Njarðvík burstaði Keflavík Njarðvíkingar styrktu stöðu sína á toppi úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í kvöld, þegar liðið burstaði granna sína Keflvíkinga 108-84 í Njarðvík í kvöld. Keflvíkingar byrjuðu betur í leiknum og höfðu ágæta forystu eftir fyrsta leikhlutann, en eftir það tóku heimamenn við sér og skutu granna sína í kaf. Sport 30. desember 2005 21:16
Fyrsti sigur Hattar í úrvalsdeild Höttur frá Egilsstöðum vann í kvöld sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni í körfubolta í vetur þegar liðið skellti Haukum 85-76 í Hafnarfirði. KR-ingar lögðu Grindvíkinga í fjörugum og spennandi leik 82-81. Hamar/Selfoss tapaði fyrir ÍR 95-72, Skallagrímur sigraði Fjölni 99-81 og loks bar Snæfell sigurorð af Þór á Akureyri 74-72. Sport 29. desember 2005 21:15
Fimm leikir í kvöld Í kvöld fara fram fimm leikir í úrvalsdeild karla í körfubolta og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Stórleikur kvöldsins er án efa viðureign KR og Grindavíkur í Vesturbænum. Sport 29. desember 2005 16:30
Grindavík lagði Skallagrím Grindvíkingar lögðu Skallagrím á heimavelli sínum í Grindavík í dag 92-89. Bandaríkjamaðurinn Jeremiah Johnson var stigahæstur í liði heimamanna með 30 stig, en Jovan Zdravevski skoraði 23 stig fyrir gestina. Þetta var því góður dagur í Grindavík, því fyrr um daginn vann kvennaliðið góðan sigur á grönnum sínum úr Keflavík. Sport 17. desember 2005 18:00
Njarðvík lagði Fjölni Njarðvíkingar lögðu Fjölni í Grafarvogi í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld í fjörugum og skemmtilegum leik 90-77. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 30 stig, þar af 23 í fyrri hálfleik, Friðrik Stefánsson skoraði 26 stig og Brenton Birmingham var með 20. Nemanja Sovic skoraði mest hjá Fjölni, 27 stig og Fred Hooks bætti við 22 stigum. Sport 15. desember 2005 20:47
Fyrsta tap Njarðvíkinga Njarðvíkingar töpuðu fyrsta leik sínum í úrvalsdeild karla í vetur þegar liðið lá á heimavelli fyrir grönnum sínum úr Grindavík 105-106. Keflvíkingar unnu góðan sigur á Fjölni í Grafarvogi 97-93, ÍR lagði Hauka 77-75, Hamar/Selfoss lagði Þór 89-88, KR sigraði Snæfell 74-70 og Skallagrímur burstaði Hött 110-77. Sport 4. desember 2005 21:30
Fyrsti sigur Hauka Haukar unnu sinn fyrsta leik í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld, þegar liðið sigraði Hamar/Selfoss á útivelli 92-87. Njarðvíkingar eru enn ósigraðir eftir að þeir völtuðu yfir Hött fyrir austan 102-66 og Keflvíkingar halda enn pressu á granna sína með auðveldum sigri gegn Þór 83-61. KR skellti ÍR 84-75 og Grindavík lagði Fjölni 98-83. Loks vann Snæfell granna sína í Skallagrími 75-74 í hörkuleik. Sport 1. desember 2005 21:15
Kristleifur tekur við Hetti Í dag var tilkynnt að Kristleifur Andrésson hefði verið ráðinn aðalþjálfari úrvalsdeildarliðs Hattar, en hann hefur séð um þjálfun liðsins síðan Kirk Baker sagði starfi sínu lausu á dögunum. Kristleifur er öllum hnútum kunnugur hjá Hetti, enda þjálfaði hann liðið veturinn 2003-04. Sport 29. nóvember 2005 17:00
Enn vinna Njarðvíkingar Fimm leikir fóru fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Njarðvíkingar halda efsta sætinu í deildinni eftir sigur á Snæfelli 103-78 í kvöld og því hefur liðið unnið sjö fyrstu leiki sína. Þá unnu Keflvíkingar góðan sigur á grönnum sínum í Grindavík 108-101. Sport 24. nóvember 2005 20:30
Þór sigraði KR Þórsarar unnu góðan sigur á KR í Iceland-Express deildinni í körfubolta karla í kvöld 62-57, en leiknum hafði áður verið frestað vegna leka í þaki íþróttahússins fyrir norðan. Sport 15. nóvember 2005 21:30
Þór tekur á móti KR á Akureyri Leikur Þórs og KR í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, sem fara átti fram um helgina, verður á dagskrá klukkan 19:15 í kvöld. Fresta þurfti leiknum vegna leka í íþróttahúsinu á Akureyri, en nú hefur það verið lagað og því getur leikurinn farið fram í kvöld. Sport 15. nóvember 2005 17:30
Aftur frestun vegna leka Ekkert varð af leik Þórs og KR í Iceland-Express deildinni í körfubolta sem átti að fara fram í gærkvöld vegna leka á þaki íþróttahallarinnar á Akureyri. Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem að fresta þarf leik norðan heiða vegna leka í íþróttahúsi en í síðustu viku fóru leikmenn Keflavíkur í fýluferð til Egilsstaða þar sem leikurinn gat ekki farið fram vegna vatnlags á gólfi íþróttahússins. Sport 14. nóvember 2005 06:00
Njarðvík með fullt hús stiga Fimm leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Njarðvíkingar eru enn með fullt hús stiga eftir 6 leiki með 11 stiga útisigri á ÍR, 70-81. Í Stykkishólmi fóru heimamenn í Snæfelli hamförum og völtuðu yfir Fjölni með 36 stiga sigri, 130-94. Í Hverargerði steinlágu heimamenn í Hamri/Selfossi fyrir Skallagrími, 75-109 og í Grindavík unnu heimamenn 108-70 sigur á Hetti. Sport 13. nóvember 2005 22:09
Leik Þórs og KR frestað vegna leka Leik Þórs Akureyri og KR sem fram átti að fara í kvöld í Iceland Express deild karla í körfubolta hefur verið frestað vegna leka í íþróttahúsinu á Akureyri. Leikurinn hefur verið settur á á þriðjudagskvöldið 15. nóvember nk. kl. 19:15. Fimm leikir eru á dagskrá deildarinnar í kvöld og hefjast þeir allir kl. 19:15. Sport 13. nóvember 2005 17:34
Njarðvíkingar völtuðu yfir Hamar/Selfoss Fimm leikir voru á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Njarðvíkingar völtuðu yfir Hamar/Selfoss 108-68, Fjölnir sigraði ÍR 98-74, Skallagrímur vann Þór 91-65, Grindavík vann Snæfell 95-90 og KR sigraði Hauka 99-80. Leik Hattar og Keflavíkur var frestað vegna leka í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Sport 10. nóvember 2005 21:00
Fyrsta tap Grindvíkinga Nokkrir leikir voru á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og þá var einn leikur í kvennaflokki, þar sem Haukastúlkur skelltu Íslandsmeisturum Keflavíkur í Hafnarfirði, 66-48. Sport 31. október 2005 06:00
Heil umferð í kvöld Heil umferð er á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld og hefjast allir leikirnir klukkan 19.15. Þrjú lið eru taplaus fyrir leiki kvöldsins, topplið Grindavíkur sem heimsækir ÍR, Njarðvík í 2. sæti sem heimsækir Þór á Akureyri og Keflavík í 3. sæti sem tekur á móti KR. Sport 30. október 2005 14:03
Suðurnesjaliðin taplaus Grindavík og Njarðvík eru enn taplaus eftir leiki kvöldsins í Iceland Express-deild karla. Grindavík valtaði yfir Hamar/Selfoss 114-84 og Njarðvík vann nauman sigur á Haukum í Njarðvík 78-74. Sport 27. október 2005 21:00
Fimm leikir í kvöld Þriðja umferðin í úrvalsdeild karla í körfuknattleik hefst í kvöld með fimm leikjum. Grindavík og Hamar/Selfoss mætast í Grindavík, en bæði þessi lið hafa unnið báða leiki sína í deildinni. Njarðvíkingar eru einnig taplausir, en þeir taka á móti Haukum á heimavelli sínum. Sport 27. október 2005 18:00