Ólafur Stephensen

Ólafur Stephensen

Greinar eftir Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda.

Fréttamynd

Tími breytinga

Tölur, sem voru kynntar á ráðstefnu Félags kvenna í atvinnurekstri, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs á föstudag, sýna að þrátt fyrir að sett hafi verið lög um jafnari hlutföll kynjanna í stjórnum fyrirtækja fjölgar konum í stjórnum mjög hægt. Hlutfall kvenna meðal stjórnarmanna í 300 stærstu fyrirtækjum landsins er um 19 prósent, en hlutur annars kynsins má ekki vera lakari en 40% samkvæmt löggjöfinni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvernig er velferðin tryggð?

Stundum þarf að benda á sjálfsagða hluti, sem eiga að liggja í augum uppi og vera á hvers manns vitorði en eru það af einhverjum orsökum ekki. Þetta er gert í svokallaðri skoðun Viðskiptaráðs, sem sagt var frá hér í blaðinu í vikunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Yfirvofandi læknaskortur

Kjör heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi standast engan veginn samjöfnuð við það sem gerist í nágrannalöndunum. Ein birtingarmynd þess kemur fram í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær, þar sem sagt var frá því að margir læknar og hjúkrunarfræðingar á Íslandi notuðu sumarleyfi sín og uppsöfnuð vaktafrí til að fara á nokkurs konar vertíð í Svíþjóð og Noregi og hala inn margra mánaða laun á stuttum tíma.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mörg spurningamerki

Gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er alla jafna fagnaðarefni. Nú hafa verið gerðir kjarasamningar til þriggja ára. Það eykur vissulega líkurnar á stöðugleika og friði á vinnumarkaðnum á þeim tíma og að íslenzkt atvinnulíf nái vopnum sínum og geti á nýjan leik farið að skapa atvinnu og hagvöxt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Til hamingju með Hörpu

Full ástæða er til að óska Íslendingum til hamingju með tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu, þar sem fyrstu sinfóníutónleikarnir voru haldnir í fyrrakvöld. Loksins hefur Ísland eignazt tónlistarhús sem stenzt samjöfnuð við mörg þau beztu í nágrannalöndum okkar. Loksins hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands fengið samastað sem henni hæfir og leyfir henni að hljóma eins og hún á skilið. Loksins fær Íslenzka óperan sal þar sem von er til að stórar sýningar standi undir sér.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hættuleg tilraunastarfsemi

Innan Evrópusambandsins hafa um nokkurt skeið verið til umræðu hugmyndir um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfi sambandsins sem taka mjög mið af íslenzka kvótakerfinu. Framkvæmdastjórn ESB hefur kynnt sér íslenzka kerfið vel, leitað til íslenzkra ráðgjafa um endurskoðun sjávarútvegsstefnu ESB og litið um margt til Íslands sem fyrirmyndar um stjórn fiskveiða.

Fastir pennar
Fréttamynd

Önnur Kalifornía?

Beint lýðræði er í sókn víða um heim, einkum á Vesturlöndum. Yfir helmingur þjóðaratkvæðagreiðslna, sem efnt hefur verið til frá frönsku byltingunni, hefur átt sér stað á undanförnum 25 árum. Nýlega ákváðu íbúar í Suður-Súdan í

Fastir pennar
Fréttamynd

Sameiginleg ábyrgð

Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar og forysta ríkisstjórnarinnar hafa fundið sér sameiginlegan blóraböggul ef marka má ræðuhöld gærdagsins, Landssamband íslenzkra útvegsmanna. Hin ófrávíkjanlega krafa atvinnurekenda að fá einhverja vissu um starfsskilyrði sjávarútvegsins áður en gengið yrði frá kjarasamningum er kölluð "grímulaus sérhagsmunagæzla“ og "kúgun“ LÍÚ.

Skoðun
Fréttamynd

Lífrænn innflutningur

Áhugi íslenzkra neytenda á lífrænum búvörum hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Nýlega er búið að stofna Samtök lífrænna neytenda. Jafnframt hefur umræða um umhverfisvænan landbúnað og velferð dýra verið býsna hávær að undanförnu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kapp með forsjá

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ákveðið að flytja ekki Landhelgisgæzluna til Suðurnesja að svo stöddu og þar með gengið þvert gegn væntingum heimamanna og rofið þau fyrirheit sem margir töldu að ríkisstjórnin hefði gefið þegar hún fundaði í Reykjanesbæ og lofaði að skoða málið. Þetta er engu að síður rétt ákvörðun.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sterk staða - mikil ábyrgð

Fréttablaðið á tíu ára afmæli í dag. Blaðið var fyrst gefið út 23. apríl árið 2001. Þá voru ekki margir aðrir en aðstandendur blaðsins sem höfðu trú því að útgáfan gæti gengið, eins og Eyjólfur Sveinsson, stofnandi blaðsins, segir frá í viðtali í blaðinu í dag.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þungum steinum velt

Páskafríið er frábært. Fimm frídagar sem er hægt að ganga að sem vísum, ólíkt jólafríinu sem er mjög misjafnlega vinnuveitendavænt, og án streitunnar og gjafakapphlaupsins sem stundum fylgir jólahátíðinni. Nú er tækifærið til að njóta góðra stunda með vinum og fjölskyldu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hnútur sem þarf að leysa

Viðræður atvinnurekenda, verkalýðshreyfingar og stjórnvalda komust í vondan hnút síðastliðinn föstudag þegar kjaraviðræður sigldu í strand. Sjávarútvegsmál voru stærsta ágreiningsefnið en ríkisstjórnin gat ekki sýnt vinnuveitendum á spilin um það hvaða breytingar yrðu gerðar á stjórn fiskveiða.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vantraust á pólitíkina

Atkvæðagreiðslan um tillögu Sjálfstæðisflokksins um vantraust á ríkisstjórnina veikti hana en felldi hana ekki. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, varð sá þriðji úr þingflokknum til að ganga úr skaftinu. Meirihluti ríkisstjórnarinnar á þingi er nú orðinn eins naumur og hann getur orðið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lýðræðislegt gjald

Sautján ára aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu virðist furðu oft gleymast í umræðum um Evrópumál. Hún gleymist til dæmis þegar talað er um "aðlögunarviðræður“ en ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið og því haldið fram að íslenzkt samfélag þurfi að taka gagngerum breytingum, áður en til aðildar að ESB getur komið. Þeir sem tala svona hafa ekki tekið eftir þeim gífurlegu breytingum sem EES-aðildin hefur leitt af sér, en í samanburðinum er undirbúningur stjórnsýslunnar fyrir hugsanlega ESB-aðild smámunir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ábyrgð og afleiðingar

Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin í fyrradag var afgerandi. Þjóðin hafnar samningaleiðinni og vill þess í stað láta reyna á lögmæti hins evrópska innistæðutryggingakerfis fyrir dómstólum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Já fyrir atvinnu og uppbyggingu

Hverjir ættu að setja krossinn við já á kjörseðlinum í Icesave-kosningunni í dag? Það ættu þeir klárlega að gera sem vilja ljúka stjórnmáladeilum og lögfræðiþrefi við nágranna- og vinaríki okkar og tryggja Íslandi þann stuðning og samstarf sem við þurfum á að halda til að vinna okkur út úr efnahagskreppunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Elítusjónarmiðin

Því er gjarnan haldið fram í umræðum um Icesave-samninginn að það sé ósanngjarnt að skattgreiðendur þurfi að greiða skuldir sem einkaaðilar stofnuðu til.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þögnin ekki í boði

Fréttablaðið segir í dag frá nýrri skýrslu fagráðs þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrota, en þar kemur fram að til kasta fagráðsins komu tíu mál á síðasta ári, þar af sex á síðustu fjórum mánuðum ársins. Flest eru málin gömul og jafnvel fyrnd að lögum, þannig að þau hafa ekki komið til kasta lögreglu. Tveir af gerendunum voru hins vegar enn í starfi á vegum kirkjunnar eða tengdra stofnana og hefur báðum verið vikið frá störfum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lagzt á fréttir?

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til nýrra upplýsingalaga á Alþingi. Í frumvarpinu er meðal annars tekið mið af reynslunni af fyrri upplýsingalögum, sem voru mikil réttarbót þegar þau tóku gildi í ársbyrjun 1997, en fram að því höfðu stjórnvöld í raun getað haft sína hentisemi um það hvort þau veittu til dæmis fjölmiðlum aðgang að gögnum mála, sem voru til meðferðar í stjórnsýslunni. Lögin hafa stórbætt aðgang almennings að upplýsingum og um leið aukið aðhald að störfum stjórnmála- og embættismanna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Óvissan er verst

Krafa Samtaka atvinnulífsins, um að afstaða ríkisstjórnarinnar til framtíðarfyrirkomulags fiskveiðistjórnunar liggi fyrir áður en gerð verður lokatilraun til að ná kjarasamningum til þriggja ára, mætir litlum

Fastir pennar
Fréttamynd

VG í stríði

Framganga Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs vegna hernaðaraðgerða gegn Gaddafí, einræðisherra í Líbíu, hefur verið mótsagnakennd, svo ekki sé meira sagt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Aðlögunargrýlan

Andstæðingar umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu hafa búið sér til ógurlega Grýlu, sem heitir aðlögun. Þeir halda því fram að aðildarviðræðurnar hafi snúizt upp í aðlögunarviðræður, þar sem Íslendingar verði áður en til aðildar kemur þvingaðir til að gera alls konar breytingar, sem þýði að Ísla

Fastir pennar
Fréttamynd

Fyrirsláttulok?

Ríkisendurskoðun tekur í nýrri skýrslu undir með þeim sem hafa gagnrýnt samkrull ríkisvaldsins og Bændasamtakanna. Margir hafa talið í hæsta máta óeðlilegt að hagsmunasamtökum sé falið að úthluta ríkisstyrk

Fastir pennar