audi RS5, BMW M6, BMW M 135i, Ferrari F12 Berlinetta, Mercedes-Benz SL63 AMG og Mercedes Benz SLS AMG, Porsche Boxster/Cayman, Renault Clio Sport og Subaru BRZ/Toyota GT86. Í þessum flokki bíla eiga 6 þýskir bílar fulltrúa af þeim 10 sem til greina koma. Fyrri sigurvegarar í þessum flokki hafa verið Porsche 911 fyrir árið 2012, Ferrari 458 Italia fyrir 2011, Audi R8 V10 2010, Nissan GT-R 2009, Audi R8 2008, Audi RS4 2007 og Porsche Cayman S fyrir árið 2006, en þá fyrst fór kjör fram í þessum flokki. Myndskeiðið hér að ofan sýnir hvaða 10 bílar komust í úrslit í fyrra.

Bílar
Fréttamynd

Bilaðar hraðamyndavélar rukka grimmt

Það er víðar en á Íslandi sem rándýrar hraðamyndavélar bila og það stundum við lítinn fögnum vegfarenda. Breskur leigubílstjóri fékk 20.000 króna gluggabréf gegnum póstlúguna um daginn vegna hraðabrots hans sem átti að hafa náðst á hraðamyndavél lögreglunnar. Þar var honum refsað fyrir að aka á 50 mílna hraða á svæði þar sem 30 mílna hraði er leyfður. Bílstjórinn mundi fyrir tilviljun svo vel eftir þessari ökuferð sem þarna var mynduð að hann fór að rannsaka málið. Með því að bera saman tvær myndir sem myndavélin tók af bíl leigubílstjórans kom í ljós að hann var einungis á 17,8 mílna hraða. Það rímaði mjög vel við minni leigubílstjórans sem einmitt minntist þess að hann var að aka aldraðri konu í þessari ferð og gætti þess mjög að fara hægt og varlega. Flestir hefði örugglega greitt þessa sekt umyrðalaust og án nokkurrar rannsóknar á staðreyndum en það var ágætt minni leigubílstjórans og réttlætisvitund hans sem forðaði honum frá þessari óþörfu og rangmætu sekt. Í Baltimore voru nýlega teknar niður hraðamyndavélar að andvirði 60 milljóna króna vegna óáreiðanleika þeirra og verða þær allar endurnýjaðar. Í Reykjavík voru allar þær þrjár myndavélar sem staðsettar voru við ljósastýrð gatnamót teknar niður árið 2009 og því eru þar til gerðir myndavélakassar á víð og dreif um borgina tómir og hafa verið það á fjórða ár. Til stendur að kaupa nýjar vélar í þessa kassa. Ekki er til fjármagn til þeirra kaupa nú, en það stendur til bóta

Bílar
Fréttamynd

Fiat íhugar lágverðsmerki

Margir bílaframleiðendur horfa með öfundaraugum til Dacia-merkis Nissan. Dacia bílar eru framleiddir í Rúmeníu og eru mjög ódýrir bílar sem minna er lagt í en Nissan bíla, en seljast nú eins og heitar lummur. Það á ekki bara við í austurhluta Evrópu heldur er salan einnig góð í Frakklandi og Þýskalandi og víðar í vesturhluta álfunnar. Toyota á merkið Daihatsu og ætlar að nota það til að markaðssetja ódýrari gerðir bíla. Volkswagen er einnig að íhuga að setja á legg ódýrara bílamerki sem selja myndi bíla á verðinu fimm til tíu þúsund Evrur og verður ákvörðun tekin um það á þessu ári. Nú hefur Fiat bæst í þennan hóp bílaframleiðenda og yrðu þeir bílar hvorki framleiddir né markaðssettir í Evrópu, heldur á nýmarkaðssvæðum eins og Indlandi og Kína. Fiat horfir til merkis sem það keypti árið 1990, Innocenti. Innocenti setti á markað ódýra bílinn Innocenti Mini árið 1974 sem hannaður var af Bertone og byggður á Morris Mini bílnum. Nýtt og ódýrt bílamerki Fiat væri í anda þess bíls.

Bílar
Fréttamynd

Bjargar Geely London Taxi?

Breska fyrirtækið sem framleiðir leigubíla Lundúnaborgar, Manganese Broze Holdings, var komið að fótum fram og allt stefndi í gjaldþrot þess. Svo virðist þó að dagar þess séu ekki alveg taldir því kínverska bílafyrirtækið Geely hefur keypt öll hlutabréf þess á 11 milljónir punda , eða ríflega 2,2 milljarða króna. Geely er líklega þekktast fyrir það að eiga sænska bílaframleiðandann Volvo, en nú hefur semsagt eitt bílafyrirtæki bæst í hópinn. Núverandi London Taxi hefur verið í framleiðslu frá árinu 1958, en nýjasta gerð bílsins er frá 2007. Þessir kubbslaga og gamaldags leigubílar hafa orðið fyrir mikilli gagnrýni vegna eyðslu bílanna og að þeir séu ekki nógu notadrjúgir. Margir hafa viljað skipta honum út fyrir Nissan NV2000 bílinn, sem verður einmitt næsti leigubíll New York borgar. Það yrði sannarlega sjónarsviptir af þeim sérstöku leigubílum sem einkenna Lundúnaborg nú. Geely hefur lítinn áhuga á því að skipta honum út og ætlar að kynna nýja útgáfu London Taxi, sem kominn er strax á teikniborðið. Kannski verður hann með 5 strokka eyðslugrannri Volvo vél, en með sama gamla nostalgíuútlitinu?

Bílar
Fréttamynd

Chevrolet Steve McQueen til sölu

Sá bíll er leikarinn Steve Mcqueen ók síðast í kvikmynd verður brátt seldur á uppboði. Er það 1951 árgerðin af Chevrolet Styline DeLuxe, gullfallegur gulur blæjubíll. Bíl þessum ók hann í myndinni The Hunter á níunda áratug síðustu aldar, en sú mynd sló reyndar ekki í gegn á sínum tíma. Steve McQueen keypti sjálfur þennan fagra bíl eftir að tökur á myndinni voru yfirstaðnar og átti hann í 4 ár. Árið 2003 var bíllinn gerður upp og færður svo gott sem í sama ástand og þegar hann var nýr. Bíll sem þessi er metinn á um 45.000 dollara, en saga þessa tiltekna eintaks mun að líkum tífalda verð hans á uppboðinu sem haldið verður í Ft. Lauderdale í Flórída. Brot úr myndinni The Hunter má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

Bílar
Fréttamynd

Honda smíðar bestu vélarnar

Bílar eru misjafnir að gæðum og það á einnig við um vélar þeirra. Breska tryggingafélagið Warranty Direct heldur utan um líkur þess að vélar frá hverjum bílaframleiðenda bili og miðar verð trygginga sinna meðal annars við það. Niðurstöður Warranty Direct eru þær að líkurnar eru minnstar á því að velar í Honda bílum, eða í 0,29% tilfella. Næstminnstar eru þær í bílum Toyota, en samt helmingi meiri en í Honda bílum, eða 0,58% tilfella. Listinn hér að neðan sínir 10 efstu bílamerkin og einnig þau 10 neðstu. Þar sést að ekki er endilega víst að kaup á dýrum bíl tryggi lága bilanatíðni vélar hans. Bestu vélarnar 1. Honda 0,29 % 2. Toyota 0,58 % 3. Mercedes Benz 0,84 % 4. Volvo 0,90 % 5. Jaguar 0,98 % 6. Lexus 0,99 % 7. Fiat 1,17 % 8. Ford 1,25 % 9. Nissan 1,32 % 10. Land Rover 1,38 % Verstu vélarnar 1. MG Rover 7,88 % 2. Audi 3,71 % 3. Mini 2,51 % 4. Saab 2,49 % 5. Vauxhall (Opel) 2,46 % 6. Peugeot 2,26 % 7. BMW 2,20 % 8. Renault 2,13 % 9. Volkswagen 1,91 % 10. Mitsubishi 1,70 %

Bílar
Fréttamynd

Af hverju seljast ekki dísilbílar í Bandaríkjunum?

Bandaríkin ættu að vera heimavígi díselolíunnar. Dísilvélar ættu einmitt að henta Bandaríkjamönnum best, því þar aka bíleigendur langar vegalengdir eftir beinum og breiðum hraðbrautum og við slíkar aðstæður eru dísilvélar á heimavelli, á lágum snúningi og eyða litlu. En af hverju keyra svo til allir íbúar Bandaríkjanna á bensínbílum? Skýringin er sú að fáar eldsneytisstöðvar hafa gegnum tíðina boðið dísilolíu og fyrir vikið hefur engin verðsamkeppni myndast á dísilolíu og það hefur leitt til frjálslegrar og hressilegrar álagningar á henni. Nokkuð fáránleg skýring, en sönn engu að síður. Þessa skýringu mátti finna í mörgum löndum Evrópu fyrir um 30 árum síðan og því má segja að Bandaríkjamenn séu þremur áratugum á eftir tímanum hvað þetta varðar. Framboð á dísilolíu hefur aukist þar undanfarið eftir að þeir gerðu sér grein fyrir kostum dísilvéla í fólksbílum en mjög langt er í land að þeir jafni það hlutfall sem er í Evrópu milli dísilbíla og bensínbíla.

Bílar
Fréttamynd

Dúndrandi bílasala í Bandaríkjunum

Sala bíla í janúar í Bandaríkjunum bendir til þess að heildarsala ársins stigi úr 14,5 í fyrra í 15,5 milljónir bíla í ár. Flestir af stærstu bílaframleiðendunum hafa tilkynnt um tveggja stafa prósentuaukningu í sölu janúarmánaðar frá fyrra ári. Hjá Chrysler jókst salan um 37%, hjá Toyota um 27%, Ford um 22% og General Motors um 16%. Hjá Volkswagen var vöxturinn ekki eins mikill, eða 7% en 32% hjá undirfyrirtækinu Porsche. Sumir bílaframleiðendur eru ekki búnir að gefa upp sölu sína, eins og Honda, en búist er við jafn jákvæðum tölum þar. Allt stefnir í söluaukningu bíla í Bandaríkjunum í fjórða árið í röð. Fellibylurinn Sandy hafði jákvæð áhrif á söluna í janúar, en ennþá eru tryggingafélög að bæta tjónaþolum bíla sína eftir storminn og margir nýir bílar komið á götuna þess vegna.

Bílar
Fréttamynd

Nýr Toyota RAV4 í mars

Toyota RAV4 er einn mest seldi jepplingur á Íslandi og eflaust margir kátir eigendur þess bíls sem bíða spenntir eftir nýrri fjórðu kynslóð bílsins sem kemur til landsins í mars. Oft hefur RAV4 bíll Toyota verið talinn talinn sá bíll er ruddi brautina fyrir jepplinga, en sá flokkur bíla er sá er hraðast vex í heiminum nú. Bíllinn verður í boði hér á landi með 2,0 lítra fjögurra strokka bensínvél og 2,2 lítra dísilvél. Hingað til hefur RAV4 helst selst með bensínvélinni hérlendis, en breyting gæti orðið á því með komu góðrar dísilvélar nú. Bíllinn verður lægri til þaksins og allur sportlegri og með minni veghæð að uauki. Ein mest afgerandi breytingin á bílnum er að varadekkið á afturhleranum hverfur og hlerinn mun ekki opnast til hliðar heldur upp. Mikil breyting er á innanrými bílsins og fullyrða má að hann er mun fagurri en forverinn. Sex tommu upplýsingaskjár með innbyggðri bakkmyndavél verður staðalbúnaður í bílnum. Bíllinn þykir einstaklega hljóðlátur í akstri og mikið hefur verið lagt í hljóðeinangrun hans.

Bílar
Fréttamynd

Heppnasti mótorhjólamaður í heimi

Það er ekki heyglum hent að vera á mótorhjóli í umferðinni og aðrir ökumenn taka síður eftir þeim en bílum. Það ætti þó að vera hættulítið að bíða eftir grænu ljósi við gatnamót, en það getur líka verið hættulegt eins og sést á þessu myndskeiði frá Kína. Þar kemur stór flutningabíll á of miklum hraða, veltur og svo virðist sem maður á mótorhjóli ætli að verða undir honum, en betur fór en á horfðist þó svo hjól mannsins hafi fengið að kenna á því og hann sjálfur bjargað eigin skinni á tveimur jafnfljótum. Eins gott að vera vakandi í umferðinni þar.

Bílar
Fréttamynd

Stórsýning á Kia bílum

Bílaumboðið Askja verður með stórsýningu á Kia bílum á morgun laugardag 2. febrúar kl. 12-16. Öll lína Kia bíla verður sýnd á sýningunni og má þar nefna Sorento, Sportage, Optima, cee'd, Rio og Picanto. Kia bílarnir eru þeir einu á markaðnum sem eru með 7 ára ábyrgð frá framleiðanda. Af tilefni sýningarinnar verður boðið upp á fría 7 punkta vetrarskoðun á öllum Kia bílum og þá verða einnig sértilboð á ýmsum aukabúnaði. Boðið verður upp á reynsluakstur á öllum nýjum Kia bílum. Allir þeir sem reynsluaka bíl fara í pott og heppnir gestir fá 2 leikhúsmiða í verðlaun. Kaffihús verður á staðnum og verður boðið upp á vöfflur og meðlæti, ásamt gosi, ís og Svala fyrir börnin. Auk stórsýningarinnar í Öskju verða nýir Kia bíla sýndir nk. laugardag kl. 12-16 hjá sölumönnum Kia um allt land.

Bílar
Fréttamynd

Nýr forstjóri Opel

General Motors, eigandi Opel, hefur ráðið Karl-Thomas Neumann sem forstjóra fyrirtækisins og tekur hann til starfa 1. mars. Karl-Thomas Neumann, sem er 51 árs gamall er einn af toppstjórnendum Volkswagen og hefur leitt mikinn vöxt þeirra í Kína. Við miklar hrókeringar hjá Volkswagen í stjórnendateymi þess seint á síðasta ári var litið framhjá Karl-Thomas Neumann og á það vafalaust hlut að máli við brotthvarf hans nú til Opel. Engu að síður var hann oft nefndur sem líklegur eftirmaður núverandi forstjóra Volkswagen, Martin Winterkorn, en það verður ekki í bráð. Allt frá því General Motors rak Karl-Friedrich Stracke úr forstjórastól Opel í júlí hefur leitin að nýjum forstjóra staðið yfir. Hlutverk nýja forstjórans verður að ná rekstri Opel á núllið árið 2015, en mikið tap hefur verið á rekstrinum undanfarin ár. Það verkefni mun innihalda lokanir á einhverjum af verksmiðjum Opel og erfiða samninga við verkalýðsfélög starfsfólks í þeim. Opel seldi 16% færri bíla í fyrra en árið 2011, eða alls 834.790 bíla. Það er verulega undir minnkuninni í Evrópu allri, sem nam 7,8%. Spáð er enn minni bílasölu í Evrópu í ár og sjötta árinu í röð sem bílasala minnkar í Evrópu. Þrátt fyrir það ætlar Opel að kynna 23 breytta eða nýja bíla til og með árinu 2016.

Bílar
Fréttamynd

Nýr þriggja strokka Hyundai i20

Hyundai i20 bíllinn hefur nú fengið nýja og snaggaralega þriggja strokka dísilvél, sem er spör á sopann. Nýja vélin er aðeins 1,1 lítri að rúmmáli, skilar 75 hestöflum með hjálp túrbínu og 180 Nm í togi. Hún eyðir aðeins 3,8 lítrum í blönduðum akstri og 3,4 lítrum í langkeyrslu. Þessi nýi Hyundai i20 er með breytta innréttingu og hönnun framendans hefur nú fengið svip annara Hyundai bíla. Hyundai i20 með þessari nýju vél kostar nú 2.790.000 kr hjá söluaðila Hyundai á Íslandi, BL. Hann verður frumsýndur hjá Hyundai umboðinu í Kauptúni í Garðabæ um helgina. Þar verður einnig til sýnis ný útgáfa af Hyundai i30 wagon sem ekki hefur sést áður. Hægt verður að reynsluaka báðum bílunum á laugardaginn milli kl. 12 og 16.

Bílar
Fréttamynd

Skyactive kerfi Mazda það grænasta

Hinar ýmsu stofnanir og tímariti keppast við að verðlauna umhverfisvæna bíla framleiðendanna. Bílar eins og Chevrolet Volt, Nissan Leaf og Ford C-Max Energy hafa hlotið slík verðlaun. Tímaritið Green Car Journal horfir á umhverfismálin í víðari skilningi og verðlaunaði fyrir skömmu þá heildarlausn framleiðendanna sem skilar mestum árangri í umhverfisvernd. Þau verðlaun hlaut Skyactive kerfi Mazda nú. Í því felast ekki bara einstaklega eyðslugrannar Skyactive vélar Mazda heldur einnig þróun léttbyggðra bíla með lága loftmótsstöðu. Mazda hafði undir marga verðuga andstæðinga í þessu vali, meðal annars vélbúnað Fisker Karma og Tesla rafbílaframleiðandanna, Ford Energi plug-in hybrid kerfið, Fiat Multiair, Honda Eco Assist, Toyota RAV4 EV bílana og Nissan Easy-Fill Tire Alert, sem hjálpar ökumönnum að hafa ávallt réttan þrýsting í hjólbörðunum. Green Car Journal veitir einnig verðlaun í nóvember ár hvert fyrir umhverfisvænansta bíla ársins og í fyrra hlaut Ford Fusion þau verðlaun.

Bílar
Fréttamynd

Fyrirsæta og sigurvegari í rallakstri

Inessa Tushkanova er engin venjuleg kona. Á milli þess sem hún vinnur rallýkeppnir situr hún fyrir nakin á forsíðu Playboy. Hún keppir reyndar ekki í heimsbikarnum í rallakstri en hefur unnið margar keppnir sem eru örlítið minni í sniðum og er brátt að hefja keppni í Finnish Rally Championship. Hún keppir á Mitsubishi Lancer Evo IX bíl, en á marga aðra frambærilega bíla í bílskúr sínum, svo sem Subaru WRX STI, BMW M6 með 10 strokka vél og nokkra aðra Lancer Evo bíla. Inessa er fædd í Úkraíunu en býr nú í Rússlandi, þar sem tækifærin eru stærri bæði hvað varðar rallakstur og fyrirsætustörf. Inessa hefur gengið til liðs við rallökuliðið PrintSport Racing sem vann finnsku rallmótaröðina á síðasta ári og því ætti hún að vera í góðum höndum. Spurð að því af hverju hún situr fyrir í Playboy á milli keppna sagði Inessa. "Engum líkar við kvenmenn í ökusporti, sem er svo til einokað af karlmönnum, vegna þess að kvenfólk á auðveldara með að fá kostunaraðila. Playboy hjálpar mér einmitt til þess" Allt fyrir betri árangur í uppáhaldsiðju hennar, rallýið. Það er greinilega ekki nóg með að Inessa sé góður ökumaður og gullfalleg fyrirsæta, heldur hefur hún nef fyrir viðskiptum. Markmið hennar eru heldur ekkert smá í sniðum, hún stefnir á að verða heimsmeistari í rallakstri og víst er að mörgum þætti ekkert leiðinlegt að hafa svo snoppufríðan meistara reglulega á síðum blaðanna.

Bílar
Fréttamynd

Suzuki Swift klífur 3ja milljóna múrinn

Japanski bílaframleiðandinn Suzuki Motor náði þeim merka áfanga fyrr í þessum mánuði að samanlögð sala á Suzuki Swift fór yfir þrjár milljónir eintaka frá markaðssetningu á bílnum. Suzuki hefur í gegnum tíðina ekki síst sérhæft sig í framleiðslu og sölu á litlum og sportlegum fólksbílum og er Swift ágætt dæmi um þá áherslu. Bíllinn var fyrst framleiddur og seldur í Japan í nóvember 2004 en hann var engu að síður hannaður og þróaður sem bíll fyrir alla heimsbyggðina. Árið 2005 hófst sala á bílnum í Ungverjalandi, Indlandi og Kína. Nú er bíllinn fáanlegur í yfir 120 löndum víðs vegar um heiminn. Swift hefur unnið til fjölda verðlauna. Hann var valinn bíll ársins af blaðamönnum í Japan 2006 og 2011 og hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar í Evrópu, Indlandi og víðar. Suzuki Swift varð fyrir valinu sem Bíll ársins 2006 í árlegu kjöri Bandalags íslenskra bílablaðamanna.

Bílar
Fréttamynd

Lokuðu hraðbraut til að drifta

Það er í sjálfu sér hættulaust á rýmri svæðum fyrir bíladellukalla að búa til dálítinn gúmmíreyk með því að "drifta" afturhjóladrifnum bílum sínum. Verra er þegar notaðar eru fjölfarnari hraðbrautir til þess arna. En það var einmitt það sem nokkrir ungir menn gerðu í Orange sýslu í Kaliforníu um daginn við lítinn fögnuð lögreglyfirvalda í sýslunni. Það sem meira var, þeir lokuð hraðbrautinni, sem er ekki smásniðnari en sex akreinar. Á meðfylgjandi myndbandi sést til ungmennanna á Ford Mustang, Chevrolet Camaro og nokkrum Nissan 240SX bílum leika sér að búa til "kleinuhringi" á hraðbrautinni. Örugglega gaman hjá þeim en síður fyrir þá sem þurftu að bíða eftir því að þeir lykju sér af.

Bílar
Fréttamynd

Mercedes Benz auglýsing tekin á Íslandi

Nýleg auglýsing Mercedes Benz vegna CLA bíls Benz var tekin hér á landi í fyrra og er mjög forvitnileg áhorfs. Myndskeiðið sem hér má sjá er ríflega þriggja mínútna langt og í því er víða farið um landið. Meðal annars er tekið upp í Mývatnssvæðið, á Nesjavallaleið, við Bláa lónið, við lónið undir Eyjafjöllum og endar myndskeiðið við glæsilegt einbýlishús gegnt Akureyri, hinu megin Eyjafjarðarins. Í auglýsingunni kemur mikið við sögu Husky hundur sem er í hlutverki úlfs eftir ágæta litameðhöndlun. Það örlar aðeins á þjóðarstolti að horfa á glæsikerruna renna um vegina í fagurri íslenskri náttúru. Þegar upptökurnar stóðu yfir á Íslandi höfðu engar myndir sést af þessum nýja bíl Benz. Naskur ljósmyndari náði hinsvegar fyrstu ljósmyndunum af bílnum við Bláa lónið og fóru þær eins og eldur í sinu um netheima.

Bílar
Fréttamynd

Renault kynnir jeppling

Franski bílasmiðurinn Renault hefur ekki tekið neinn þátt í samkeppninni á sívaxandi markaði fyrir jepplinga en nú skal gera bragabót á því. Renault ætlar að kynna til leiks þennan jeppling á bílasýningunni í Genf í mars og hefur hann fengið nafnið Captur. Hann verður smíðaður á sama undirvagni og Renault Clio fólksbíllinn. Vélarkostirnir í Captur verða líklega þeir sömu og eru í boði í Clio, eða 0,9 lítra og 1,2 lítra bensínvélar með túrbínu og 1,5 lítra dísilvél. Sex gíra sjálfskipting með tvöfaldri kúplingu tengir síðan vélina við drifrásina. Bíllinn verður smíðaður í Valladolid á Spáni. Það er vonandi að þessi knái jepplingur hjálpi Renault að bæta afkomuna, sem hefur ekki verið góð undanfarin misseri.

Bílar
Fréttamynd

Rafmagnsbílar á útsölu

Þeir bílaframleiðendur sem selja rafmagnsbíla eiga flestir í vanda að finna kaupendur. Ford er einn þeirra en fyrirtækið hefur boðið Ford Focus rafmagnsbíl í nokkurn tíma. Ekki hefur betur tekist til við sölu hans en svo að heildarsalan í fyrra var einungis 685 bílar. Ford hefur nú brugðist við því með því að lækka bílinn um 4.000 dollara. Þó virðist enn hagstæðara að taka hann á rekstrarleigu til þriggja ára því leigan hefur lækkað sem nemur 10.750 dollurum. Þannig má leigja hann fyrir 285 dollara á mánuði, eða 36.700 kr. og aka honum allt að 17.000 kílómetra á ári. Nissan hefur átt í sama vanda með Leaf rafmagnsbíl sinn og hefur boðað 18% lækkun á 2013 árgerð hans. Hann mun kosta 28.800 dollara, eða 3,7 milljónir króna. Það er ekki hátt verð fyrir rafmagnsbíl og einsýnt að Nissan græðir ekki mikið á sölu hvers bíls heldur tapar líklega á hverju seldu eintaki.

Bílar
Fréttamynd

Styttist í eins líters bíl Volkswagen

Í mörg ár hefur Volkswagen unnið að þróun bíls sem ekki á að eyða meira en einum lítra af eldsneyti á hverja hundrað kílómetra. Svo langt er smíði hans komin að verið er að prófa bílinn í miklum kulda og snjó. Prófanirnar eiga að sjálfsögðu að vera leynilegar en eins og ávallt tekst einhverjum ljósmyndurum að ná myndum af gripnum. Þar sést í fyrsta skipti ljósabúnaður hans að framan. Heiti bílsins er Volkswagen XL1. Hann er tveggja dyra bíll með tveggja strokka 0,8 l. dísilvél, 48 hestafla og rafmótora sem skila aukalega 27 hestöflum. Skiptingin er 7 gíra DSG sjálfskipting með tveimur kúplingum. Loftmótsstaða bílsins er sú lægsta sem um getur í bíl eða 0.186 Cd. Til að minnka viðnám er bíllinn á afar mjóum dekkjum og hluti af lágri loftmótsstöðu bílsins skýrist af því að bæði aftur- og framhjólin eru inndregin frá brettunum, eins og sést á myndinni. Bíllinn lítur út fyrir að vera nokkuð stór en raunveruleikinn er annar, hann er svipað langur og breiður og Volkswagen Polo. Hann er einstaklega léttur enda allt verið gert til að hafa hann eins léttan og kostur er svo hann nái takmarkinu um eins lítra eyðslu. Hann er 796 kíló og erfitt að finna léttari bíl. Mjög misvísandi fréttir eru af getu bílsins og herma sumar að hann sé heilar 32 sekúndur að ná 100 km hraða meðan aðrar sögur segja 11,9 sékúndur. Fréttir frá Volkswagen herma að XL1 bíllinn muni koma til valdra söluaðila í takmörkuðu magni á þessu ári. Því er ekki langt að bíða þessa tímamótabíls, sem ekki myndi kosta meira að aka til Akureyrar en 1.000 krónur.

Bílar
Fréttamynd

Nýr Kia til höfuðs Nissan Juke

Kia mun kynna nýjan og sportlegan bíl á bílasýningunni í Genf í byrjun mars og lofa myndir af honum góðu. Kia hefur sjálft látið þær í té svona til auka aðeins spennuna fyrir honum. Þessum bíl er meðal annars ætlað það hlutverk að keppa við Nissan Juke jepplinginn og er ekki ósvipað form á þeim tveimur. Bíllinn virðist liggja einhversstaðar á milli stallbaks og jepplings og útlitið hans er skemmtilega djarft og framsækið. Fleiri upplýsingar um bílinn, svo sem um vélbúnað, liggja ekki fyrir og bíður sýningarinnar í Genf. Á myndunum að dæma er enginn B-póstur í bílnum fyrir aftan hurðirnar og afar smár gluggi þar fyrir aftan, eins og títt er með sportbíla. Afturendi bílsins er ári bólginn kringum afturhjólin og skottlínan há. Grillið á bílnum er talsvert frábrugðið öðrum Kia bílum. Nýrnalaga formið heldur sér þó en er mjög teygt og mjótt. Í heildina má segja að erfitt sé að greina að þetta sé bíll frá Kia, en gefur ef til vill tóninn um það sem frá kóreska framleiðandanum kemur á næstunni. Það væri ekki til tjóns ef marka má myndirnar.

Bílar
Fréttamynd

Laglegri og betri Auris

Ný kynslóð Toyota Auris var kynnt blaðamönnum fyrir stuttu í strandbænum Cascaís suður af Lissabon, höfuðborg Portúgals. Toyota Auris er í C-stærðarflokki og á hann 3 minni bræður af Toyota gerð, IQ, Aygo og Yaris, en næsti bíll fyrir ofan hann að stærð er Corolla. Um talsvert breyttan bíl er að ræða og mun fallegri en síðustu kynslóð hans. Toyota hefur sagst ætla að hverfa frá afturhaldssamri og átakalítilli hönnun á bílum sínum og gerast djarfari og marka skarpari línur. Það hefur að nokkru tekist með ytra útlit Auris, hann er talsvert fríðari en djörfung er kannski ekki fyrsta orðið sem kemur í hugann þegar hann er barinn augum. Auris hefur verið vinsæll bíll frá því hann fyrst leit dagsljósið árið 2006 og ári seinna í Evrópu. Hann hefur alls selst í 5 milljónum eintaka og í fyrra seldust 189 eintök hans hér á landi, sýnu fleiri með bensínvél en díselvél. Það gæti breyst í ár. Góð dísilvél en Hybrid öflugastur Sjaldgæft er að þrjár vélargerðir séu í boði í prufunum en Auris var prófaður með bensínvél, díselvél og í Hybrid útfærslu. Tvær þeirra líkuðu mjög vel en ein síður. Dísilvélin er 1,4 lítra og skilar 90 hestöflum. Hún togar mjög vel og aflið er merkilega gott fyrir ekki stærri vél. Bensínbíllinn var með 1,33 lítra og 100 hestafla vél. Með henni er bíllinn ansi latur og uppfyllir seint kröfur ökumanna sem ekki vilja ávallt silast áfram í umferðinni. Aflmesti bíllinn var Hybrid útgáfa Auris með 1,8 l. bensínvél með tvinntækni sem skilar 136 hestöflum.Það þarf þó ekki að þýða að hann sé besti akstursbíllinn því þyngd hans dregur úr hæfninni og dísilútgáfan með sprækri en lítilli vél er sá liprasti þeirra að mati greinarskrifara. Hybrid bíllinn er með uppgefna fáheyrða eyðslu uppá 2,1 l. á hverja hundrað kílómetra. Leit er að öðru eins. Bíllinn með dísilvélinni nýðist ekki heldur beint á náttúrunni því uppgefin meðaleyðsla hans er 3,8 lítrar, en 5,4 l. með litlu bensínvélinni. Bensínbíllinn er líka umtalsvert ódýrastur þeirra og munar 300.000 krónum á honum og ódýrasta dísilbílnum. Lipur akstursbíll sem hefur batnað Talsverðu hefur verið breytt frá fyrri kynslóð sem eykur aksturshæfni hans. Bíllinn er 50 kg léttari, hefur lækkað um 5,5 cm og sætisstaðan um 4 cm. Því er þyngdarpunkturinn umtalsvert neðar. Hann er með nýjan undirvagn og fjöðrun, er allur stífari og betur hljóðeinangraður. Fyrir vikið er bíllinn mun betri og liprari í akstri og var þó forverinn enginn stirðbusi. Ánægjulegt var að henda honum eftir oft á tíðum hlykkjóttum vegum smábæja og vogskorinni ströndinni. Auris er ferlega einfaldur og ljúfur í keyrslu og grær utanum ökumann. Ekki versnar það þegar komið er á meiri hraðakstursvegi og eru fáir bílar af þessari stærð eins stöðugir á vegi á dágóðri ferð. Athygli vakti einnig að bíllinn náði meira en uppgefnum hámarkshraða og fór einkar vel með það á góðum hraðakstursvegi. Ein stærsta og jákvæðasta breytingin milli kynslóða er nákvæmara stýri sem svarar ökumanni betur. Auris má bæði fá með beinskiptingu og CVT-sjálfskiptingu. Beinskiptingin er fín og lipur í notkun en ekki hefur enn tekist að gera CVT-sjálfskiptinguna nógu góða til að hún komi til greina framyfir bílinn beinskiptan. Hún hefur til dæmis þann ókost að ef þarf að flýta sér hækkar snúningurinn endalaust og hávaðinn eftir því. Viðbrögðin er oftast þau að fara af bensíngjöfinni og þá er gamanið dálítið búið. Lygilega rúmgott innanrými Að innan er Auris sniðuglega hannaður og rúmmikill. Fótarými afturí hefur lengst um 2 cm og skottið er heilir 360 lítrar, þökk sé sniðuglegri hönnun. Það á einnig við Hybrid bílinn, því batteríin sem tóku af því 120 lítra áður eru nú komin undir sætin. Innréttingin er hagnýt og hún og mælaborð ári laglegt en í heild er innréttingin í meðallagi af fegurð sökum slakari efnisnotkunar en hjá mörgum samkeppnisbílum hans. Allt er greinilega vel smíðað sem ávallt hjá Toyota, en viss hráleiki streymir frá innréttingunni sökum þessa. Taka þarf sérstaklega fram að það á ekki við Hybrid bílinn sem og dýrustu útfærslur á innréttingum hinna bílanna. Það er ekki að efa að Auris mun vegna vel sem fyrr, en hann á samt í höggi við marga ágæta bíla í sama stærðarflokki, svo sem Volkswagen Golf, Ford Focus, Kia cee´d, Hyundai i30, Mazda3, Honda Civic, Opel Astra, Renault Megane og Citroën C4, svo einhverjir séu nefndir. Kostir: Merkilega rúmur að innan Mikið bætt akstursgeta Spræk dísilvél Ókostir: Efnisnotkun í innréttingu CVT-sjálfskiptingin

Bílar
Fréttamynd

Róleg byrjun á Íslandi en kröftug í Bandaríkjunum

Nýja árið hefst ekki á samskonar hátt í bílasölu hérlendis og í Bandaríkjunum. Fram til 25. janúar hafa aðeins selst 385 fólksbílar hér og þó að salan færi eitthvað yfir 400 bíla í mánuðinum mun salan ekki ná meðalsölu hvers mánaðar í fyrra. Í fyrra seldust um 7.900 bílar, eða um 660 bílar á mánuði. Hafa verður þó í huga að sala á bílaleigubílum er líklega í lágmarki í byrjun hvers árs, en tekur stökk á vorin. Í Bandaríkjunum er salan 8% meiri en í janúar í fyrra, en bílasala þar vestanhafs í fyrra var mjög góð og þar seldust 14,5 milljónir bíla. Ef salan nú heldur áfram sem horfir gæti hún náð yfir 15 milljónum bíla. Því var reyndar spáð í byrjun árs. Í Bandaríkjunum eru fyrstu tveir mánuðir ársins oftast þeir slökustu í sölu, en vöxturinn frá því í fyrra samt umtalsverður. Vestanhafs hefur Ford og Chrysler gengið mjög vel það sem af er árs og búist við yfir 16% söluaukningu hjá þeim báðum er núverandi mánuður verður gerður upp.

Bílar
Fréttamynd

Kia cee´d GT - 204 hestöfl

Á bílasýningunni í Genf í mars mun Kia kynna kraftaútfærslu af magnsölubílnum Kia cee´d, sem selst hefur ágætlega hér á landi. Hann er með 1,6 lítra bensínvél með túrbínu og 204 hestöfl. Hann skartar auk þess 18 tommu álfelgum, Recaro sætum, fótstigum úr áli, LED ljósum, tvöföldu pústkerfi og aðeins 2 hurðum eins og sönnum sportbíl sæmir. Kia cee´d GT verður innan við 8 sekúndur í hundraðið. Bíllinn er talsvert frábruginn venjulegum Kia cee´e að ytra útliti, en hann var teiknaður í hönnunarstúdíói Kia í Frankfurt í Þýskalndi og aðalhönnuður hans eins og með aðra Kia bíla var Peter Schreyer. Bíllinn verður hinsvegar smíðaður í Slóvakíu og framleiðslan hefst í maí.

Bílar