Dwyane Wade biður Lamar Odom um að koma heim til Miami Dwyane Wade ætlar að beita sínum áhrifum til að reyna að sannfæra Lamar Odom um að semja við Miami Heat víst að NBA-meistarnir í Los Angeles Lakers eru ekki lengur tilbúnir að bjóða Odom samning. Odom lék við hlið Dwyane Wade fyrir fimm árum þegar Wade var nýliði í deildinni. Körfubolti 18. júlí 2009 16:30
Yao Ming búinn að kaupa gamla körfuboltaliðið sitt í Kína Kínverski risa-miðherjinn Yao Ming er þegar farinn að huga að framtíð sinni í heimalandinu en hann hefur nú keypt sér körfuboltalið í Shanghai. Liðið heitir Shanghai Sharks eða Hákarlarnir frá Shanghai og er gamla liðið hans Yao sem hefur spilað með Houston Rockets í NBA-deildinni frá 2002. Körfubolti 16. júlí 2009 13:00
Los Angeles Lakers hætt við að bjóða Lamar Odom samning NBA-meistararnir í Los Angeles Lakers virðast hafa gefist upp á því að reyna að ná samkomulagi við Lamar Odom sem var mikilvægur hlekkur í meistaraliði liðsins á síðasta tímabili. Jerry Buss, eigandi Lakers, er nú hættur við að bjóða Odom samning. Körfubolti 16. júlí 2009 11:00
Shaq ætlar að koma með kung fú inn í NBA-deildina Shaquille O'Neal notar sérstakar aðferðir til að undirbúa sig fyrir tímabilið við hlið LeBron James hjá Cleveland Cavaliers. Hann er nú staddur í Kína á heimaslóðum kung fú íþróttarinnar sem hann hefur tekið ástfóstri við síðustu árin. Körfubolti 15. júlí 2009 11:30
Griffin byrjar vel með Clippers: Sjö stig á fyrstu 75 sekúndunum Blake Griffin var valinn fyrstur af Los Angeles Clippers í nýliðavali NBA-deildarinnar og í fyrsta leik sínum í sumardeildinni sýndi hann af hverju. Blake Griffin skoraði 27 stig og tók 12 fráköst í 93-82 sigri Clippers á nágrönnum sínum í Los Angeles Lakers. Körfubolti 14. júlí 2009 13:30
Orlando ætlar ekki að missa Gortat - jafnaði óvænt tilboð Dallas Dwight Howard getur áfram treyst á það að Marcin Gortat leysi sig af næstu fimm tímabilin því Orlando Magic hefur jafnað tilboð Dallas í pólska miðherjann sem var upp á 34 milljónir dollara fyrir fimm ára samning eða um 4,3 milljarða íslenskra króna. Körfubolti 14. júlí 2009 10:30
Artest rappar til minningar um Jackson Körfuboltamaðurinn Ron Artest hjá LA Lakers er mikill aðdáandi Michael Jackson. Hann hefur ákveðið að votta Jackson virðingu sína með því að taka upp hip-hop lag og breyta um treyjunúmer. Körfubolti 14. júlí 2009 08:00
McGrady ekki lengur númer 1 - spilar í peysu númer 3 Tracy McGrady stjörnuleikmaður Houston Rockets ætlar að skipta um númer á næsta tímabili. McGrady hefur alltaf spilað númer 1 en hækkar treyjunúmer sitt nú upp í 3. Nýr leikmaður Houston-liðsins, Trevor Ariza, spilar í númer 1 hjá Rockets-liðinu á næsta vetri. Körfubolti 14. júlí 2009 06:00
Anthony Parker kominn til Cleveland Cleveland Cavaliers hefur gert samning við Anthony Parker um að hann leiki með liðinu næsta vetur en þessi 198 sm og 34 ára gamli leikmaður getur bæði spilað sem bakvörður og lítill framherji. Körfubolti 13. júlí 2009 20:00
Grant Hill áfram í herbúðum Phoenix Suns Umboðsmaður hins 36 ára gamla Grant Hill hefur staðfest að leikmaðurinn verði áfram hjá Phoenix Suns þrátt fyrir áhuga liða á borð við Boston Celtics og New York Knicks en hann framlengir samning sinn um eitt ár. Körfubolti 12. júlí 2009 12:00
Kidd skrifar undir nýjan samning við Dallas Mavericks Stjörnuleikstjórnandinn Jason Kidd verður áfram í herbúðum Dallas Mavericks í NBA-deildinni en hann skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið. Körfubolti 11. júlí 2009 23:15
Wade: Enginn ágreiningur á milli mín og Riley Stórstjarnan Dwyane Wade hjá Miami Heat vísar á bug sögusögnum um að honum og Pat Riley forseti félagsins komi ekki saman. Wade sendi stjórn félagsins skýr skilaboð í fjölmiðlum þegar hann sagði að styrkja þyrfti leikmannahópinn til muna við fyrsta tækifæri og það vantaði fleiri stór nöfn til félagsins. Körfubolti 10. júlí 2009 16:00
Wallace: Boston besti möguleikinn á NBA-titli Kraftframherjinn Rasheed Wallace var kynntur sem nýr leikmaður Boston Celtics á blaðamannafundi í gær en leikmaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Körfubolti 10. júlí 2009 11:30
McDyess farinn frá Pistons til Spurs San Antonio Spurs gekk í gær frá félagsskiptum Antonio McDyess frá Detroit Pistons á frjálsri sölu en hann er annar leikmaðurinn á skömmum tíma til þess að yfirgefa Pistons þar sem Rasheed Wallace fór á dögunum til Boston Celtics. Körfubolti 9. júlí 2009 15:30
Óvíst með endurkomu Yao Ming Forráðamenn Houston Rockets eru enn í myrkrinu yfir meiðslum miðherjans Yao Ming sem gæti í versta falli misst af öllu næsta keppnistímabili í NBA-deildinni eftir að hafa fótbrotnað á vinstri fæti í annarri umferð úrslitakeppninnar gegn LA Lakers í Maí síðastliðnum. Körfubolti 9. júlí 2009 12:00
Iverson líst vel á að fara til Miami Heat Bakvörðurinn Allen Iverson er að leita sér að nýju félagi eftir stutt stopp hjá Detroit Pistons en leikmaðurinn er fáanlegur á frjálsri sölu. Körfubolti 8. júlí 2009 16:15
Viðræðum Detroit Pistons og litla herforingjans slitið Það verður ekkert af því að Avery Johnson taki við þjálfun NBA-liðsins Detroit Pistons eftir að það slitnaði upp úr viðræðunum í dag. Aðstoðarþjálfari Cleveland er nú líklegasti eftirmaður Michael Curry. Körfubolti 7. júlí 2009 19:30
Wade vill fá stærri nöfn til Miami Heat Stórstjarnan Dwyane Wade hjá Miami Heat hvetur forráðamenn félagsins til þess að gera allt til þess að félagið verði aftur samkeppnishæft um NBA-titilinn, eins fljótt og auðið er en Heat varð meistari í NBA-deildinni árið 2006. Körfubolti 7. júlí 2009 10:30
Jason Kidd verður áfram hjá Dallas Mavericks Jason Kidd hefur gert nýjan þriggja ára samning við Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta en líklegt þótti að þessi 37 ára gamli leikstjórnandi myndi finna sér nýtt lið í sumar. Íslenski boltinn 6. júlí 2009 19:30
Rasheed Wallace fer til Boston Celtics Boston Celtics stefna á að endurheimta NBA-titilinn eftir vonbrigði síðasta tímabils og hafa nú styrkt liðið með því að tryggja sér þjónustu kraftframherjans Rasheed Wallace á frjálsri sölu frá Detroit Pistons. Körfubolti 6. júlí 2009 16:30
Shaq ætlar að vinna hring fyrir LeBron Shaquille O´Neal og egóið hans er mætt til Cleveland. Shaq var ekki að spara stóru orðin frekar en fyrri daginn þegar hann var lentur í Cleveland. Körfubolti 3. júlí 2009 13:45
Artest til LA Lakers Önnur stór tíðindi voru í NBA-boltanum í dag þegar Ron Artest tilkynnti að hann væri á förum frá Houston Rockets til LA Lakers. Körfubolti 3. júlí 2009 12:59
Cuban vill halda Jason Kidd Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, sendir skilaboð sín til heimsins í gegnum Twitter og nú síðast tilkynnti hann heiminum að hann væri á förum til New York að ræða við Jason Kidd. Körfubolti 1. júlí 2009 17:15
Michael Curry rekinn frá Pistons Michael Curry fékk að kynnast því í dag að það er ekkert grín að þjálfa Detroit Pistons. Þar er krafa um árangur og þar sem árangurinn var enginn síðasta vetur hefur Curry verið rekinn eftir aðeins ár í starfi. Körfubolti 1. júlí 2009 15:15
Portland vildi líka fá Shaq Nýjasti liðsmaður Cleveland Cavaliers, Shaquille O´Neal, segir að Portland Trailblazers hafi einnig reynt að fá hann til sín. Körfubolti 28. júní 2009 15:30
Shaq og LeBron James í danskeppni Shaquille O'Neal gekk í raðir Cleveland Cavaliers í vikunni. Risinn er enn í fullu fjöri þrátt fyrir að vera að komast á aldur en samvinnu hans og LeBron James er beðið með eftirvæntingu. Shaq verður í treyju númer 33. Körfubolti 27. júní 2009 14:30
Orlando fær Vince Carter Orlando Magic var ekki lengi að svara því að Cleveland nældi sér í Shaquille O´Neal þar sem félagið er búið að krækja í Vince Carter frá New Jersey Nets. Körfubolti 26. júní 2009 09:22
Sonur Jordans gafst upp Það er ekki auðvelt að vera sonur besta körfuboltamanns allra tíma, Michaels Jordan, og reyna síðan sjálfur að stunda íþróttina. Það reyndi þó Jeff Jordan, tuttugu ára, en hann hefur nú gefist upp á því að reyna að feta í fótspor föður sins. Sport 26. júní 2009 08:30
Shaq á leiðinni til Cleveland Bandarískir fjölmiðlar greina frá því í dag að Shaquille O´Neal sé á leiðinni til Cleveland Cavaliers frá Phoenix Suns. Fréttirnar eru ekki staðfestar en eru sagðar koma frá traustum heimildum. Körfubolti 25. júní 2009 10:00
Jackson íhugar að sleppa útileikjunum Phil Jackson, þjálfari LA Lakers, mun ákveða sig í næsta mánuði hvort hann klárar lokaárið á samningi sínum við NBA-meistarana. Ákvörðun snýst að mörgu leyti um heilsufar hans. Körfubolti 24. júní 2009 12:30