Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Hamilton ekur betur en nokkru sinni

McLaren-ökuþórinn Lewis Hamilton segist nú aka betur en nokkru sinni þó úrslit hans úr síðustu mótum sýni það ekki. Bíllinn hefur bilað hjá Hamilton í síðustu mótum og haldið aftur af honum.

Formúla 1
Fréttamynd

Orðrómur um að Vettel fari til Ferrari

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel er vinsælasti ökuþórinn á ráslínunni þessa dagana og er í feiknarformi, búinn að vinna síðustu þrjú mót. Þess vegna hefur því verið kastað fram að Vettel gæti hugsanlega farið til Ferrari á næsta ári.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel efstur í titilbaráttunni eftir sigur í Kóreu

Heimsmeistarinn ungi, Sebastian Vettel, á Red Bull-bíl í Formúlu 1 hafði yfirburði í kóreska kappakstrinum í dag og kom fyrstur í mark og tryggði sér forystu í heimsmeistarabaráttu ökuþóra. Vettel er í kjörstöðu þegar fjögur mót eru óekin.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber stal ráspól af Vettel í Kóreu

Það var Mark Webber á Red Bull-bíl sem ók hraðast um Yeongam brautina í Kóreu í síðustu lotu tímatöku fyrir kappaksturinn þar. Hann stal ráspólnum af liðsfélaga sínum, heimsmeistaranum Sebastian Vettel, sem hafði verði lang fljótastur fyrstu tveimur lotum tímatökunnar.

Formúla 1
Fréttamynd

Red Bull-bílarnir fljótastir á æfingum í Kóreu

Þeir Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull í Formúlu 1 voru lang fljótastir á seinni æfingum keppnisliða fyrir kóreska kappaksturinn sem fram fór í nótt. Þeir óku þremur hundruðustu úr sekúntu hraðar en Fernando Alonso á Ferrari.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso segist geta aukið forystuna í Kóreu

Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari í Formúlu 1 er sjálfsöruggur og segist eiga góða möguleika á því að vinna heimsmeistaratitilinn, þrátt fyrir að keppinautar hans saxi jafnt og þétt á forskot hans í stigabaráttunni.

Formúla 1
Fréttamynd

Honda gæti snúið aftur í Formúluna

Japanski bílaframleiðandinn Honda heldur möguleikanum á endurkomu í Formúlu 1 opnum. Honda hætti í Formúlu 1 í miðju hruninu árið 2008. Ári síðar urðu leifar Honda-liðsins að heimsmeistrum.

Formúla 1
Fréttamynd

Lotus kynnir stóra tækniuppfærslu í Kóreu

Lotus-liðið ætlar gera harða atlögu að sigri í síðustu mótum ársins og ætlar að kynna stóra tækniuppfærslu í næsta Formúlu 1-kappakstri í Kóreu. Þeir segja möguleika Kimi Raikkönen á betri árangri stóraukast.

Formúla 1
Fréttamynd

Button: Grosjean þarf að taka sig á

Formúlu 1-ökumenn eru almennt ekki mjög ánægðir með framgöngu frakkans Romain Grosjean í Lotus-bíl sínum í sumar. Mark Webber sagði hann klikkaðan eftir japanska kappaksturinn og nú biður hinn kurteisi og hlédrægi Jenson Button Grosjean um að taka sig á í eitt skipti fyrir öll.

Formúla 1
Fréttamynd

Loeb tryggði sér titilinn í níunda sinn

Sebastien Loeb tryggði sér í dag níunda heimsmeistaratitil sinn í heimsmeistararallinu þegar hann lauk franska rallinu fyrstur. Enginn er jafn sigursæll og Loeb sem segist ætla að minnka við sig á næsta ári.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber segir Grosjean vera sturlaðan

Mark Webber hjá Red Bull var ekki ánægður með Romain Grosjean eftir kappaksturinn í Japan í morgun. Grosjean hélt uppteknum hætti og ók á keppinauta sína strax eftir ræsingu. Í þetta sinn varð Webber að þjást.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso: Fimm heimsmeistarakeppnir eftir

Fernando Alonso á Ferrari-bíl féll úr leik í fyrstu beygju í Japan í morgun. Hann telur hvert mót sem eftir vera einskonar heimsmeistarakeppni því nú hefur hann aðeins fjögurra stiga forystu.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel vann japanska kappaksturinn en Alonso féll úr leik

Sebastian Vettel stýrði Red Bull-bíl sínum örugglega í mark í japanska kappakstrinum á Suzuka-brautinni. Vettel ræsti af ráspól og var í forystu allan tímann. Vettel er nú aðeins fjórum stigum á eftir Fernando Alonso í heimsmeistarakeppni ökuþóra.

Formúla 1
Fréttamynd

Leob efstur í lok fyrsta dags í Frakklandi

Franski rallökuþórinn Sebastian Leob á Citroen-bíl er efstu að loknum fyrsta degi heimsmeistararallsins í Frakklandi sem fram fer um helgina. Fjórar sérleiðir voru eknar í dag en Leob getur tryggt sér níunda heimsmeistaratitilinn í röð með sigri í franska rallinu.

Formúla 1
Fréttamynd

Schumacher leggur stýrið á hilluna

Ökuþórinn Michael Schumacher hefur tilkynnt að hann muni leggja stýrið á hilluna í enda tímabilsins. Það verður í annað sinn sem Schumi hættir og að þessu sinni er ákvörðunin endanleg.

Formúla 1
Fréttamynd

Suzuka hefur framkallað stórkostleg mót

Formúla 1-sirkusinn keppir næst á Suzuka-brautinni í Japan um komandi helgi. Brautin er talin vera ein sú erfiðasta fyrir ökumenn í Formúlu 1 og hefur kappaksturinn þar af leiðandi framkallað mörg undraverð og dramatísk augnablik í sögu Formúlunnar.

Formúla 1
Fréttamynd

Sauber kannar Schumacher fyrir næstu vertíð

Ákveði Michael Schumacher ekki að draga sé í hlé öðru sinni á ferlinum í lok ársins gæti vel farið svo að hann aki fyrir Sauber-liðið á næsta ári. Yfirmenn Sauber segjast vera að athuga þennan möguleika.

Formúla 1
Fréttamynd

Button refsað í Japan

McLaren-ökuþórinn Jenson Button mun ræsa fimm sætum aftar í japanska kappakstrinum um næstu helgi en tími hans í tímatökum segir til um. McLaren þurfti að skipta um gírkassa í bíl Buttons og er honum því refsað.

Formúla 1
Fréttamynd

Senna brann á bakinu í Singapúr

Bruno Senna, ökuþór Williams-liðsins í Formúlu 1, er með brunasár á bakinu eftir kappaksturinn í Singapúr um síðustu helgi. Williams-liðið hefur staðfest að vitlausra tenginga í sæti Senna hafi orsakað brunann, ekki KERS-bilun sem kom upp í bílnum um leið.

Formúla 1
Fréttamynd

Útlitið ekki bjart fyrir franskan kappakstur

Það bendir allt til þess að Frakkar verði enn að bíða þess að geta haldið mót í Formúlu 1 á ný því ný ríkisstjórn sósíalista hefur sagst ekki ælta að veita ríkisfjármagn til mótshaldsins.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton segist hafa verið í góðum málum

Lewis Hamilton hjá McLaren segist aðeins hafa verið "á rúntinum" áður en gírkassinn í McLaren-bílnum bilaði í singapúrska kappakstrinum í gær. Gríkassavandræðin komu honum í opna skjöldu.

Formúla 1