

Eldgos á Reykjanesskaga
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það níunda varð norðan Grindavíkur í ágúst 2024.

Loforð um að taka óvissu Grindvíkinga í fangið
Til skoðunar er hjá yfirvöldum að kaupa allt húsnæði Grindvíkinga. Ríkisstjórnin hyggst ekki taka ákvörðun um það nú en heitir því að óvissa Grindvíkinga verði tekin í fang ríkisins.

Hægt á jarðskjálftavirkni
Verulega hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi. Um helgina mældust innan við helmingi færri jarðskjálftar á svæðinu heldur en dagana á undan. Land heldur þó áfram að rísa undir Svartsengi og enn er talið að til eldgoss gæti komið á næstu vikum.

Í beinni: Kynna undirbúning aðgerða vegna Grindavíkur
Forsætisráðherra, innviðaráðherra og fjármála-og efnahagsráðherra hafa boðað til blaðamannafundar um stöðu vinnu við undirbúning aðgerða fyrir íbúa Grindavíkur.

Stjórn og stjórnarandstaða samhuga vegna Grindavíkur
Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan á Alþingi eru samhuga um það að þær aðgerðir sem gripið verður til fyrir Grindvíkinga verði þverpólitískt verkefni.

Þrjú grundvallaratriði um stuðning við Grindvíkinga
Náttúruhamfarirnar í Grindavík kalla á fumlaus viðbrögð og forystu í stjórnmálum. Best færi á því að ná breiðri sátt á Alþingi um stuðning við Grindvíkinga. Pólitíkin á að marka grundvallarafstöðu um markmið og skilyrði sem slíkur stuðningur verður að uppfylla.

Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur
Forsætisráðherra, innviðaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa boðað til blaðamannafundar um stöðu vinnu við undirbúning aðgerða fyrir íbúa Grindavíkur.

Gjörbreytt staða í húsnæðismálum á Suðurnesjum sem kallar á nýja nálgun
Það er erfitt fyrir alla Íslendinga að verða vitni að þeim miklu náttúruhamförum sem orðið hafa í og við Grindavík. Öflugt og samheldið samfélag í fyrirmyndar sveitarfélagi hefur orðið fyrir miklum áföllum sem setur íbúa Grindavíkur í erfiða stöðu.

Grindvíkingar vænti þess að verða borgaðir út
Páll Valur Björnsson, kennari í Fisktækniskólanum og íbúi í Grindavík, segir að væntingar Grindvíkinga til þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin hyggst kynna í dag séu þær að íbúar verði borgaðir út og eignir þeirra keyptar.

Bláa lónið vel sótt um helgina
Bláa lónið var vel sótt um helgina að sögn framkvæmdastjóra Bláa lónsins. Lónið var opnað að nýju á laugardag eftir að hafa verið lokað í flýti sunnudaginn helgina áður þegar gaus í Grindavík.

Staða á húshitun í Grindavík í kortavefsjá
Hægt er að sjá stöðu húshitunar húsa í Grindavík í kortavefsjá. Frá þessu var greint í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra í gær. Þar segir þó að taka þurfi upplýsingunum í kortavefsjánni með fyrirvara því staðan geti breyst með litlum eða engum fyrirvara.

Áföll í Grindavík
Það var merkileg upplifun að sitja fyrir framan sjónvarpsskjáinn að kvöldi sunnudagsins 14. janúar og horfa á heimili Grindavíkur verða eldgosi að bráð.

Sprungur í Grindavík geti komið í ljós næstu mánuði og ár
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna Grindavíkur verða kynntar á morgun. Landris mælist enn í Svartsengi og land hefur ekki mælst hærra. Þyrla Landhelgisgæslunnar var notuð til að koma rafmagni á í Grindavík í dag.

Grípum alla Grindvíkinga
Við Íslendingar lifum á eyju elds og ísa. Við elskum okkar land og þekkjum þess gjafir og àskoranir. Nú á þessu ári fögnum nú 80 àra líðveldi Íslands og okkur fjölgar stöðugt, íbúafjöldinn er bráðum 400.000. Fimmtungur landsmanna eru með erlent ríkisfang en hafa kosið að setjast hér að og skipta miklu máli fyrir okkar samfélag. Sum þeirra hafa flúið erfiðar aðstæður og sjá fram á betra líf hér norður í Atlantshafi. Við reynum að taka vel á móti þeim og þeirra vinna og framlag skilar þjóðarbúinu miklu.

Segir almannavarnir fara offari og opna eigi Grindavík á ný
Stefán Kristjánsson, eigandi fiskvinnslunnar Einhamar Seafood, segir aðgerðastjórn almannavarna fara offari í lokunum í Grindavík og að opna eigi bæinn á ný.

Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir varðandi Grindavík á morgun
Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, lofar tillögum frá ríkisstjórn á morgun varðandi Grindavík. Skilaboðin til Grindvíkinga séu skýr: „Við ráðum við þetta og gerum það sem þarf.“

Pirraðir Grindvíkingar og andleg heilsa þeirra ekki góð
„Það er margt sem hefði mátt fara betur og laga“ segir formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar vegna ástandsins í bæjarfélaginu. Þá sé heilmikill pirringur á meðal Grindvíkinga og andleg heilsa íbúa ekki góð.

„Alvarlegra og langvinnara en menn gátu logið að sjálfum sér“
Framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Vísis í Grindavík segir þann tímapunkt runninn upp að meta þurfi hvort það sé þess virði að reyna að halda lífi í bænum með fyrirtækjarekstri. Banaslys og eldgos hafi gert það að verkum að algjör umbreyting hafi orðið á viðhorfi fólks til veru í bænum.

Rafmagn fór af Grindavík í nótt
Rafmagn fór af Grindavík kl. 03:30 í nótt, þegar stofnstrengur, sem fór undir hraun í eldgosi um síðustu helgi gaf sig. Hluti bæjarins er nú á varaafli.

Ekkert lát á landrisi við Svartsengi
Land við Svartsengi er komið talsvert hærra en áður hefur mælst á svæðinu. Nú þegar slétt vika er liðin frá hinu skammvinna eldgosi við Grindavík er ekkert lát á landrisinu. Búast má við nýju kvikuinnskoti og mögulegu eldgosi eftir nokkrar vikur.

Ferðamenn óhræddir við að fara í nýopnað lónið
Bláa lónið var opnað aftur í dag eftir að hafa verið lokað í flýti síðastliðinn sunnudag vegna eldgossins við Grindavík. Framkvæmdastjóri segir gleðitíðindi að starfsemi sé hafin að nýju og ferðamenn, þeir eru ánægðir.

„Ég er mest feginn að hafa keyrt yfir sprunguna en ekki labbað yfir hana“
Dekkið á vinnubíl Benedikts G. Jónssonar, pípulagningameistara, pompaði niður í holu þegar jörð gaf sig í Grindavík í dag. Benedikt var fljótur að aka upp úr holunni og sakaði engan í atvikinu.

„Nýr og breyttur veruleiki sem við ætlum að lifa með“
Bláa lónið opnaði á ný í morgun eftir vikulokun. Framkvæmdastjóri sölu- rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins.s segir enga ónotatilfinningu á meðal starfsfólks né gesta. Nýr veruleiki blasi við og ljóst að Bláa lónið muni koma til með að opna og loka á víxl næstu árin.

„Ekki í boði“ að starfsemi í Svartsengi leggist af
Bláa lónið opnar aftur í dag eftir að hafa verið rýmt síðastliðinn sunnudag, í aðdraganda eldgossins í Grindavík. Framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir að leita verði lausna fyrir fyrirtæki í Svartsengi. Það sé ekki í boði að starfsemi þeirra leggist af.

Margir Grindvíkingar í óviðunandi húsnæði eða búi við óvissu
Innviðaráðherra segir alltof marga Grindvíkinga enn í óviðunandi húsnæði eða búa við óvissu. Stjórnvöld skoði hvernig hægt sé að koma til móts við kröfur um að ríkið kaupi upp húsnæði bæjarbúa þó hann sé ekki tilbúinn að slá af byggð í Grindavík til framtíðar.

Ný sprunga opnaðist í Grindavík í dag og gosið formlega búið
Ný og djúp sprunga opnaðist í Grindavík í dag en hættumat Veðurstofunnar var fært niður þar sem eldgosi er formlega lokið. Fjöldi viðbragðsaðila var að störfum í bænum í dag og í fyrramálið opnar Bláa lónið á ný.

Skoðar hvað gæti gerst ef ríkið myndi kaupa Grindavík
Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir að ef stjórnvöld ákveði að láta hið opinbera kaupa íbúðir Grindvíkinga myndi það að öllum líkindum auka eftirspurn á íbúðamarkaði sem gæti hækkað íbúðaverð.

Hættustig fært niður á öllum svæðum
Hættustig hefur verið fært niður á öllum svæðum í nýju hættumatskorti sem birtist á vef Veðurstofu Íslands rétt í þessu.

Framlengir einnig úrræði fyrir Grindvíkinga
Landsbankinn hefur ákveðið að framlengja úrræði fyrir Grindvíkinga vegna náttúruhamfaranna sem orðið hafa á Reykjanesskaga.

Rafmagn aftur komið á Grindavík
Rafmagn er eftir komið á Grindavík eftir að hafa farið út um klukkan 7:15 í morgun vegna bilunar í stofnstreng sem liggur undir hrauni í kjölfar eldgossins um helgina.

Rafmagnslaust eftir að stofnstrengur undir hrauni gaf sig
Rafmagn fór af Grindavík á áttunda tímanum í morgun þegar stofnstrengur, sem er undir hrauni, gaf sig. Unnið er að því að koma rafmagni á bæinn.