Ólafur: Hrikalega gott að byrja á sigri „Það er hrikalega gott að byrja veturinn, það var klassa mæting og góður fyrsti leikur þó það megi margt bæta" sagði Ólafur Andrés Guðmundsson leikmaður FH eftir 34-25 sigur á Aftureldingu í fyrsta leik N1 deildarinnar á tímabilinu. Handbolti 30. september 2010 21:43
Framarar unnu sex marka sigur á nýliðum Selfoss Framarar unnu sex marka sigur á nýliðum Selfoss í 1. umferð N1 deildar karla í kvöld en spilað var í Framhúsinu í Safamýri. Framarar voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16-12. Handbolti 30. september 2010 21:36
Atli Hilmars: Bjarni er markagráðugri en allir Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, var verulega ánægður með frammistöðu sinna manna í fyrsta leik Íslandsmótsins. Þeir tóku HK-inga í kennslustund í Digranesinu. Handbolti 30. september 2010 21:17
Erlingur: Eins og það væri slökkt á liðinu „Þetta tap var alltof stórt tap. Við byrjuðum ágætlega en svo var eins og það væri slökkt á liðinu," sagði Erlingur Richardsson, þjálfari HK, eftir að liðið fékk skell gegn Akureyri í 1. umferð N1-deildarinnar í kvöld. Handbolti 30. september 2010 21:03
Umfjöllun: Nýliðarnir lítil fyrirstaða fyrir meistaraefnin FH vann í kvöld góðan sigur á Aftureldingu, 34-25, í N1-deild karla. Staðan í hálfleik var 17-12 en eins og tölurnar gefa til kynna var sigur FH lengst af aldrei í hættu. Handbolti 30. september 2010 20:55
Umfjöllun: Bjarni Fritzson stýrði flugeldasýningu í Digranesi Akureyri átti ekki í miklum vandræðum með að skella HK í fyrstu umferð N1-deildar karla í kvöld. Lokatölur 29-41. Bjarni Fritzson fór hamförum í leiknum og skoraði alls 14 mörk fyrir gestina. Handbolti 30. september 2010 19:56
Logi spilar sinn fyrsta leik fyrir FH í kvöld Stuðningsmenn FH munu örugglega fjölmenna í Krikann í kvöld þegar Logi Geirsson spilar sinn fyrsta alvöru leik fyrir FH í sex ár. Handbolti 30. september 2010 16:00
Júlíus: Vissum að þetta yrði erfitt „Ég er ekki sáttur enda aldrei hægt að vera sáttur við tap,“ sagði Júlíus Jónasson, þjálfari Vals, eftir tapleikinn gegn Haukum í N1-deild karla í kvöld. Handbolti 29. september 2010 22:52
Halldór: Stemning og vilji í liðinu Haukar litu vel út í kvöld þegar liðið vann fjögurra marka sigur á Val, 30-26, í N1-deild karla í kvöld. Sigurinn var þó mun öruggari en tölurnar gáfu til kynna. Handbolti 29. september 2010 22:45
Umfjöllun: Haukar gáfu tóninn Haukar fengu fyrstu stig vetrarins í N1-deild karla er liðið vann góðan útisigur á Val í Vodafone-höllinni, 30-26. Handbolti 29. september 2010 22:16
FH og Fram spáð titlinum Kynningarfundur fyrir N1-deildirnar í handbolta fór fram í hádeginu. Þar var meðal annars birt hin árlega spá þjálfara og forráðamanna liðanna. Handbolti 27. september 2010 13:17
Heiðar Þór ætlar að spila með Valsmönnum í vetur Hornamaðurinn Heiðar Þór Aðalsteinsson hefur gert tveggja ára samning við Valsmenn og mun því spila undir stjórn Júlíusar Jónassonar í N1 deild karla í handbolta á komandi tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals. Handbolti 22. september 2010 15:15
Guðjón með tíu mörk og Selfoss vann loksins Ragnarsmótið Hinn skeleggi hornamaður, Guðjón Drengsson, skoraði tíu mörk fyrir Selfoss í úrslitaleik Ragnarsmótsins í handbolta í gær. Handbolti 5. september 2010 15:30
Ragnarsmótið í handbolta hefst í kvöld í beinni á netinu Í kvöld hefst Ragnarsmótið á Selfossi sem er undirbúningsmót liða í N1-deild karla fyrir komandi tímabil. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á SportTV. Handbolti 1. september 2010 17:00
Arnar og Hafþór til Aftureldingar Nýliðar Aftureldingar í N1-deild karla hafa fengið fínan liðsstyrk en tveir leikmenn gengu í raðir félagsins í dag. Handbolti 18. ágúst 2010 14:57
Stefán með slitna hásin: Ég er ekki óheppnasti handboltamaðurinn Hinn lunkni hornamaður Fram, Stefán Baldvin Stefánsson, verður væntanlega ekkert með Frömurum í vetur eftir að hafa slitið hásin á æfingu í vikunni. Handbolti 13. ágúst 2010 07:00
Sveinbjörn aftur norður til Akureyrar Sveinbjörn Pétursson mun spila með Akureyri á næstu leiktíð. Hann skrifar að nýju undir samning á morgun þegar hann kemur aftur norður en Akureyri þarf að borga HK fyrir leikmanninn. Handbolti 12. ágúst 2010 06:00
Íslenska U20 liðið endaði í áttunda sæti Spánn vann Ísland í kvöld 34-32 í leik um sjöunda sætið á Evrópumeistaramóti U20 liða í Slóvakíu. Handbolti 7. ágúst 2010 20:32
Strákarnir mæta Frökkum á morgun Það er frídagur á Evrópumeistaramóti U20 liða í Slóvakíu. Á morgun hefst keppni í milliriðli og mun íslenska liðið etja kappi við Frakka á morgun og Danmörku á miðvikudag. Handbolti 2. ágúst 2010 14:00
Níu marka sigur á Ísrael Strákarnir okkar unnu öruggan sigur á Ísrael á Evrópumóti U20 sem fram fer í Slóvakíu. Ísland vann 40-31. Handbolti 31. júlí 2010 15:51
Dregið í Evrópukeppnum í handbolta - Haukar mæta Íslandsvinum Íslandsmeistarar Hauka fara til Ítalíu í Evrópukeppni félagsliða í handbolta og mæta þar Conversano í haust. Dregið var í morgun en fjögur íslensk lið voru í pottinum. Handbolti 27. júlí 2010 14:30
Sveinbjörn Pétursson aftur til Akureyrar? Markmaðurinn Sveinbjörn Pétursson gæti verið á leiðinni aftur til Akureyrar. Hann hefur spilað með HK undanfarin ár en hefur hug á því að spila með sínu gamla félagi á næsta tímabili. Handbolti 27. júlí 2010 13:30
Daníel Einarsson semur við Akureyri Daníel Einarsson mun í dag skrifa undir samning við Akureyri Handboltafélag. Daníel kemur frá Stjörnunni og mun hann gera eins árs samning við félagið. Handbolti 27. júlí 2010 12:30
Guðjón Drengsson semur við Selfoss Guðjón Drengsson, hinn eldfljóti hornamaður, er genginn í raðir nýliða Selfoss í N1-deild karla. Guðjón fer til liðsins frá Fram en þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. Handbolti 14. júlí 2010 12:33
Valdimar: Valur mjög spennandi kostur Besti leikmaður N1-deildar karla á síðustu leiktíð, Valdimar Fannar Þórsson, skrifaði undir samning við Val í dag. Hann kemur til félagsins frá HK. Handbolti 7. júlí 2010 15:42
Bjarni skrifaði undir við Akureyri í slopp - Nautakjöt að launum Akureyri Handboltafélag hélt blaðamannafund um helgina á heldur óvenjulegum stað, í úrbeiningarsal Norðlenska. Þar skrifaði Bjarni Fritzson meðal annars undir samning við félagið. Handbolti 5. júlí 2010 12:00
Tveir efnilegir á námskeið í Svíþjóð Tveir efnilegustu markverðir landsins, Aron Rafn Eðvarðsson og Arnór Freyr Stefánsson, eru staddir í Svíþjóð þessa dagana. Handbolti 2. júlí 2010 07:30
Bjarni Fritzson til Akureyrar: Ætla að taka þetta alla leið Markahæsti leikmaður N1-deildarinnar á síðustu leiktíð, Bjarni Fritzson mun flytja búferlum til Akureyrar í sumar. Hann mun á morgun skrifa undir eins árs samning við Akureyri Handboltafélag sem hafði samband við hann strax eftir síðasta tímabil þegar Bjarni lék með FH. Hann hefur spilað 39 landsleiki. Handbolti 1. júlí 2010 08:15
Bjarni Fritzson fer frá FH og semur við Akureyri Bjarni Fritzson hefur ákveðið að semja við Akureyri og spilar því með félaginu á næstu leiktíð. Bjarni fer því frá FH en hann var markahæsti leikmaður N1-deildarinnar á síðasta tímabili og var fyrir vikið valinn í lið mótsins. Handbolti 30. júní 2010 18:00
Elvar á leið til Danmerkur Handknattleikslið Vals heldur áfram að missa leikmenn en stórskyttan Elvar Friðriksson hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið Lemvig. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Handbolti 26. júní 2010 13:30