Hækkað vexti íbúðalána þrisvar á einum mánuði Landsbankinn hækkaði í dag fasta vexti á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum í þriðja sinn á einum mánuði. Einnig voru fastir vextir á nýjum verðtryggðum íbúðalánum hækkaðir í fyrsta sinn frá því í mars. Neytendur 16. júní 2022 13:20
Milljónir tapist vegna hvatakerfis fasteignasala Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í hagfræði, hefur undanfarnar vikur vakið máls á slæmri stöðu á fasteignamarkaði og gagnrýnt feitar söluþóknanir fasteignasala. Í skoðanagrein sem Haukur birti á Vísi í dag bendir hann á að hvatakerfi fasteignasala sé þannig uppbyggt að betra sé fyrir fasteignasala að selja eignir hratt á lágu verði fremur en að bíða lengur og fá betra verð. Innlent 15. júní 2022 19:25
350 króna múrinn fallinn Bensínlítrinn er nú víða kominn yfir 350 krónur í kjölfar umtalsverðra hækkana seinustu misseri. Samkvæmt gögnum frá Gasvaktinni reið Orkan á vaðið á mánudag og hækkaði verð á flestum stöðvum sínum um 11,5 krónur úr 343,4 krónum í 354,9 krónur á lítrann. Neytendur 15. júní 2022 17:24
„Ég er algjörlega sammála, þetta er bara viðbjóðslegt“ Forstjóri flugfélagsins Play tekur undir að hótel sem farþega var boðið eftir að flugferð félagsins var aflýst hafi verið óboðlegt. Hann segir lítið annað hægt að gera en að biðjast afsökunar og læra af reynslunni. Innlent 14. júní 2022 23:40
Segir skyldu félagsins að reyna að sporna við hækkun á vöruverði til neytenda Framkvæmdastjóri Krónunnar segir það skyldu félagsins að reyna að sporna við hækkun á vöruverði til neytenda. Innlent 14. júní 2022 21:00
„Viðbjóðslegt“ hótel sem Play bauð strandaglópum í París Það var engin lúxussvíta sem beið farþega sem þáðu hótelgistingu frá Play í París í dag. „Algjör horbjóður“ raunar, samkvæmt einum þeirra farþega sem Vísir náði tali af. Flugfélagið aflýsti ferð sinni frá París til Íslands og bauð farþegum sínum þrjá kosti í kjölfarið; hótelgistingu og fyrsta far heim, seinkun heimferðar eða endurgreiðslu. Innlent 13. júní 2022 21:49
Eiga rétt á fullri endurgreiðslu og bótum Tugir kvartana hafa borist Neytendasamtökunum síðustu daga eftir óvenjumikið af aflýsingum á flugferðum. Formaður samtakanna segir flugfélögin oft sleppa því að upplýsa fólk um fullan rétt sinn á skaðabótum sem sé mun meiri en flestir átti sig á. Neytendur 13. júní 2022 20:30
„Þetta er fúlt“ Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair segir að það sé óneitanlega fúlt að hafa þurft að fella niður ferðir félagsins til London út mánuðinn. Hann vonast til þess að lausnir sem félagið hefur borið á borð breskra yfirvalda dugi til að leysa málið. Viðskipti innlent 12. júní 2022 12:24
Starfsmaður Búllunnar fékk skellinn í kjötmálinu Starfsmaður Búllunnar sem ákærður var fyrir tollalagabrot með því að veita rangar upplýsingar um innflutt kjöt þarf að greiða um fjörutíu milljónir í sekt vegna málsins. Sektin fellur þó niður haldi viðkomandi skilorð næstu tvö árin, meðal annars vegna þess að starfsmaðurinn var sú eina sem var látin svara til ábyrgðar fyrir málið, án þess þó að hafa haft af því nokkurn ávinning. Viðskipti innlent 11. júní 2022 13:32
Procter og Gamble kenna Amy Schumer um túrtappaskort Upp er kominn skortur á túrtöppum í Bandaríkjunum, en skorturinn virðist hafa ágerst á síðustu mánuðum. Stór framleiðandi kennir leikkonunni og grínistanum Amy Schumer um vandann og konur neyðist til að versla túrtappa á okurverði. Viðskipti 11. júní 2022 13:01
Óvænt símtal skömmu eftir brottför setti allt úr skorðum Tíu mínútum eftir að flugvél Niceair hélt í jómfrúarflug flugfélagsins til Bretlands barst símtal á skrifstofur félagsins þar sem þeim var tjáð að þau fengju ekki að taka farþega með til Íslands í því flugi. Hann segir ekki sameiginlegan skilning á skýringum varðandi hvert vandamálið sé. Innlent 10. júní 2022 20:22
Kálbögglar frá 1944 sendir til greiningar hjá rannsóknarstofu Framleiðslustjóri Sláturfélags Suðurlands segir tilfelli matareitrunar Guðjóns Friðrikssonar einangrað en fyrirtækið hefur sent vöru úr viðkomandi framleiðslulotu til greiningar á rannsóknarstofu. Fréttastofu hefur þó borist ábendingar um fleiri tilfelli matareitrunar vegna kálböggla 1944. Innlent 10. júní 2022 17:34
Innköllun á núðlum frá Lucky Me! Í fréttatilkynningu frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur kemur fram að Vietnam Market hafi í samráði við stofnunina stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Instant Noodles Pancit Canton Chili frá Lucky Me! Viðskipti innlent 10. júní 2022 15:43
Niceair aflýsir öllu Bretlandsflugi í júní Norðlenska flugfélagið Niceair mun aflýsa fyrirhuguðum ferðum félagsins frá Akureyri til Bretlands í júní. Viðskipti innlent 10. júní 2022 12:27
Samkeppniseftirlitið með verðhækkanir til skoðunar Samkeppniseftirlitið skoðar nú hvort greina megi samkeppnislagabrot í þeim verðhækkunum sem eiga sér stað um þessar mundir. Hagfræðingur bendir á að þeir vöruflokkar sem búi ekki við erlenda samkeppni hafi hækkað langmest. Neytendur 9. júní 2022 14:00
„Öll umræða um afregluvæðingu er til að hleypa svindli að“ Formaður félags leigubifreiðastjóra líst illa á allar breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur sem hann segir fullkomin eins og þau eru. Hann gefur lítið fyrir gagnrýni á kerfið eins og það er í dag og telur hagsmuni neytenda best borgið með núverandi löggjöf. Innlent 9. júní 2022 11:13
Óþörf vistarbönd þjóni hvorki hagsmunum leigubílstjóra né neytenda Viðskiptaráð hefur lagt fram umsögn um frumvarp innviðaráðherra um leigubifreiðaakstur á Íslandi. Þar er lagt til að ýmis skilyrði leigubifreðiaaksturs verði afnumin og að gamaldags gjaldmælar skuli heyra sögunni til. Innlent 8. júní 2022 17:06
Matarkarfan hækkar um allt að 16,6 prósent Matar- og drykkjarvörur hafa hækkað um allt að 16,6% á síðustu sjö mánuðum. Þetta sýnir ný verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands sem birt var í dag en í átta af átta verslunum sem könnunin nær til hækkað vörukarfa ASÍ. Neytendur 8. júní 2022 12:09
IKEA innkallar METALLISK espressókönnu IKEA hefur ákveðið að innkalla METALLISK espressókönnu með öryggisventli úr ryðfríu stáli vegna slysahættu af völdum yfirþrýstings. Viðskipti innlent 8. júní 2022 08:00
Segir ekki á dagskrá hjá borginni að fjölga auglýsingaskiltum Deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg segir borgina meðvitaða um gagnrýni á fjölda auglýsingaskilta á borgarlandi og að hún sé skiljanleg. Ekki standi til að fjölga skiltum í borginni. Innlent 4. júní 2022 22:33
Harmar auglýsingavæðingu almannarýmisins Íbúa í Hlíðahverfi er ekki skemmt yfir áformum Reykjavíkurborgar um að setja upp auglýsingaskilti við Klambratún en það væri þriðja slíka skiltið á aðeins tvö hundruð metra kafla meðfram túninu. Innlent 3. júní 2022 22:31
Heimilin taka bílalán sem aldrei fyrr Alls hafa um 9.600 bifreiðar verið nýskráðar á fyrstu fimm mánuðum ársins sem er um 65 prósenta aukning frá því í fyrra. Rúmur meirihluti nýskráðra ökutækja gengur þá fyrir öllu leyti eða að hluta fyrir rafmagni og virðist því rafbílavæðingin ganga vel. Viðskipti innlent 3. júní 2022 17:30
Hækka íbúðalánavexti í annað sinn á tveimur vikum Landsbankinn hækkaði á miðvikudag vexti óverðtryggðra íbúðalána í annað sinn á um tveimur vikum. Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum lánum til þriggja ára hækkuðu um 0,35 prósentustig og 0,30 prósentustig í tilfelli nýrra lána með föstum vöxtum til fimm ára. Neytendur 3. júní 2022 08:00
Bensínverð Orkunnar hækkar um 30 krónur með nokkrum metrum Verð á bensíni hefur aldrei verið hærra í krónum talið og er fyrirséð að það hækki enn meira á næstu vikum. Bensínfyrirtæki eiga erfitt með að skýra gríðarlegan verðmun milli eigin stöðva, jafnvel stöðva sem liggja hlið við hlið. Neytendur 2. júní 2022 21:00
Kalla eftir að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði Félag íslenskra bifreiðaeigenda kallar eftir því að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði, sem hefur aldrei verið hærra. Framkvæmdastjóri félagsins segir hækkanirnar sérstaklega koma niður á þeim sem hafi minna á milli handanna og þeim sem þurfi að ferðast langar vegalengdir. Neytendur 2. júní 2022 19:12
Kvóti fyrir rafbíla að klárast: Rafbílar gætu hækkað um meira en milljón í verði á næstu mánuðum Verð á rafbílum gæti hækkað um allt að eina og hálfa milljón á næstu mánuðum þegar fjöldakvóti fyrir skattaívilnanir stjórnvalda klárast. Miðað við núverandi sölu á rafbílum gæti kvótinn klárast í síðasta lagi eftir þrjá mánuði. Neytendur 2. júní 2022 07:00
Vara við sólhlífum í Costco sem geti valdið eldsvoða Costco á Íslandi hefur innkallað sólhlífar með sólarsellum og LED-ljósum frá SunVilla vegna hættu á því að rafhlaða þeirra ofhlaðist og valdi þannig eldsvoða og brunahættu. Viðskipti innlent 1. júní 2022 16:12
Bílaleigur stórauka bílakaup en horfa í auknum mæli til bensín- og dísilbíla Fleiri horfa nú til bensín- og dísilbíla, sérstaklega bílaleigur, eftir að verð á tengiltvinnbílum hækkaði í vor. Stóraukin umsvif bílaleiga eru meginástæða þess að sala á bílum jókst verulega á milli ára fyrstu mánuði ársins. Neytendur 1. júní 2022 10:49
Neytendastofa slær á fingur Aventuraholidays vegna „besta verðsins til Tenerife“ Neytendastofa hefur slegið á fingur Aventuraholidays ehf. fyrir að hafa birt auglýsingar þar sem því var haldið fram að ferðaskrifstofan biði upp á „Besta verðið til Tenerife í vetur“ og „Aventura tryggir bestu hótelin á Tenerife á miklu betra verði“. Neytendur 27. maí 2022 10:59
Ekkert eðlilegt við að fjölmiðlar gefi vinnu sína Viðskiptablaðið hefur takmarkað það magn efnis sem er aðgengilegt lesendum að endurgjaldslausu. Ritstjóri miðilsins segir ekkert eðlilegt við það að fjölmiðlar gefi vinnu sína og um sé að ræða mjög eðlilegt skref. Viðskipti innlent 25. maí 2022 15:32