Víkingar ákveða í dag hvort þeir taki sæti Kríumanna í Olís-deildinni Víkingar ákveða seinna í dag hvort þeir taki sæti Kríu í Olís-deild karla í handbolta. Handbolti 26. júlí 2021 11:41
Grótta svarar Kríu: Geta ekki krafist að Grótta dragi úr þjónustu sinni við yngri iðkendur Handknattleiksdeild Gróttu hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirrar sem Kría sendi frá sér fyrr í dag. Kríumenn, sem hafa æft og spilað í íþróttahúsi Gróttu síðustu ár, vönduðu þeim síðarnefndu ekki kveðjurnar í yfirlýsingu sinni. Handbolti 25. júlí 2021 17:00
Kría sendir pillu á Gróttu og Seltjarnarnesbæ - „Ný lið eru ekki velkomin“ Handknattleikslið Kríu hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem staðfest er að liðið muni ekki vera á meðal keppnisliða í Olís-deild karla á næsta tímabili, og hefur félagið verið lagt niður. Það er vegna aðstöðuleysis þar sem félagið sendir væna pillu til bæði Gróttu og bæjaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Handbolti 25. júlí 2021 16:05
Afturelding fær túniskan landsliðsmann Aftureldingu hefur hlotist liðsstyrkur fyrir komandi átök í Olís-deild karla í handbolta. Þeir sömdu við Túnisbúann Hamza Kablouti. Handbolti 24. júlí 2021 14:31
Sagan endurtekur sig - Víkingar vilja sæti Kríu í Olís-deildinni Víkingar frá Reykjavík vilja taka sæti Kríu í Olís-deild karla í handbolta á komandi leiktíð. Kría hafði tryggt sér sæti í deildinni en mun ekki senda lið til leiks. Síðast þegar Víkingur komst í efstu deild fékk það sæti undir svipuðum kringumstæðum. Handbolti 24. júlí 2021 12:00
Fá litáískan landsliðsmann í stað Einars Rafns FH hefur samið við litáíska landsliðsmanninn Gytis Smantauskas um að leika með liðinu í Olís-deild karla í handbolta á næsta tímabili. Handbolti 22. júlí 2021 11:22
Krían flýgur ekki í Olís-deildinni Kría ætlar ekki að taka þátt í Olís-deild karla í handbolta á næsta tímabili. Handbolti 21. júlí 2021 16:34
Stjarnan fær liðsstyrk úr Mosfellsbæ Handboltalið Stjörnunnar hefur gengið frá þriggja ára samningi við markvörðinn Arnór Frey Stefánsson, sem kemur til liðsins frá Aftureldingu. Handbolti 10. júlí 2021 20:45
„Ævintýri fyrir okkur fjölskylduna“ Anton Rúnarsson, leikmaður Íslandsmeistara Vals í handbolta, er á leið í atvinnumennsku þrátt fyrir að vera 33 ára gamall. Hann segist líkast til hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Val. Handbolti 4. júlí 2021 18:45
Kría ekki áfram á Seltjarnarnesi: „Við erum heimilislausir“ Kría, nýliðar í Olís-deild karla í handbolta á næstu leiktíð, eru án heimilis eftir að félagið fékk þær fréttir að liðið gæti ekki lengur æft né spilað heimaleiki sína á Seltjarnarnesi. Handbolti 24. júní 2021 20:31
„Stefnum á að vinna titla á næsta ári“ „Alla leið. Eins langt og ég get komist,“ segir hinn 19 ára gamli Blær Hinriksson, aðspurður hvert hann stefni. Blær var í gær útnefndur efnilegasti leikmaður Olís-deildarinnar í handbolta í vetur eftir að hafa stimplað sig vel inn á sinni fyrstu leiktíð með Aftureldingu. Handbolti 24. júní 2021 11:30
Nagy verður ekki með Valsliðinu næsta vetur Martin Nagy, markvörður Íslandsmeistara Vals, sem fór á kostum í úrslitakeppninni með Valsliðinu hefur samkvæmt heimildum íþróttadeildar samið við þýska b-deildarliðið Gummersbach. Handbolti 23. júní 2021 16:30
Ævinlega þakklátur fyrir það hve vel var tekið á móti manni Árni Bragi Eyjólfsson segist hafa notið sín í „frábæru umhverfi“ á Akureyri en það skilaði sér í því að hann var í dag valinn besti leikmaður Olís-deildarinnar í handbolta í vetur. Handbolti 23. júní 2021 16:24
Rut og Árni Bragi best og Rakel Sara og Blær efnilegust Rut Jónsdóttir og Árni Bragi Eyjólfsson voru valin bestu leikmenn Olís-deildanna í handbolta á lokahófi HSÍ. Handbolti 23. júní 2021 12:26
Kría tekur flugið í Olís-deildinni Alls eru 32 karlalið og 20 kvennalið skráð til keppni á Íslandsmótum meistaraflokka á næstu leiktíð. Handbolti 21. júní 2021 16:15
Myndasyrpa og myndskeið: Valsarar meistarar í 23. sinn Valsarar urðu í gærkvöld Íslandsmeistarar karla í handbolta í 23. sinn eftir 34-29 sigur á Haukum í síðari leik liðanna í úrslitaeinvíginu um titilinn. Þeir fögnuðu eðlilega vel í leikslok. Handbolti 19. júní 2021 10:30
Síðasti leikur í deildinni gegn Val truflaði mig en ekki þetta einvígi Björgvin Páll Gústavsson markmaður Hauka var afar svekktur að kveðja Haukana með silfur. Sport 18. júní 2021 22:25
Það var erfitt að missa tvo lykilvarnarmenn út í meiðsli Aron Kristjánsson þjálfari Hauka var afar svekktur með tap í úrslitum gegn Val eftir góða deildarkeppni. Sport 18. júní 2021 22:10
Ég hef orðið Íslandsmeistari með öllum liðum sem ég hef spilað fyrir Valur varð Íslandsmeistari í 23. sinn í kvöld eftir að hafa unnið Hauka 29-34. Róbert Aron Hostert leikmaður Vals var í skýjunum eftir að hafa unnið sinn fjórða Íslandsmeistaratitil. Handbolti 18. júní 2021 22:00
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 29-34 | Frábærir Valsmenn Íslandsmeistarar í 23. sinn Valur varð í kvöld Íslandsmeistari í handbolta karla í 23. sinn eftir sigur á Haukum, 29-34, á Ásvöllum. Valur vann einnig fyrri leik liðanna á þriðjudaginn, 32-29, og úrslitaeinvígið, 66-58 samanlagt. Handbolti 18. júní 2021 21:30
Kemur í ljós í upphitun hvort Stefán og Brynjólfur verði með Haukum í kvöld Haukar mæta Val í síðari leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í kvöld. Haukar töpuðu fyrri leik liðanna með þriggja marka mun og eiga því erfitt verkefni fyrir höndum á Ásvöllum í kvöld. Mögulega verða þeir án tveggja lykilmanna. Handbolti 18. júní 2021 15:16
Haukar unnið þrjú Íslandsmeistaraeinvígi gegn Val í röð Valur getur orðið Íslandsmeistari í handbolta karla í 23. sinn í kvöld. Þeir þurfa þá að gera nokkuð sem þeir hafa ekki gert síðan 1994; vinna Hauka í úrslitaeinvígi. Handbolti 18. júní 2021 13:31
Unnu tvo síðustu Íslandsmeistaratitla sína í Hafnarfirði og geta nú endurtekið leikinn Úrslitin í Olís deild karla í handbolta ráðast á Ásvöllum í kvöld og það ætti að færa Valsmönnum góðar minningar að geta orðið meistarar í Hafnarfirði. Handbolti 18. júní 2021 12:01
Fóru yfir hvort Þráinn Orri hefði átt að fá rautt í leik Vals og Hauka Þráinn Orri Jónsson, leikmaður Hauka, átti mögulega að fá rautt spjald í leik Hauka og Vals í úrslitarimmu Olís deildar karla í handbolta. Atvikið var til umræðu í Seinni bylgjunni að leik loknum og má sjá í spilaranum neðst í fréttinni. Handbolti 16. júní 2021 23:31
Gefið ellefu stoðsendingar í síðustu tveimur leikjum þótt hann spili ekki sókn Einari Þorsteini Ólafssyni er fleira til lista lagt en að spila vörn. Hann hefur nefnilega gefið samtals ellefu stoðsendingar í síðustu tveimur leikjum Vals þrátt fyrir að spila ekki í einni einustu uppstilltri sókn. Handbolti 16. júní 2021 14:45
Tólfhundruð mega sjá meistara krýnda á Ásvöllum Mikil spenna ríkir fyrir seinni leik Hauka og Vals í úrslitunum um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta eftir þriggja marka sigur Vals á Hlíðarenda í gærkvöld, 32-29. Handbolti 16. júní 2021 13:00
Litáískt landsliðspar á Selfoss Litáíska handboltaparið Karolis Stropus og Roberta Ivanauskaité hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til næstu þriggja ára. Handbolti 16. júní 2021 09:38
Einstaklingsmistök hjá okkur voru allt of dýr Björgvin Páll Gústafsson markvörður Hauka var svekktur með tap í fyrsta leik gegn Val í úrslitaeinvíginu. Leikurinn endaði 32-29. Handbolti 15. júní 2021 22:00
Valur er með dýrara lið heldur en Haukar Valur tók frumkvæðið í fyrri viðureign gegn Haukum í úrslita einvíginu. Leikurinn endaði með þriggja marka sigri Vals 32-29. Aron Kristjánsson þjálfari Hauka var allt annað en sáttur með dómgæsluna í leiknum en gaf þó lítið fyrir það eftir leik. Handbolti 15. júní 2021 21:56
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 32-29 | Valsmenn standa vel að vígi Valur vann þriggja marka sigur á Haukum, 32-29, í fyrri leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í kvöld. Seinni leikur liðanna fer fram á Ásvöllum á föstudaginn og þá ræðst hvort þeirra verður Íslandsmeistari. Handbolti 15. júní 2021 21:29