Vettel fremstur á ráslínu eftir afburðarárangur í tímatökum Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull náði langbesta tíma í Formúlu 1 tímatökunni í Melbourne í Ástralíu í morgun. Hann varð 0.866 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren Mercedes. Formúla 1 26. mars 2011 08:08
Vettel stakk af á lokæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull var langt á undan keppinautum sínum á síðustu æfingunni fyrir tímatökuna í Melbourne í Ástralíu í nótt. Hann varð 0.8 sekúndum á undan Mark Webber á Red Bull, sem er á heimavelli. Formúla 1 26. mars 2011 04:13
Formúla 1 send út í háskerpu í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport um helgina Fyrsta Formúlu 1 mót ársins verður sent út í háskerpu á Stöð 2 Sport um helgina og tímatakan, kappaksturinn og þátturinn Endamarkið verða í opinni dagskrá. Formúla 1 25. mars 2011 14:54
Button og Hamilton á toppnum á McLaren í Melbourne McLaren ökumennirnir Jenson Button og Lewis Hamilton voru fljótastir á seinni æfingu Formúlu 1 liða í nótt, á götubrautinni í Melbourne í Ástralíu. Á fyrri æfingurnni var Mark Webber á Red Bull fljótastur á undan félaga sínum Sebastian Vettel hjá Red Bull. Formúla 1 25. mars 2011 07:29
Webber fljótastur á fyrstu æfingunni Heimamaðurinn Mark Webber á Red Bull var sneggstur um Albert Park brautina í Melboourne, á æfingu fyrir fyrsta kappakstur ársins í Ástralíu í nótt samkvæmt frétt á autosport.com. Formúla 1 25. mars 2011 04:35
Webber: Heppinn að hafa heimavöll í óútreiknanlegu móti í Melbourne Heimamaðurinn Mark Webber hjá Red Bull er á heimavelli í fyrsta Formúlu 1 móti ársins. Hann telur að keppnisáætlnir verði mikilvægar í mótum vegna nýrra reglna og búnaðs bílanna í ár, sem ökumenn hafa prófað á æfingum í vetur. Formúla 1 24. mars 2011 10:33
Vettel: Erfitt að meta styrkleika keppinautanna Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel hjá Red Bull telur að erfitt sé að meta hvernig hann stendur gagnvart keppinautum sínum. Hann keppir í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Ástralíu á sunnudaginn. Formúla 1 23. mars 2011 15:11
Domenicali: Lykilatriði að vera með rétta keppnisáætlun til að sigra Yfirmaður Ferrrari, Stefano Domenicali telur að keppnisáætlanir Formúlu 1 liða muni ráða meiru en áður, hvað varðar sigurmöguleika ökumanna í mótum. Formúla 1 22. mars 2011 13:16
Fimm Formúlu 1 heimsmeistarar verða á ráslínunni í Ástralíu Fimm heimsmeistarar ökumanna í Formúlu 1 verða á ráslínunni í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Melbourne í Ástralíu um næstu helgi. Það fer fram á Albert Park götubrautunni í Melbourne. Formúla 1 21. mars 2011 17:00
Nýliðinn Maldonado og reynsluboltinn Barrichello eru tilbúnir í fyrsta Formúlu 1 mótið Nýliðinn Pastor Maldonado frá Venúsúela hjá Williams segir spennandi að takast á við sitt fyrsta Formúlu 1 mót um næstu helgi. Það verður í Ástralíu. Maldonado varð meistari í fyrra í GP2 mótaröðinni, sem er undirmótaröð Formúlu 1. Hann ekur með Brasilíumanninum Rubens Barrichello hjá Williams, sem er einbeittur fyrir fyrsta mótið eftir að hafa notið þess að vera í fríi með fjölskyldu sinni. Formúla 1 21. mars 2011 13:20
Formúlu 1 ökumaðurinn Kobayashi vill færa Japönum von og jákvæðar fréttir Japaninn Kamui Kobayashi hjá Sauber Formúu 1 liðinu kveðst vilja ná hagstæðum úrslitum í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Ástralíu 27. mars, til að færa landsmönnum sínar einhverjar jákvæðar fréttir á erfiðum tímum. Formúla 1 18. mars 2011 17:42
Button afskrifar ekki þriðja sigurinn í röð í Ástralíu Jenson Button hjá McLaren mætir í fyrsta Formúlu 1 mót ársins 27. mars í Ástralíu með McLaren liðinu, ásamt Lewis Hamilton. Hann hefur unnið sama mót tvö síðustu ár á Albert Park brautinni í Melbourne. Button og Hamilton ræddu málin í fréttatilkynningu frá McLaren sem var birt á autosport.com í dag. Formúla 1 18. mars 2011 17:05
Webber á heimavelli í fyrsta mótinu og meistarinn Vettel spenntur að keppa á ný Formúlu 1 meistaralið Red Bull er tilbúið í titilvörnina, sem hefst í fyrsta Formúlu 1 mótinu í Ástralíu 27. mars. Ekið verður á afmarkaðri götubraut í borginni Melbourne og nefnist brautarstæðið Albert Park. Formúla 1 18. mars 2011 16:23
Sauber Formúlu 1 liðið ætlar að sýna japönsku þjóðinni stuðning Formúlu 1 lið Sauber verður merktir í fyrsta móti ársins í Ástralíu með sérstakri kveðju til japönsku þjóðarinnar vegna hinna hörmulega atburða sem hafa átt sér stað í landinu að undanförnu. Japaninn Kamui Kobayashi er annar ökumanna Sauber liðsins. Formúla 1 17. mars 2011 15:25
Schumacher er vongóður um að geta keppt til sigurs í einhverjum mótum Michael Schumacher ekur með Mercedes Formúlu 1 liðinu í ár, eins og í fyrra, en hann mætti til leiks á ný eftir þriggja ára hlé 2010. Í dag segist hann njóta þess að keppa með Mercedes, en keppnislið hans sendi frá sér viðtal við kappann, sem birtist á autosport.com í dag og neðan er hluti þess í lauslegri þýðingu. Formúla 1 17. mars 2011 14:59
Alonso: Mikilvægast að vera með snöggan bíl Fernando Alonso hjá Ferrari telur að það lið og ökumaður sem er með fljótasta bílinn næli í meistaratitilinn í ár. Hann hefur ekki trú á því að tilkoma nýs dekkjaframleiðanda verði afgerandi hvað útkomu bílanna varðar, en vandasamara gæti orðið að taka ákvarðanir varðandi þjónustuáætlanir en í fyrra. Formúla 1 16. mars 2011 14:30
Stofnandi Idol stjörnleitarinnar ráðinn umboðsmaður Lewis Hamilton Bretinn Simon Fuller, sem er maðurinn á bakvið Idol stjörnuleitina sem er m.a. sýnd á Stöð 2 og fyrirtæki hans, XIX Entertainment er umboðsaðili fyrir Formúlu 1 ökumanninn Lewis Hamilton. Greint var frá þessu á autosport.com í gær. Formúla 1 15. mars 2011 14:10
Vettl framlengdi samning við Red Bull til loka ársins 2014 Þýski Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel hefur framlengt samning sinn við Formúlu 1 lið Red Bull til loka ársins 2014. Red Bull sendi frá sér staðfestingu um málið í dag. Formúla 1 14. mars 2011 12:34
Rosberg fljótastur í bleytunni á Spáni Síðaasti æfingadagurinn Formúlu 1 liða í Katalóníu brautinni í dag á Spáni nýttist ekki sérlega vel, þar sem mikill rigning varð til þess að lítið var ekið um brautina, þó fjögur lið væru á staðnum. Nico Rosberg á Mercedes náði besta tíma dagsins, en slagurinn um besta tíma var raunverulega síðustu 15 mínúturnar af æfingatíma dagsins þegar veðrið skánaði, eftir því sem sagði í frétt á autosport.com í dag. Formúla 1 12. mars 2011 16:31
Schumacher: Bíllinn þróaður skref fyrir skref Michael Schumacher náði besta tíma allra ökumanna á Katalóníu brautinni á Spáni í dag, á æfingu Formúlu 1 keppnisliða og liðsfélagi hans hjá Mercedes, Nico Rosberg var með þriðja besta tíma. Formúla 1 11. mars 2011 17:38
Schumacher náði besta tíma vetrarins í Katalóníu Michael Schumacher náði besta tíma á æfingu Formúlu 1 liða á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Mercedes bíll hans reyndist 0.365 sekúndum sneggri um brautina, en Ferrari Fernando Alonso. Formúla 1 11. mars 2011 16:39
Hispania afhjúpaði 2011 keppnisbílinn Hispania Formúlu 1 liðið afhjúpaði formlega 2011 keppnisbíl sinn á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Ökumenn liðsins í ár eru Tonio Liuzzi frá Ítalíu og Narain Karthikeyan frá Indlandi. Bíllinn hafði áður verið sýndur á vefsíðu liðsins. Formúla 1 11. mars 2011 15:20
Nýliðinn Sergio Perez stal senunni Sergio Perez frá Mexíkó, sem er nýliði í Formúlu 1 sló öllum við á Katalóníu brautinni á Spáni í dag, á æfingum Formúlu 1 keppnisliða. Hann náði besta tíma á Sauber bíl, sem er með Ferrari vél. Formúla 1 10. mars 2011 16:16
Vettel með besta tíma sem hefur náðst á Katalóníu brautinni á árinu Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta aksturstímanum á öðrum degi æfinga Formúlu 1 liða á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Formúla 1 9. mars 2011 16:24
Liuzzi ráðinn sem ökumaður Hispania Tonio Liuzzi frá Ítalíu var í dag staðfestur sem ökumaður Hispania Formúlu 1 liðsins og þar með er búið að fylla öll 24 sæti ökumanna fyrir þetta keppnistímabil. Formúla 1 9. mars 2011 15:04
Mark Webber fljótastur í Katalóníu Ástralinn Mark Webber á Red Bull var sneggstur allra í dag á fyrsta degi æfinga af fimm, sem Formúlu 1 lið verða við æfingar á Katalóníu brautinni á Spáni. Formúla 1 8. mars 2011 16:42
Mótshaldarar í Barein fá frest til 1. maí FIA hefur gefið Formúlu 1 mótshöldurum í Barein frest þangað til 1. maí til að ákveða hvort Formúlu 1 mót getur farið fram í landinu eður ei. Mótið átti að vera á dagskrá 13. mars, en var fellt niður vegna pólitísks ástands í landinu. Formúla 1 8. mars 2011 14:10
Klien vonast eftir síðasta Formúlu 1 ökumannssætinu Austurríkismaðurinn Christian Klien er að vonast eftir að komast að hjá Hispania Formúlu 1 liðinu spænska, sem á enn eftir að ráða einn ökumann til starfa. Indverjinn Narain Karthikeyan er þegar ökumaður liðsins. Klien sagði í frétt á autosport.com að umboðsmaður sinn, Roman Rummenigge sé í stöðugu sambandi við stjórnendur Hispania liðsins. Formúla 1 7. mars 2011 17:09
Brawn segir Mercedes um sekúndu á eftir toppbílunum Ross Brawn, yfirmaður Mercedes Formúlu 1 liðsins telur að bílar liðsins séu um sekúndu lakari í hverjum eknum hring, en toppbílarnir, en keppnislið hafa æft á Spáni á árinu og lið hafa því fengið samanburð. Brawn sagði þetta í frétt á BBC Sport. Formúla 1 4. mars 2011 15:53
Yfirmanni dekkjaframleiðandans líst vel á bleyta brautir með gerviregni Paul Hembrey, yfirmanni Pirelli dekkjaframleiðandans finnst sú hugmynd Bernie Ecclestone áhugaverð, að bleyta hugsanlega einhver Formúlu 1 mót með með sérútbúnu vatnsúðakerfi, eða gerviregni ef svo má segja. Formúla 1 3. mars 2011 14:29