ÍA datt í gullpottinn Peningurinn sem ÍA fær í sinn vasa eftir að franska knattspyrnufélagið Lille borgaði í kringum tvo og hálfan milljarð íslenskra króna fyrir Hákon Arnar Haraldsson fer í að byggja upp félagið og bæta leikmenn þess. Þetta staðfesti Eggert Herbertsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA, í viðtali við Vísi. Íslenski boltinn 19. júlí 2023 09:00
Hópsýking innan KR-liðsins KR vann sigur á FH í gær en þurfti að mæta í leikinn án leikmanna eftir að nokkrir þeirra fengu magapest. Íslenski boltinn 19. júlí 2023 08:21
Pochettino: Gat ekki horft á allt viðtalið við Dele Alli Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea og fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham, segir að það hafi verið of erfitt fyrir sig að horfa á viðtalið við Dele Alli. Enski boltinn 19. júlí 2023 07:31
UEFA vill halda umhverfisvænt EM og biður landslið að fljúga ekki Evrópumótið í knattspyrnu fer fram í Þýskalandi næsta sumar og UEFA er á fullu í undirbúningi fyrir mótið. Sambandið ætlar sér að halda umhverfisvænt mót og hefur biðlað til þátttökuþjóða að hjálpa til. Fótbolti 19. júlí 2023 07:00
Braut glerþakið en var ekki lengi aðalþjálfari Forest Green Hannah Dingley var nýverið ráðin fyrst kvenna sem þjálfari atvinnuliðs karla í knattspyrnu á Englandi. D-deildarlið Forest Green Rovers réð hana til starfa þegar Duncan Ferguson var sagt upp störfum. Nú er ljóst að Dingley mun ekki stýra liðinu á komandi leiktíð þar sem nýr þjálfari er væntanlegur. Enski boltinn 18. júlí 2023 23:31
Ómar Ingi: Það vantaði ekki mikið meira upp á HK gerði markalaust jafntefli í kvöld gegn Fylki í Árbænum í 15. umferð Bestu deildarinnar. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, var nokkuð sáttur að leik loknum þrátt fyrir að stigin urðu ekki þrjú. Fótbolti 18. júlí 2023 23:00
Umfjöllun og viðtöl: KR - FH 1-0 | Luke Morgan Conrad Rae hetja KR Luke Morgan Conrad Rae skoraði sigurmark KR á 90. mínútu og tryggði þrjú stig gegn FH. Úlfur Ágúst Björnsson misnotaði víti í síðari hálfleik og heimamenn refsuðu með því að skora eina mark leiksins. Íslenski boltinn 18. júlí 2023 22:52
Heimir skrópaði í viðtöl eftir tapið í Vesturbænum Heimir Guðjónsson þjálfari FH mætti ekki í viðtöl við fjölmiðla eftir tap hans manna gegn KR í kvöld. Sigurmark KR kom á lokamínútum leiksins. Fótbolti 18. júlí 2023 22:45
Kjartan Henry: Er ekki að standa í neinu PR-stunti fyrir þá Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður FH, var svekktur eftir 1-0 tap gegn KR. Kjartan Henry svaraði fyrir það hvers vegna hann tók ekki við viðurkenningu frá KR fyrir leik. Sport 18. júlí 2023 22:40
Jonny Evans orðinn leikmaður Manchester United á nýjan leik Þau óvæntu tíðindi bárust í dag að Jonny Evans hefði skrifað undir samning við Manchester United. Evans hafði verið félagslaus eftir að hafa yfirgefið Leicester City í lok síðasta tímabils. Enski boltinn 18. júlí 2023 22:16
Umfjöllun og viðtal: Fylkir - HK 0-0 | Ekkert skorað í Árbænum Fylkir fékk HK í heimsókn í kvöld í 15. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli í bragðdaufum leik þar sem HK hefði þó getað stolið sigrinum á lokamínútum leiksins. Íslenski boltinn 18. júlí 2023 21:57
Óskar Hrafn: Ég er hamingjusamur maður Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, gat leyft sér að líða vel eftir sigur hans manna á Shamrock Rovers í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Blikar unnu seinni leikinn 2-1 á heimavelli í kvöld og einvígið 3-1 samanlagt og mæta FC Köbenhavn í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Fótbolti 18. júlí 2023 21:45
Van der Sar kominn af gjörgæslu Hollendingurinn Edwin Van der Sar er kominn af gjörgæsludeild eftir að hafa fengið heilablæðingu fyrir skömmu. Fótbolti 18. júlí 2023 21:31
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - Shamrock 2-1 | Breiðablik áfram eftir frábæra frammistöðu Breiðablik lagði Shamrock Rovers 2-1 í kvöld á Kópavogsvelli og 3-1 samanlagt í einvígi þeirra í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Blikar spiluðu eins og vel sjóað Meistaradeildar lið og sigldu einvíginu réttilega í höfn. Shamrock hafði boltann mikið meira í kvöld en Blikar nýttu marktækifærin sín og leyfðu Írunum aldrei að ógna sér. Nú er það FC Köbenhavn sem bíður í næstu umferð. Fótbolti 18. júlí 2023 21:10
Umfjöllun og myndir: Ísland - Spánn 0-3 | Tap í fyrsta leik gegn ógnarsterkum Spánverjum Ísland tapaði 3-0 gegn Spáni í fyrsta leik sínum á lokakeppni Evrópumóts U19-ára landsliða sem fram fer í Belgíu. Sigur spænska liðsins var sanngjarn en stelpurnar okkar mæta Tékkum á föstudag. Fótbolti 18. júlí 2023 20:27
Valgeir og félagar örugglega áfram í Meistaradeildinni Sænska liðið Häcken tryggði sér örugglega sæti í næstu umferð Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á The New Saints frá Wales í kvöld. Fótbolti 18. júlí 2023 20:03
Umfjöllun: Austurríki - Ísland 0-1 | Mark á lokamínútunni tryggði Íslandi sigur Ísland mætti Austurríki í vináttulandsleik ytra nú í kvöld. Þetta var í annað sinn sem liðin mætast en síðasti leikur var lokaleikur riðlakeppni EM árið 2017 þegar lið Íslands tapaði 3-0. Annað var uppi á teningnum í dag og kláruðu stelpurnar okkar þetta verkefni í 0-1. Fótbolti 18. júlí 2023 19:45
Íslendingar í aðalhlutverki þegar Norrköping kynnti Ísak Andra til leiks með frábæru myndbandi IFK Norrköping hefur staðfest Ísak Andra Sigurgeirsson sem nýjan leikmann félagsins. Í kynningarmyndbandi liðsins á Twitteru er Ísland og Íslendingar í aðalhlutverki. Fótbolti 18. júlí 2023 19:09
Kristall Máni á leið til Danmerkur á láni Samkvæmt hlaðvarpinu Dr. Football er Kristall Máni Ingason á leið til danska liðsins Sönderjyske. Kristall Máni leikur með Rosenborg í Noregi en hann lék með Víkingi í Bestu deildinni í fyrra. Fótbolti 18. júlí 2023 18:01
Fylkir fá lánsmann frá toppliði Víkings | Hulda Hrönn í Stjörnuna Íslenski félagaskiptaglugginn í knattspyrnu opnaði á nýjan leik í dag og hafa þó nokkur félagaskipti litið dagsins ljós. Íslenski boltinn 18. júlí 2023 17:01
Hallgrímur framlengir við KA Fótboltamaðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur framlengt samning sinn við KA til 2025. Íslenski boltinn 18. júlí 2023 16:30
Valur fær fjórða leikmanninn í glugganum Íslandsmeistarar Vals halda áfram að eflast fyrir seinni hluta tímabilsins. Valur hefur samið við fjóra leikmenn á undanförnum vikum. Íslenski boltinn 18. júlí 2023 15:30
Fjöldi stórstjarna missir af HM vegna meiðsla Heimsmeistaramót kvenna í knattspyrnu nálgast óðfluga. Mótið hefst á fimmtudag, 20. júlí, og verður fjöldi magnaðra leikmanna í sviðsljósinu. Það er hins vegar ljóst að fjölmargar mun vanta þar sem þær eru fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Fótbolti 18. júlí 2023 15:00
Fyrsti Skagamaðurinn í frönsku deildinni í næstum því fjörutíu ár Hákon Arnar Haraldsson er orðinn leikmaður franska liðsins Lille en félagið keypti hann frá FC Kaupmannahöfn. Fótbolti 18. júlí 2023 13:31
Varð meistari en missti bæði móður sína og systur Argentínski knattspyrnumaðurinn Elías Gómez gleymir aldrei helginni sem er að baki en þar upplifði hann bæði gleði og mikla sorg. Fótbolti 18. júlí 2023 13:00
Bandarísku stelpurnar verða með Netflix myndavélar á sér allt HM Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta getur unnið sína þriðju heimsmeistarakeppni í röð og pressan er á liðinu að fylgja eftir velgengi sinni frá 2015 og 2019. Fótbolti 18. júlí 2023 12:31
„Við þurfum að kasta slíkum hugsunum út í hafsauga“ Óskar Hrafn Þorvaldsson segir að nálgunin sem hefur gefist Blikum best virki hættuleg og háskaleg og er stundum barnaleg. Hann vill samt að liðið hans þori að stíga hátt upp á móti Írunum í kvöld og megi ekki vera að verja eitthvað. Fótbolti 18. júlí 2023 12:00
Giggs sýknaður Ryan Giggs, fyrrverandi leikmaður enska knattspyrnuliðsins Manchester United, hefur verið sýknaður af ákærum um heimilisofbeldi. Enski boltinn 18. júlí 2023 11:30
Skoraði eftir að skotið var í hann: Sjáðu mörk Stjörnumanna í sigrinum á Val Stjarnan sýndi styrk sinn með sannfærandi 2-0 sigri á Valsmönnum í Bestu deild karla í fótbolta í Garðabænum í gærkvöldi. Íslenski boltinn 18. júlí 2023 09:31
Börn beittu knattspyrnustrák kynþáttaníði á N1 mótinu Fréttir af kynþáttaníði eru því miður allt of algengar í kringum kappleiki fullorðinna knattspyrnumanna og áhrifin ná að því virðist niður í yngri flokkana á Íslandi. Fótbolti 18. júlí 2023 09:00