Enn einn endurkomusigur Liverpool

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Getty/MB Media

Liverpool vann 2-1 á móti Fulham í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum. Liverpool lenti undir en tvö mörk með stuttu millibili í seinni hálfleik skiluðu sigrinum.

Liverpool liðið er án margra öflugra leikmanna vegna bæði meiðsla og landsliðsverkefna. Meðal þeirra eru Mohamed Salah og Trent Alexander-Arnold. Það var ekki að sjá að þeir söknuðu þeirra í kvöld, Liverpool var með algjöra yfirburði inni á vellinum en tókst ekki að setja boltann í netið. 

Þvert gegn gangi leiksins skoraði svo Willian opnunarmarkið eftir glæfraleg mistök Virgil Van Dijk. 

Þegar út í seinni hálfleikinn var komið hljómaði kunnuglegt stef. Liverpool tókst í sjöunda sinn á þessu tímabili að sækja sigur eftir að hafa lent marki undir. 

Það var varamaðurinn Darwin Nunez sem lagði bæði mörkin upp á þá Curtis Jones og Cody Gakpo. Hann átti svo sjálfur nokkrar atlögur að marki en tókst ekki að koma boltanum yfir línuna. 

Fleiri urðu mörkin ekki, 2-1 sigur Liverpool varð raunin og Fulham eiga erfitt verkefni fyrir höndum þegar liðin mætast í seinni leiknum á Craven Cottage þann 24. janúar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira