Mætti halda að Chandler Bing hafi gert nýju Stjörnustríðsmyndirnar Þar sem fólk getur nú lesið þúsundir dóma um Star Wars: Rise of Skywalker og næstum tvær vikur eru síðan hún kom út ákvað ég að taka aðeins víðari nálgun á Stjörnustríðsmyndirnar og bera nýja þríleikinn saman við hinn upprunlega og velta vöngum yfir þessu fyrirbæri sem er Stjörnustríð. Bíó og sjónvarp 30. desember 2019 14:01
Krúttlegir öldungar fá sér Fanta í Páfagarði The Two Popes byggir á The Pope, leikverki Anthony McCarten og fjallar um þegar hinn íhaldssami fyrrum páfi, Benedict sextándi, fékk tilvonandi eftirmann sinn, Francis hinn fyrsta, í langa heimsókn í Vatíkanið. Gagnrýni 17. desember 2019 14:00
Mrs. Fletcher er guðdómleg blanda af andstyggilegheitum og ánægju Hvað gerir fráskilin kona þegar einkasonurinn flytur að heiman og fer í háskóla? Jú, hún byrjar að horfa á lesbíuklám líkt og enginn sé morgundagurinn. Þannig má á mjög einfaldaðan máta lýsa grunni þáttaraðarinnar Mrs. Fletcher sem Stöð 2 sýnir þessa dagana. Gagnrýni 12. desember 2019 12:30
Það er líka til fólk sem finnst The Irishman leiðinleg Kvikmynd Martins Scoreseses The Irishman hefur fengið allt að því einróma lof gagnrýnenda í Bandaríkjunum, því eru væntingar áhorfenda gagnvart henni miklar. Það er Netflix sem stendur að framleiðslunni og hægt er að horfa á hana þar. Hún fór þó í kvikmyndahús og er enn sýnd í Bíó Paradís. Gagnrýni 5. desember 2019 09:15
Hverfandi hvel Jöklunum blæðir út "eins og hverju öðru helsærðu dýri“ segir í bókinni Dimmumót sem er nýjasta ljóðabók Steinunnar Sigurðardóttur. Gagnrýni 28. nóvember 2019 11:00
Spegilbrot sjálfsmynda okkar Bergmál er einstök mynd. Án gríns. Algerlega einstök og stórmerkileg. Svo mjög í raun að réttast er að hafa um hana sem fæst orð. Ég upplifði hana í það minnsta þannig, auk þess sem það yrði til að æra jafnvel stöðuga að reyna að rekja efni hennar og innihald. Það er ekki hægt. Gagnrýni 28. nóvember 2019 08:00
Hollywooddrama í háum gæðaflokki Árið 1966 lét bílaframleiðandinn Ford hanna og smíða Ford GT40 kappakstursbílinn. Tilgangur þess var að sigra Ferrari í Le Mans úthaldskappakstrinum í Frakklandi en þar er keyrt í hringi í heilan sólarhring. Kvikmyndin Ford v Ferrari fjallar um þetta. Gagnrýni 26. nóvember 2019 13:10
Spenna og illska Aðdáendur glæpasögunnar eru eflaust kampakátir, enda jólabókaflóðið sjaldan verið stærra en í ár og glæpasögurnar taka þar sitt pláss að venju. Gagnrýni 25. nóvember 2019 15:00
Flækjugangur kjarnafjölskyldunnar Stella er alveg að missa þolinmæðina. Gagnrýni 25. nóvember 2019 12:00
Af geimverum og tilfinningum Sögur um geimverur sem hafa eitthvað til jarðarinnar og jarðarbúa að sækja hafa verið hluti af menningararfi Vesturlanda síðan 1898. Gagnrýni 25. nóvember 2019 10:48
Erfiðleikar mannsins Fyrsta skáldsaga Halldórs Laxness Halldórssonar, eða Dóra DNA, er einstaklega vel heppnuð og fjallar um undarlegt tilfinningalíf mannskepnunnar á skemmtilegan og frumlegan hátt. Gagnrýni 25. nóvember 2019 09:00
Frábærar viðtökur í Konzerthaus Setið var í hverju sæti á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands með Víkingi Heiðari Ólafssyni í hinu virta tónleikahúsi Konzerthaus í Berlín á sunnudag. Menning 19. nóvember 2019 23:00
The Mandalorian: Hin vonlitla leit að næstu Star Wars vímunni Tveir þættir af fyrstu leiknu Stjörnustríðsþáttaröðinni The Mandalorian komu á efnisveituna Disney+ í vikunni sem leið. Í framhaldinu kemur einn þáttur í viku næstu sex vikurnar. Gagnrýni 19. nóvember 2019 15:45
Litrík fjölskyldusaga í mörgum lögum Skáldsagan Svínshöfuð segir átakanlega sögu fjölskyldu og teygir anga sína frá lítilli eyju í Breiðafirði til suðurhluta Kína. Gagnrýni 18. nóvember 2019 09:00
Af ribböldum, ölkum og aumingjum Stefán Máni er forvitnilegur höfundur. Ég held ég hafi lesið megnið af því sem frá honum hefur komið í gegnum tíðina en hann vakti athygli strax í kringum aldamót með bókum sem lofuðu verulega góðu. Gagnrýni 17. nóvember 2019 13:07
Hvað kom fyrir Nesbø? Vinsældir norska glæpasagnahöfundarins Jo Nesbø eru engin tilviljun. Lesendur hans hafa lengi gengið að því sem vísu að hann muni sjá þeim fyrir spennu í bókum þar sem er að finna hrollvekjandi morð, áhugaverðar persónur og óvæntar fléttur. Gagnrýni 14. nóvember 2019 11:00
Hver pantaði The Shining með vanillubragði? Um síðastliðna helgi kom Doctor Sleep í kvikmyndahús. Hún er framhald hinnar 39 ára gömlu The Shining. Gagnrýni 13. nóvember 2019 14:00
Hvernig hugmyndir finna fólkið sitt Hvað mótar mann og gerir hann að sjálfum sér og hvernig hættulegar hugmyndir finna fólkið sitt er viðfangsefni Sjóns í þessari bók. Gagnrýni 7. nóvember 2019 11:00
Þægileg afþreying Ólafur Jóhann Ólafsson (f. 1962) er höfundur sem árlega er auglýstur með sterkum lýsingarorðum, ósjaldan í efsta stigi. Gagnrýni 7. nóvember 2019 09:45
Aftur til fortíðar í fimm þáttum Í sagnasafninu Vetrargulrætur – sögur reiðir rithöfundurinn Ragna Sigurðardóttir fram fimm sögur þar sem oftast er horft til fortíðar. Gagnrýni 7. nóvember 2019 08:30
Óbærilegur harmur í biðstofu sorgarinnar Gagnrýnandi Fréttablaðsins gefur leiksýningunni Eitri sem sýnd er í Borgarleikhúsinu fjórar stjörnur. Gagnrýni 6. nóvember 2019 17:15
Tvær valkyrjur, Dóra landkönnuður og The Governator Það er hægt skrifa gagnrýni um sjöttu Terminatormyndina Dark Fate á ýmsan máta þar sem henni fylgir töluverður farangur vegna alls sem á undan er komið. Gagnrýni 5. nóvember 2019 14:00
Farið milli skauta og heima Segja má að í þessari í nýjustu ljóðabók Gerðar Kristnýjar, sem nefnist Heimskaut, sé bæði farið milli skauta og heima því að efnistökin einskorðast hvorki við nútíð né fortíð, nánd eða firrð. Gagnrýni 29. október 2019 07:00
Samhengislaus súrrealismi Panama-skjalanna Kvikmyndin The Laundromat hefur undanfarið verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim en er nú loksins kominn á Netflix þar sem hún er best geymd. Gagnrýni 28. október 2019 07:30
Djúpköfun ofan í myrkur sálarinnar Sýningar á þýsku kvikmyndinni Der goldene Handschuh, eða Gyllti hanskinn, eru hafnar í Bíó Paradís undir þeim formerkjum að hér sé án efa komin "ógeðslegasta mynd sem þú munt sjá á árinu!“ Gagnrýni 28. október 2019 07:30
Sálarháski hversdagsleikans Agnes Joy er svo ofboðslega góð kvikmynd. Einföld og látlaus en samt svo yfirþyrmandi víðfeðm og djúp að mann skortir eiginlega orð. Gagnrýni 24. október 2019 11:30
Everest kom manni ekki við Brahms mun hafa verið leiðindakarl. Hann var geðvondur og almennt óþægilegur í lund; sérvitur piparsveinn allt sitt líf. Gagnrýni 19. október 2019 10:00
Rödd samviskunnar Bubbi Morthens (f. 1956) er listamaður með sterka rödd í margvíslegum skilningi. Maður með erindi. Rödd hans er krefjandi, áleitin, ástríðufull, hrjúf en hlý. Samviskurödd. Gagnrýni 17. október 2019 13:45