Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda „Ég er nú bara komin í mína allra fyrstu kosningabaráttu og kom kannski inn svolítið ný á sviðið. Þannig að ég er ótrúlega þakklát fyrir þessar góðu viðtökur.“ Innlent 2. júní 2024 00:51
Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum atkvæða sem talin hafa verið í Norðvesturkjördæmi. Hún mælist með 33,07 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 26,13 prósent fylgi. Halla Hrund Logadóttir er þriðja með 19,62 prósent fylgi. Innlent 2. júní 2024 00:50
Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í Reykjavík norður með 31,9 prósent en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 27,9 prósent. Þetta var tilkynnt rétt í þessu. Innlent 2. júní 2024 00:44
Katrín sér ekki eftir framboði sínu Katrín Jakobsdóttir segir niðurstöður í fyrstu tölum ekki svo fjarri því sem bent hafi til í síðustu skoðanakönnunum, þó fylgi Höllu Tómasdóttur komi á óvart. Innlent 2. júní 2024 00:25
Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði eftir fyrstu tölur úr Reykjavík Suður. Hún er með 32,5 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 28,9 prósent. Halla Hrund Logadóttir er með 12,95 prósenta fylgi. Innlent 2. júní 2024 00:22
Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Forsetaframbjóðandinn Eiríkur Ingi Jóhannsson segir ljóst að kjósendur hafi margir ákveðið að kjósa taktískt í forsetakosningunum í dag og að það hafi mögulega unnið gegn sér. Þegar fyrstu tölur voru lesnar í Suður- og Norðausturkjördæmi var uppskera Eiríks Inga heldur rýr. Innlent 2. júní 2024 00:01
Segir klútabyltinguna vera hafna „Ég er ótrúlega þakklát ekki síst í ljósi þess að þetta var brekka hjá okkur,“ segir Halla Tómasdóttir og vísar þar til upphafs kosningabaráttunnar þegar fylgi hennar mæltist í lágmarki. Innlent 2. júní 2024 00:01
Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Jón Gnarr yngri betur þekktur sem Nonni Gnarr útskrifast úr menntaskóla í dag og útskriftarveislan fór fram í sama salnum í Elliðarárdal og kosningavaka Jóns Gnarr eldri fer nú fram. Bjarki Sigurðsson fréttamaður tók Nonna Gnarr tali sem var alveg á því að dagurinn væri um hann. Lífið 1. júní 2024 23:25
Ofboðslega stolt af dóttur sinni Eygló Gunnþórsdóttir, móðir Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, segist mjög stolt af dóttur sinni og segir hana hafa staðið sig mjög vel í kosningabaráttunni. Lífið 1. júní 2024 23:07
Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði samkvæmt fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi. Hún er með 37 prósenta fylgi. Á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með rúm 19 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 16 prósent. Innlent 1. júní 2024 23:05
Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum úr Norðausturkjördæmi. Halla mælist með 35,42 prósent fylgi. Næst á eftir kemur Katrín Jakobsdóttir með 27 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 17 prósent. Talin hafa verið 3000 atkvæði. Auðir seðlar 12. Ógildir 4. Innlent 1. júní 2024 22:58
Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi eru stödd á kosningavöku óháðra á Nasa og bíða spennt eftir að fyrstu tölur berist. Lífið 1. júní 2024 22:40
„Nú er þessi sprettur á enda“ „Nú er þessi sprettur á enda. Ég horfi á markið og kjörstaðir að fara að loka. Við erum mætt hingað á Grand Hótel og það er mjög góð stemmning í mannskapnum.“ Lífið 1. júní 2024 22:22
Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Halla Hrund Logadóttir ávarpaði stuðningsmenn sína í kosningapartýi sínu í Björtuloftum í Hörpu í kvöld og þakkaði þeim fyrir 55 daga ferðalag sem hún sagði að myndi binda þau saman út ævina. Halla hvatti stuðningsmennina til að fara bjartsýnir inn í kvöldið í aðdraganda fyrstu talna. Innlent 1. júní 2024 22:07
Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Kosningasjónvarp Stöðvar 2 í opinni dagskrá og beinni útsendingu er staðurinn til að fylgjast með nýjustu tölum, heimsækja skemmtilegustu partýin og veita áhorfendum allar nauðsynlegar upplýsingar á spennandi kosningakvöldi. Innlent 1. júní 2024 21:04
Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Íslendingar hafa í dag valið sér forseta, og spennan er í algleymingi. Einn frambjóðandi mun standa uppi sem sigurvegari, og næsti forseti lýðveldisins, á meðan aðrir munu ekki hafa erindi sem erfiði. Þeir munu þó flestir freista þess að fagna með stuðningsfólki sínu í kvöld. Lífið 1. júní 2024 20:50
Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir forsetakosningarnar nú vera þær mest spennandi síðan í forsetakosningunum 1980 þegar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin. Hún segir að vísbendingar um góða kjörsókn geta boðað gott fyrir framboð Höllu Tómasdóttur og að myndun „tveggja turna“ geta leyst alls konar dýnamík úr læðingi þegar kemur að hegðun kjósenda. Innlent 1. júní 2024 20:31
Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa Kjósandi í Hafnarfirði ætlaði að skjótast í Lækjarskóla til að greiða forsetaframbjóðanda atkvæði sitt um sexleytið. Úr varð klukkustundarlöng bið eftir að komast í kjörklefann. Innlent 1. júní 2024 20:26
„Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Ingvar Örn Arngeirsson segir að betur megi huga að fólki sem glími við áskoranir þegar komi að kosningum. Einhverfur vinur hans treysti sér ekki til að fara inn í kjörklefa og gat af þeim sökum ekki kosið í dag. Innlent 1. júní 2024 19:57
Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Þorgerður Björnsdóttir, Selfyssingur á áttræðisaldri, varð fyrir miklum vonbrigðum þegar í ljós kom að hún var búin að kjósa í forsetakosningunum. Hún hafði þó ekki greitt atkvæði sjálf. Innlent 1. júní 2024 19:29
Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Mér finnst það góð pæling, að tala ekki bara um hvað maður hyggist kjósa heldur einnig hvers vegna. Aðeins snúnara í forsetakosningum vegna þess að embættið er ekki jafn pólitískt og t.d. Alþingi. Skoðun 1. júní 2024 18:07
Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Kjörsókn utankjörfundar var minni í forsetakosningunum nú samanborið við forsetaksoningarnar 2020, 2016 og 2012. Innlent 1. júní 2024 18:03
Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Það var mikið svekkelsi þegar Helgi Þorleifur Þórhallsson, nemi í fatahönnun við Háskóla Íslands, mætti á kjörstað í Mývatnssveit. Ástæðan var sú að hann fékk ekki að greiða atkvæði. Innlent 1. júní 2024 18:03
Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Guðni Th. Jóhannesson forseti segir það hafa verið ágæta tilfinningu að mæta á kjörstað til að greiða atkvæði í forsetakosningunum, þeim fyrstu í nokkurn tíma þar sem hann er ekki sjálfur á kjörseðlinum. Innlent 1. júní 2024 17:37
Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Kjörsókn hefur hingað til verið mun meiri en í síðustu forsetakosningunum árið 2020. Víða um land er kjörsókn orðin um 10 prósent meiri en fyrir fjórum árum. Prófessor í stjórnmálafræði segir tvær augljósar ástæður fyrir þessu. Innlent 1. júní 2024 16:38
Margir góðir frambjóðendur í boði Kjósendum fannst miserfitt að ákveða hvert atkvæði þeirra ætti að fara. Sumir tóku lokaákvörðun í kjörklefanum en aðrir segja valið hafa verið alveg ákveðið og ákvörðunin ekki erfið. Fréttamenn Stöðvar 2 fóru á stúfana í dag og tóku kjósendur tali. Innlent 1. júní 2024 14:25
Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Þetta var ekki erfitt val,“ sagði Jón Gnarr í sem kom atkvæði sínu til skila ásamt fjölskyldu sinni í Vesturbæjarskóla í dag. Innlent 1. júní 2024 14:06
„Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ „Ég efast um að ég fylgist mikið með kosningasjónvarpinu,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi og leikkona eftir að hafa komið sínu atkvæði til skila í Ráðhúsinu í dag. Innlent 1. júní 2024 13:08
„Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ Halla Hrund Logadóttir segir að tilfinningin að mæta á kjörstað sé góð, dagurinn framundan sé spennandi en hún hvetur alla til að nýta sinn kosningarétt í dag. Hún hefur ekki áhyggjur af dvínandi fylgi sínu í skoðanakönnunum, en hún segir að væta hafi boðað grósku í hennar sveit og fer bjartsýn í daginn. Innlent 1. júní 2024 12:11
„Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi kaus í ráðhúsinu ásamt fjölskyldu sinni í dag. Hún segir ljóst að unga fólkið velji hennar framboð og vonar að það skili sér á kjörstað í dag. Innlent 1. júní 2024 12:02