Gagnrýni

Gagnrýni

Gagnrýni á kvikmyndum, bókmenntum, tónlist, leikhúsverkum og fleiru.

Fréttamynd

Trítilóð Lísa

Söguna um Lísu í Undralandi ættu flestir að þekkja en sagan sem sögð er í Alice: Madness Returns er útgáfa af þessari vinsælu sögu sem vekur nánast ónot hjá manni.

Gagnrýni
Fréttamynd

Brjóst, blóð og barbarismi

Conan er fyndin mynd og fjörug, ef maður fer heim í hléi. Lokauppgjörið er óspennandi langavitleysa og afhjúpar handritið endanlega sem þá hrákasmíð sem það er.

Gagnrýni
Fréttamynd

Frábær lagasmiður sem á nóg inni

Á heildina litið er Winter Sun frábær plata. Snorri er ennþá að vaxa sem lagasmiður og útsetningar, söngur og annar flutningur styrkja lögin á plötunni enn frekar. Ein af bestu plötum ársins til þessa.

Gagnrýni
Fréttamynd

Prýðileg með poppinu

Vestrinn Cowboys and Aliens gjörsigrar vísindaskáldsöguna Cowboys and Aliens. Hræran fer þó ágætlega niður með poppinu.

Gagnrýni
Fréttamynd

Skemmtilegur textahöfundur

Á heildina litið er þetta skemmtileg plata sem sérstaklega er hægt að mæla með fyrir þá sem hafa gaman af góðum íslenskum textum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Þægileg og grípandi lög

Wait for Fate er fyrsta plata Hafnfirðingsins Jóns Jónssonar, en hann er eldri bróðir Friðriks Dórs sem vakti mikla athygli fyrir sína frumsmíð á síðasta ári. Jón semur sjálfur flest lög og texta á plötunni og syngur og spilar á kassagítar. Hægri hönd hans er upptökustjórinn og hljómborðsleikarinn Kristján Sturla Bjarnason. Auk þeirra spila nokkrir aðrir hljóðfæraleikarar á Wait for Fate og Anna María Björnsdóttir syngur bakraddir.

Gagnrýni
Fréttamynd

Neglir tíðarandann

Steindi margfaldar allt með þremur og fer hressilega yfir öll velsæmismörk. Hann drepur nafngreinda einstaklinga án þess að blikna, kallar allar konur hórur og leggur á ráðin um að setja rohypnol í drykkinn þeirra. Samt er Steindi drepfyndinn og líka svo vinaleg og andhetjuleg týpa að hann kemst upp með allt.

Gagnrýni
Fréttamynd

Efnilegir síðrokkarar

Lockerbie er fjögurra manna sveit úr Reykjavík og Hafnarfirði sem var stofnuð árið 2008 og vakti strax þá nokkra athygli fyrir frammstöðu sína á tónleikum með hljómsveitunum For a Minor Reflection og Soundspell. Í fyrrasumar sigraði Lockerbie í sumarlagakeppni Rásar 2 og Sýrlands með laginu Snjóljón og síðan hefur sveitin verið dugleg að koma sér á framfæri úti í hinum stóra heimi, gaf meðal annars út smáskífu hjá Bad Panda Records í upphafi ársins 2011. Og nú er fyrsta stóra platan, Ólgusjór, komin út á vegum Record Records.

Gagnrýni
Fréttamynd

Fersk innkoma hjá Gauta

Íslenskt rapp er á uppleið, að minnsta kosti ef við dæmum út frá útgefnum plötum, spilun og sölu. Bara ég er fersk og fagmannlega unnin plata. Góð blanda af poppi og rappi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Plata sem byggir brú

Lögreglukórinn og góðir gestir úr röðum poppara syngja lög eftir Hörð Torfa, KK, Bergþóru Árna, Bubba og Megas.

Gagnrýni
Fréttamynd

Notalega hrjúfur

Áður en Heimir Már Pétursson gerðist fréttamaður var hann söngvari í hljómsveitinni Reflex sem margir muna vel eftir frá tónlistarhátíðinni Melarokki sumarið 1982. Heimir hefur undanfarin ár lítið komið nálægt tónlist að því undanskildu að hann hefur samið texta fyrir bróður sinn Rúnar Þór. Leiðin til Kópaskers markar því endurkomu hans í tónlistina.

Gagnrýni
Fréttamynd

Öskrað í eyru áhorfandans

Transformers: Dark of the Moon er þreytandi. Mér leið hálfpartinn eins og Michael Bay sjálfur sæti við hliðina á mér í kvikmyndahúsinu og öskraði í eyrun á mér. Hljóðstyrkurinn var að vísu ekki vandamálið, heldur sá sjónræni hávaði sem virtist engan endi ætla að taka. Ég ímynda mér að handritið allt sé skrifað í caps lock og að allar setningar endi á þremur upphrópunarmerkjum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Íslenskur Iggy Pop

Ég verð að viðurkenna að ég veit engin deili á Guðmundi Þóri Sigurðssyni, en eftir því sem ég kemst næst er Guðmundur hans fyrsta sólóplata. Á henni eru níu lög og textar eftir hann, en þau voru hljóðrituð hjá Benzín bræðrum í Sýrlandi í ágúst í fyrra. Guðmundur syngur lögin, en þeir Börkur og Daði Birgissynir. Stefán Már Magnússon, Kristinn S. Agnarsson og Björn Ingason sjá um hljóðfæraleikinn og Margrét Eir bakraddar.

Gagnrýni
Fréttamynd

Upplífgandi og sólrík sálarplata

Ég trúi á þig er 25. sólóplata Bubba Morthens með nýju efni og fyrsta platan hans síðan Fjórir naglar kom út fyrir þremur árum. Á Fjórum nöglum voru tvö fín soul-lög, titillagið og Myndbrot, og kannski voru þau kveikjan að því að Bubbi ákvað að búa til soul-plötu.

Gagnrýni
Fréttamynd

Gleðin er besta víman

Gleðin réði ríkjum á frábærum viðhafnartónleikum Páls Óskars og Sinfó á laugardagskvöldið. Þetta voru í einu orði sagt stórkostlegir tónleikar, fullkomnir. Það hafði augljóslega verið hugsað fyrir hverju einasta smáatriði og allt gekk upp: Útlit, uppsetning, hljómur, lagaval, lagaröð, söngur, hljóðfæraleikur og útsetningar. Stemningin var líka ótrúleg, gleðin skein af hverju andliti og margir tónleikagesta réðu varla við sig af hamingju.

Gagnrýni
Fréttamynd

Endingargóð Eitís-drottning

Með nýrómantíkur-ímyndina af Lauper pikkfasta í höfðinu var dálítið undarlegt að sjá söngkonuna frá New York brölta inn á sviðið (hugsanlega hefur hún hresst sig við með nokkrum áfengum blöndum á undan), dansa eins og Janis Joplin og syngja hreinræktaða blús-standarda af nýjustu plötu sinni, Memphis Blues, sem voru meginuppistaða prógrammsins. En röddin (og hvílík rödd!) hefur ekkert látið á sjá, frekar þroskast og eflst ef eitthvað er, og gæðir formúluna lífi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Og allir að hoppa svo!

FM Belfast sló í gegn svo um munaði með fyrstu plötunni sinni How to Make Friends sem kom út haustið 2008. Það getur verið erfitt að fylgja eftir svo vel heppnaðri frumsmíð, en meðlimir FM Belfast hafa greinilega ákveðið að flana ekki að neinu og nú, tæpum þremur árum seinna, er plata númer tvö loksins komin út.

Gagnrýni
Fréttamynd

Flottur Tony Allen

Það var mikil eftirvænting í Norðurljósasal Hörpu þegar nígeríski tónlistarmaðurinn Tony Allen steig á svið á miðvikudagskvöldið ásamt Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar. Sammi og félagar, 17 talsins, hófu leik án Tonys, en svo var hann kynntur á svið og kom sér fyrir við trommusett sem var stillt upp fyrir miðju fremst á sviðinu, við mikil fagnaðarlæti.

Gagnrýni
Fréttamynd

Píanóið drepið

Á laugardagskvöldið voru í Norðurljósum tónleikar með verkum eftir Högna Egilsson (úr Hjaltalín), píanóleikarann Davíð Þór Jónsson og hljóðstjórann President Bongó. Athyglisverðir tónleikar með fallegri tónlist. Lýsingin var frábær.

Gagnrýni
Fréttamynd

Meistari hylltur í Hörpu

Dylan-aðdáendur fögnuðu sjötugsafmæli átrúnaðargoðsins á skemmtilegum tónleikum. Tónleikarnir stóðu í tæpa þrjá tíma og rúmlega tuttugu lög voru spiluð. Hápunktar voru útgáfa Páls Rósinkrans af Hurricane sem var síðasta lag fyrir hlé, samsöngur systranna Ólafar og Klöru Arnalds í Mr. Tambourine Man, tilfinningahlaðin útgáfa Þorsteins Einarssonar Hjálmasöngvara af I Shall Be Released og uppklappslagið, Like A Rolling Stone. Í því komu allir listamenn á svið og sungu saman, en skipuleggjandi tónleikanna Óttar Felix Hauksson sá um forsönginn.

Gagnrýni
Fréttamynd

Gleðin höfð í fyrirrúmi

Í heild var sýning Les SlovaKs skemmtileg upplifun full af krafti og leik. Listrænt séð flokkast hún ekki undir meistaraverk en hún kætti áhorfendur.

Gagnrýni
Fréttamynd

Söngvararnir stela senunni

Arabian Horse er mjög sterk og sannfærandi Gusgus-plata og mun aðgengilegri og skemmtilegri en sú síðasta. Hún ætti að geta stækkað áheyrendahóp sveitarinnar enn frekar, bæði hér á landi og erlendis.

Gagnrýni
Fréttamynd

Brjálaðir tónleikagestir

Algerlega frábær skemmtun með stórkostlegum listamanni. Áheyrendur gengu gersamlega af göflunum! Kaufmann var klappaður upp hvað eftir annað, og söng hvorki meira né minna en fjögur aukalög. Þetta voru ótrúlegir tónleikar. Ljóst er að tónlistarlífið í Hörpu byrjar vel.

Gagnrýni