Barcelona mætir Liverpool Í morgun var dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Barcelona mæta enska liðinu Liverpool, en þetta eru sigurvegarar keppninnar síðustu tvö ár. Þá mætir Jose Mourinho sínum gömlu félögum í Porto með liði Chelsea. Fótbolti 15. desember 2006 13:11
Reyes vill mæta Arsenal í Meistaradeildinni Spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes hjá Arsenal, sem nú leikur sem lánsmaður hjá Real Madrid, segist óska þess að liðin lendi saman í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 12. desember 2006 16:45
Atouba fær tveggja leikja bann og sekt Kamerúnmaðurinn Timothee Atouba hjá HSV í Þýskalandi hefur verið settur í tveggja leikja bann og gert að greiða sekt í kjölfar þess að hann sýndi stuðningsmönnum liðsins dónalegt fingramál þegar honum var skipt af velli í sigri HSV á CSKA Moskva í gærkvöld. Fótbolti 7. desember 2006 15:23
Leikmenn Arsenal voru taugaóstyrkir Arsene Wenger viðurkennir að hans menn hafi verið of varkárir og taugaóstyrkir í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Porto á útivelli í Meistaradeildinni, en það tryggði liðinu engu að síður efsta sætið í riðlinum. Fótbolti 6. desember 2006 23:01
Ferguson ánægður að sjá fimm bresk lið í 16-liða úrslitunum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist afar sáttur við að sjá fimm bresk lið í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í ár eftir sigur United á Benfica í kvöld. "Það er frábært að sjá þessi lið komast áfram og það er ljóst að eitt þeirra á góða möguleika á að vinna keppnina. Ég vona bara að það verði okkar lið," sagði Ferguson. Fótbolti 6. desember 2006 22:53
Atouba í vondum málum Kamerúnski landsliðsmaðurinn Timothee Atouba hjá Hamburg á væntanlega von á mjög harðri refsingu frá félagi sínu og aganefnd knattspyrnusambands Evrópu eftir að hann sýndi stuðningsmönnum Hamburg miðfingurinn þegar honum var skipt af velli í langþráðum sigri liðsins í Meistaradeildinni í kvöld. Fótbolti 6. desember 2006 22:29
Góður sigur United á Benfica Manchester United tryggði sér efsta sætið í F-riðli Meistaradeildarinnar og sæti í 16-liða úrslitum með 3-1 sigri á Benfica á Old Trafford í kvöld. Nélson kom Benfica óvænt yfir í leiknum en Nemanja Vidic jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Þeir Ryan Giggs og Louis Saha bættu svo við tveimur mörkum í þeim síðari og tryggðu enska liðinu sigurinn. Nú er ljóst hvaða lið fara í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Fótbolti 6. desember 2006 21:33
Jafnt í hálfleik á Old Trafford Nú er kominn hálfleikur í frábærum leik Manchester United og Benfica á Old Trafford í Meistaradeildinni og er staðan jöfn 1-1. Gestirnir frá Portúgal komust yfir þvert gegn gangi leiksins þegar bakvörðurinn Nélson skoraði með glæsilegu skoti eftir 27 mínútur, en Nemanja Vidic jafnaði fyrir heimamenn í uppbótartíma. Leikurinn hefur verið eign Manchester United síðasta hálftímann og sóknarleikurinn í fyrirrúmi. Fótbolti 6. desember 2006 20:32
Við verðum að nýta færin í kvöld Sir Alex Ferguson segir að sínir menn í Manchester United verði að nýta færi sín til hins ítrasta í leiknum við Benfica í Meistaradeildinni í kvöld ef þeir ætli sér að ná hagstæðum úrslitum. Enska liðinu nægir stig til að komast áfram, en liðið hefur átt það til að fara illa með færi sín í keppninni til þessa og það hefur kostað liðið að mati knattspyrnustjórans. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 19:30. Fótbolti 6. desember 2006 14:51
Wenger ætlar að sækja til sigurs Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ekki ætla að fara til Porto í kvöld með það fyrir augum að hanga á jafntefli þó sú niðurstaða yrði nóg fyrir hans menn til að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra í kvöld klukkan 19:30. Fótbolti 6. desember 2006 14:40
Barcelona áfram Barcelona tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með nokkuð öruggum 2-0 sigri á Werder Bremen á heimavelli sínum. Ronaldinno og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk spænska liðsins í frábærum leik í beinni útsendingu á Sýn. Fótbolti 5. desember 2006 21:34
Barcelona í góðum málum Ronaldinho og Eiður Smári Guðjohnsen eru á skotskónum hjá Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld en liðið hefur 2-0 forystu gegn Bremen á heimavelli sínum og er því í ágætri stöðu til að komast áfram í 16-liða úrslitin. Leikurinn hefur verið mjög skemmtilegur og auk þess að skora átti Eiður Smári sín bestu tilþrif í vetur þegar hann lék á þrjá varnarmenn Bremen en skot hans hafnaði í stönginni. Fótbolti 5. desember 2006 20:28
Eiður í byrjunarliði Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Werder Bremen í Meistaradeildinni nú klukkan 19:45 en bein útsending frá leiknum hefst á Sýn klukkan 19:30. Hér fyrir neðan má sjá byrjunarliðin. Fótbolti 5. desember 2006 19:03
Magath á von á skemmtilegum leik í kvöld Felix Magath, þjálfari Bayern Munchen, segist eiga von á góðri skemmtun fyrir áhorfendur í kvöld þegar Bayern tekur á móti Inter Milan í leiknum um toppsætið í B-riðli Meistaradeildarinnar. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra 2 í kvöld. Fótbolti 5. desember 2006 17:45
Rijkaard heimtar sigur og ekkert annað Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, segir að ekkert annað en sigur komi til greina í kvöld þegar Barcelona tekur á móti Bremen í sterkum A-riðli Meistaradeildarinnar. Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í byrjunarliði Barca í leiknum, sem sýndur verður beint á Sýn klukkan 19:30. Fótbolti 5. desember 2006 16:27
Barcelona - Bremen í beinni á Sýn Það verða að venju þrír leikir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðvum Sýnar úr Meistaradeild Evrópu í kvöld. Aðalleikurinn á Sýn er viðureign Barcelona og Werder Bremen, þar sem spænska liðið verður að vinna til að komast áfram í keppninni. Leikur Roma og Valencia er sýndur á Sýn Extra og leikur Bayern og Inter á Sýn Extra 2. Útsending hefst klukkan 19:30 á öllum leikjunum. Fótbolti 5. desember 2006 14:37
Blendnar tilfinningar hjá Mourinho Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, vissi ekki alveg í hvorn fótinn hann ætti að stíga þegar hann var spurður að því í dag hvort hann vildi að Manchester United og Arsenal kæmust áfram í Meistaradeild Evrópu. Ensku liðin eru í baráttu við tvo lið frá Portúgal, heimalandi Mourinho. Fótbolti 4. desember 2006 22:00
Ronaldinho segir að Barca muni sækja til sigurs Brasilíski snillingurinn Ronaldinho segist sannfærður um að Barcelona verði í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Katalóníu í dag. Fótbolti 4. desember 2006 20:54
Leikmenn Bremen óttast ekki Barcelona Þýski landsliðsmaðurinn Thorsten Frings og leikmaður Werder Bremen segir að leikmenn liðsins óttist Evrópumeistara Barcelona ekki neitt og að liðið muni spila til sigurs í viðureign liðanna í Meistaradeildinni á morgun. Lið Bremen kom til Barcelona í morgun og æfði á Nou Camp í morgun. Fótbolti 4. desember 2006 20:15
Juninho gagnrýnir brasilíska landsliðið Juninho, leikmaður Lyon í Frakklandi og fyrrum landsliðsmaður Brasilíu, gagnrýnir harðlega undirbúning Brassa fyrir HM í Þýskalandi í sumar og segir að liðið hafi farið á mótið með hangandi hendi. Hann segist þó ánægður með störf nýja landsliðsþjálfarans Dunga það sem af er. Fótbolti 28. nóvember 2006 17:15
Chelsea tapaði fyrir Bremen Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir þýska liðinu Werder Bremen. Á sama tíma vann Barcelona 2-0 sigur á Levski Sofia með mörkum frá Giuly og Iniesta, en Eiður Smári Guðjohnsen náði ekki að koma sér á blað þrátt fyrir að eiga nokkur ágæt færi í leiknum. Chelsea og Bremen eru jöfn í efsta sæti riðilsins með 10 stig en Barcelona hefur 8 stig. Fótbolti 22. nóvember 2006 21:37
Bremen hefur yfir gegn Chelsea Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sjö sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þýska liðið Werder Bremen hefur yfir 1-0 gegn Chelsea á heimavelli sínum og þá hefur Barcelona yfir 1-0 gegn Levski Sofia í Búlgaríu. Ekkert mark er komið í leik Liverpool og PSV, en markaskorara kvöldsins má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðu Vísis. Fótbolti 22. nóvember 2006 20:44
Vafasamt met hjá Spartak Bayern Munchen fór langt með að tryggja sér efsta sætið í B-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Spartak í Moskvu á gervigrasvelli liðsins. Spartak setti vafasamt met með jafnteflinu, því liðið hefur nú spilað 22 leiki án sigurs í Meistaradeildinni. Fótbolti 22. nóvember 2006 19:47
Ancelotti hefur miklar áhyggjur Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, segist hafa miklar áhyggjur af slöku gegni liðs síns á leiktíðinni. Þessi ummæli lét hann falla eftir að Milan tapaði 1-0 fyrir AEK frá Aþenu í Meistaradeildinni í gær. Milan hefur þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum, en það dregur ekki úr áhyggjum þjálfarans. Fótbolti 22. nóvember 2006 19:13
Mikil pressa á Eiði Smára í kvöld Útlit er fyrir að pressan sé mikil á Eið Smára Guðjohnsen hjá Barcelona í kvöld þegar liðið sækir Levski Sofia í Búlgaríu í Meistaradeildinni. Barcelona þarf nauðsynlega á sigri að halda og á heimasíðu félagsins í dag stendur að liðið muni treysta á að íslenski framherjinn sýni aðra eins frammistöðu og þegar hann skoraði tvö mörk gegn Mallorca í spænsku deildinni á dögunum. Fótbolti 22. nóvember 2006 18:15
Kennum okkur sjálfum um tapið Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, segir að tap liðsins gegn Celtic í Meistaradeildinni í gærkvöld sé engum öðrum að kenna en leikmönnunum sjálfum, sem hafi fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færin sín. Hann hefur ekki stórar áhyggjur af því að mæta Benfica í lokaleiknum í riðlakeppninni. Fótbolti 22. nóvember 2006 17:10
Benitez vill hirða toppsætið Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur lagt ríka áherslu á það við leikmenn sína að reyna að ná toppsætinu í C-riðli Meistaradeildarinnar í undirbúningi liðsins fyrir leikinn við PSV á Anfield í kvöld. Fótbolti 22. nóvember 2006 16:56
Þrír leikir í beinni á Sýn í kvöld Keppni í Meistaradeild Evrópu heldur áfram með miklum látum í kvöld og sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með þrjá leiki í beinni útsendingu. Leikur Werder Bremen og Chelsea verður í beinni á Sýn klukkan 19:30, Liverpool - PSV verður í beinni á Sýn Extra og Levski - Barcelona verður í beinni á Sýn Extra 2 á sama tíma. Fótbolti 22. nóvember 2006 15:04
Vissi að Saha næði ekki að skora Neil Lennon, fyrirliði Glasgow Celtic, hefur gefið það upp að Gary Neville hjá Manchester United hafi komið til sín skömmu áður en Louis Saha tók vítaspyrnuna á lokamínútum leiks liðanna í Meistaradeildinni í gær og sagt sér að Saha myndi ekki skora úr henni. Fótbolti 22. nóvember 2006 14:30
Mourinho ætlar að spila til sigurs Jose Mourinho segir sína menn í Chelsea ætla að sækja til sigurs gegn Werder Breen í Meistaradeildinni í kvöld, þó sigur gæti í raun orðið til þess að hjálpa erkifjendunum Barcelona að komast áfram upp úr riðlinum. Fótbolti 22. nóvember 2006 13:43