Selenskí tilbúinn að vinna með Trump Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir það gæti orðið erfitt að vinna með Donald Trump, verði hann endurkjörinn forseti Bandaríkjanna, en hann óttist ekki erfiði. Hann kveðst tilbúinn til að vinna með hverjum sem er við völd í Bandaríkjunum. Erlent 18. júlí 2024 23:52
Fyrsta ræða Trumps eftir banatilræðið Landsfundur Repúblikana stendur nú yfir í Milwaukee í Wisconsin, og mikil spenna er í loftinu fyrir ræðu Donalds Trumps sem hann skrifaði upp á nýtt eftir banatilræðið. Búist er við því að ræðan hefjist um klukkan tvö í nótt á íslenskum tíma. Erlent 18. júlí 2024 23:07
Óhugnanleg færsla Crooks í aðdraganda árásarinnar sennilega fölsuð Greint var frá því fyrr í dag að Thomas Matthew Crooks, maðurinn sem reyndi að skjóta Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta um síðustu helgi hefði skrifað færslu sem virðist, eftir á að hyggja, gefa árásina til kynna. Núna er hins vegar talið að færslan sé fölsuð. Erlent 18. júlí 2024 15:00
Myndir: Gestir á landsþingi Repúblikana skarta sárabindum á eyranu Landsþing Repúblikanaflokksins fer fram þessa dagana í Milwaukee í Bandaríkjunum. Donald Trump var formlega útnefndur forsetaefni flokksins og hann tilkynnti þá um varaforsetaefni sitt, hann J.D. Vance. Erlent 18. júlí 2024 14:54
Bandaríkjaforsetar skotmörk blóðugra banatilræða Athygli heimsbyggðarinnar beindist að Bandaríkjunum um helgina þegar fréttir bárust af skotárás í Pennsylvaníuríki þar sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og núverandi forsetaframbjóðandi, var skotmarkið. Trump var skotinn í eyrað en slapp nokkuð vel, en ekki mátti miklu muna á því að hann hefði hlotið bana af. Erlent 18. júlí 2024 08:01
Vissu af árásarmanninnum en týndu honum í fjöldanum Árásarmaðurinn sem særði Donald Trump og myrti áhorfanda á kosningafundi í Pannsylvaníu á laugardag datt inn á radar lífvarðaþjónustu Bandaríkjanna (e. Secret Service) um klukkustund áður en hann lét til skarar skríða. Erlent 18. júlí 2024 07:16
Hét því að endurvekja bandaríska drauminn „Ég heiti hverjum Bandaríkjamanni því, hvaða flokk sem þú kýst, að gefa allt sem ég hef. Að þjóna ykkur og gera þetta land að stað þar sem þeir draumar sem þú átt fyrir sjálfan þig, fjölskyldu þína og landið þitt geta orðið að raunveruleika.“ Erlent 18. júlí 2024 06:47
Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Erna Magnúsdóttir dósent í læknadeild Háskóla Íslands skrifaði athugasemd við færslu á Facebook þar sem hún sagðist hafa óskað þess að skotmaðurinn sem gerði banatilræði gegn Donaldi Trump forsetaframbjóðanda hefði hæft hann. Erna segist standa við orð sín en að auðvelt sé að taka þau úr samhengi. Innlent 17. júlí 2024 14:23
Biden leggur lokahönd á tillögur að breytingum á hæstarétti Joe Biden Bandaríkjaforseti er að leggja lokahönd á tillögur að breytingum á lögum um hæstarétt, sem munu meðal annars fela í takmörk á skipunartíma dómara. Erlent 17. júlí 2024 12:48
Íranir hafna aðild að banatilræðinu Íranir hafnar ásökunum bandaríska embættismanna um samsæri til að ráða Trump af dögunum. Ásakanirnar tengjast þó ekki banatilræðinu gegn Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu á laugardaginn síðasta. Íranir þvertaka fyrir aðild að því. Erlent 17. júlí 2024 08:30
Ekkert nema ást og aðdáun á landsþingi Repúblikana Nikki Haley, fyrrverandi keppinautur Donald Trump í forvali Repúblikanaflokksins fyrir foretakosningarnar í Bandaríkjunum, fór fögrum orðum um manninn þegar hún steig á svið á landsþingi flokksins í gær. Erlent 17. júlí 2024 07:51
Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Morðtilræðið gegn Donald Trump um helgina fékk mikið á kylfinginn Tiger Woods. Golf 17. júlí 2024 07:30
Valið á Vance fyrirboði einangrunarhyggju í utanríkismálum Sérfræðingar í utanríkismálum eru uggandi eftir að Donald Trump tilkynnti um val sitt á varaforsetaefni. Valið bendi til þess að einangrunarhyggja muni mögulega ráða för í utanríkispólitík Bandaríkjanna ef Trump nær kjöri. Erlent 17. júlí 2024 07:02
Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar Öryggisgæsla í kring um Donald Trump var fyrir nokkrum vikum aukin þegar bandarísk yfirvöld komust á snoðir um að yfirvöld í Íran hafi ætlað að ráða Trump af dögum. Erlent 17. júlí 2024 00:11
Tónleikaferðalagið í vaskinn eftir ummæli um Trump Tónleikaferðalag tvíeykisins Tenacious D, sem samanstendur af þeim Jack Black og Kyle Gass, er á enda eftir að sá síðarnefndi gerði grín að banatilræðinu við Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðanda. Lífið 16. júlí 2024 15:10
Vonar að árásin gegn Trump veki Bandaríkjamenn Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, segir skotárás sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hryggja sig. Erlent 16. júlí 2024 13:59
Hver er J.D. Vance? Á landsþingi Repúblikanaflokksins í Wisconsinfylki í gær var tilkynnt að J.D. Vance yrði varaforsetaefni Trumps í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Vance er ekki ýkja þekktur á heimsvísu en hefur verið þekkt stærð í bandarískum stjórnmálum síðan hann var kjörinn öldungadeildarþingmaður árið 2022, 38 ára að aldri. Erlent 16. júlí 2024 11:15
Segja Musk hyggjast styrkja Trump um 45 milljónir dala á mánuði Auðjöfurinn Elon Musk hyggst leggja kosningabaráttu Donald Trump til 45 milljónir dala á mánuði en hann hefur þegar gefið umtalsverðar upphæðir til framboðsins. Erlent 16. júlí 2024 06:32
„Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Stjórnmálafræðiprófessor segir fátt hafa getað verið Donald Trump hagfelldara en atburðarásin á kosningafundi hans á laugardag. Hann sé kominn í dauðafæri í baráttunni um forsetaembættið og hann þurfi að geiga verulega til að klúðra því. Erlent 15. júlí 2024 23:58
Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna James David Vance, tilvonandi varaforsetaefni Donalds Trump, hefur ekki verið í fylkingu forsetans fyrrverandi um langt skeið, en virðist í dag einn af hans dyggustu stuðningsmönnum. Stjórnmálamenn velta því upp hvort Vance, sem sagði meðframbjóðanda sinn asna og vítaverðan opinberlega fyrir átta árum, sé drifinn af tækifærismennsku. Erlent 15. júlí 2024 22:57
J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti og forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins tilkynnti fyrir skömmu að J.D. Vance yrði varaforsetaefni í framboði hans. James David Vance er öldungadeildarþingmaður frá Ohio og er 39 ára gamall Erlent 15. júlí 2024 19:10
Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Dómari í Flórídaríki í Bandaríkjunum hefur vísað dómsmáli á hendur Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta frá dómi. Umrætt dómsmál snýst um leyniskjöl sem Trump var sagður hafa tekið með sér úr Hvíta húsinu eftir að forsetatíð hans lauk. Erlent 15. júlí 2024 16:04
Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Donald Trump hefur enn ekki greint frá því hvern hann hyggst útnefna sem varaforseta efni sitt en hann er sagður hafa farið fram og til baka, líkt og árið 2016. Erlent 15. júlí 2024 12:12
„Ég ætti að vera dauður“ „Ég á að vera dauður,“ sagði Donald Trump við New York Post í gær, þegar hann ræddi við miðilinn um banatilræðið sem hann lifði af. Hann sagði upplifunina hafa verið „afar súrrealíska.“ Erlent 15. júlí 2024 07:58
Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði bandarísku þjóðina frá Hvíta húsinu í gærkvöldi og hvatti til samstöðu gagnvart sundrung og reiði. Hann sagði of mikinn hita og reiði einkenna pólitíska orðræðu í landinu og hvatti menn til að „kæla hana niður“. Erlent 15. júlí 2024 06:49
Ástand hinna særðu sagt stöðugt Tveir karlmenn, einn á sextugsaldri og annar á áttræðisaldri, voru fluttir á sjúkrahús alvarlega særðir eftir skotárásina á kosningafundi Donalds Trump í gær, þegar einn lést og árásarmaðurinn var skotinn til bana. Ástand mannanna tveggja er sagt stöðugt. Erlent 14. júlí 2024 23:53
Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Formaður utanríkismálanefndar segir skautun í stjórnmálum áhyggjuefni hér á landi sem og í útlöndum. Blammeringar gagnvart íslenskum ráðamönnum fyrir að óska Donald Trump góðs bata í kjölfar skotárásarinnar í gær séu í anda skautunar og hana beri að varast. Erlent 14. júlí 2024 21:53
Hinn látni slökkviliðsmaður sem fórnaði sér fyrir fjölskylduna Maðurinn sem lést í skotárás á kosningafundi Donald Trump í Pennsylvaníuríki í gær var fimmtugur að aldri og starfaði sem slökkviliðsmaður. Þegar árásarmaðurinn hóf að skjóta í átt til fjölskyldu mannsins stökk hann í veg eiginkonu sína og dóttur til að hlífa þeim við skotunum. Erlent 14. júlí 2024 20:01
Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins Erlendir miðlar greina frá því að sprengjur hafi fundist í bíl Thomasar Crooks, sem og á heimili hans. Bíllinn fannst nálægt svæðinu þar sem kosningafundurinn fór fram í gær. Erlent 14. júlí 2024 16:56
„Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ „Ég hugsa nú til ykkar, mínir kæru Bandaríkjamenn. Við höfum alltaf verið sérstakt bandalag. Núna hriktir í grunnstoðum landsins okkar, en hugrekkið og skynsemin verða að rísa og sameina okkur á ný.“ Þetta eru upphafsorð yfirlýsingar sem Melania Trump gaf frá sér í dag, í kjölfar skotárásarinnar á eiginmann hennar Donald Trump. Þar sagði hún að mikilvægt væri að sýna fólki virðingu og að ástin væri ofar öllu. Erlent 14. júlí 2024 16:36