Fylgir ráðgjöf Hafró um leyfilegan heildarafla Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár. Reglugerðin fylgir vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og felur meðal annars í sér þrettán prósenta lækkun aflamarks á þorski. Innlent 25. júní 2021 14:18
Telur sjómenn hlunnfarna um tíu milljarða árlega Daði Már Kristófersson, prófessor í auðlindahagfræði og varaformaður Viðreisnar, segir opinbert verð á fiski 27 prósentum lægra en fyrirliggjandi verðmæti fisks segir til um. Innlent 24. júní 2021 15:31
Gallað veiðigjald Fiskveiðar Íslendinga hafa skilað miklum arði undanfarna áratugi. Helstu ástæður þess eru þeir hvatar til hagræðingar og verðmætasköpunar sem kvótakerfið skapar sem og góð staða helstu nytjastofna. Skoðun 24. júní 2021 15:26
Samningslausir sjómenn og viljalausir útgerðarmenn Sjómenn hafa nú verið án kjarasamnings í heila 18 mánuði. Þrátt fyrir marga fundi með viðsemjendum gengur hvorki né rekur við samningaborðið, enda virðist samningsvilji útgerðarmanna enginn. Skoðun 23. júní 2021 10:01
Bein útsending: Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu klukkan 13 í dag um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Innlent 22. júní 2021 12:15
Stend með strandveiðum! Efling sjávarbyggða landsins er mér afar hugleikin. Hef ég sem formaður atvinnuveganefndar unnið að eflingu Strandveiðikerfisins með þverpólitískri samstöðu innan atvinnuveganefndar á þessu kjörtímabili. Skoðun 22. júní 2021 12:00
Segja ábyrgðina alfarið á herðum Jóhannesar Eftir að hafa birt afsökunarbeiðni í formi heilsíðuauglýsinga í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun, hafa forsvarsmenn Samherja nú birt yfirlýsingu og aðra afsökunarbeiðni á heimasíðu félagsins. Viðskipti innlent 22. júní 2021 08:34
Þorsteinn Már biðst afsökunar fyrir hönd Samherja Þorsteinn Már Baldvinsson undirritar afsökunarbeiðni sem birtist sem heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann að „ámælisverðir viðskiptahættir“ hafi fengið að viðgangast í starfsemi útgerðar Samherja í Namibíu. Viðskipti innlent 22. júní 2021 06:24
Brim hf. er sýkn af öllum kröfum slasaðs sjómanns Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í dag upp sýknudóm í máli sjómanns gegn Brimi hf. Sjómaðurinn höfðaði mál til greiðslu óskertra staðgengilslauna vegna vinnuslysa árið 2015 og 2016. Innlent 21. júní 2021 18:53
Skipstjóri sviptur skipstjórnarréttindum vegna siglingar undir áhrifum fíkniefna Landsréttur staðfesti í dag sakfellingardóm yfir skipstjóra sem gerðist sekur um að stýra fiskiskipi undir áhrifum tetrahýdrókannabínóls og metýlfenídats. Innlent 18. júní 2021 15:59
Fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra ráðinn framkvæmdastjóri Háafells Gauti Geirsson sjávarútvegsfræðingur hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Háafells ehf., fiskeldisfyrirtækis í eigu Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. Viðskipti innlent 18. júní 2021 11:27
Bein útsending: Kynna 45 milljarða króna uppbyggingu laxeldis á Reykjanesskaga Samherji fiskeldi ehf. hefur gert samninga við HS Orku um uppbyggingu 40 þúsund tonna laxeldis á landi í Auðlindagarðinum við Reykjanesvirkjun. Almennur kynningarfundur um verkefnið hefst í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ klukkan 14 í dag. Viðskipti innlent 16. júní 2021 13:31
„Alls ekki óþekkt að svona staða komi upp“ Hafrannsóknastofnun hefur lagt til þrettán prósenta lækkun á þorskkvóta eftir ofmat á stofninum. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi lýsa áhyggjum af stöðu hafrannsókna og krefjast úrbóta. Innlent 15. júní 2021 19:35
Saka Umhverfisstofnun um að verðlauna sérstaklega brotastarfsemi Arnarlax Landvernd og Icelandic Wild Live Fund krefjast skýringa á starfsleyfi sem Umhverfisstofnun hefur veitt Arnarlaxi þrátt fyrir brot á starfsleyfi með notkun koparoxíð í sjókvíum sínum. Viðskipti innlent 15. júní 2021 13:16
Þorskurinn veldur vonbrigðum: Hefði viljað hafa þetta öfugt Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að þorskkvótinn verði lækkaður um 13% á næsta fiskveiðiári, úr 256 þúsund tonnum í 222 þúsund tonn. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra segir vonbrigði að samdráttur sé í ráðgjöfinni. Innlent 15. júní 2021 12:14
Leggja til 13% lækkun á þorskkvóta eftir ofmat á stofninum Hafrannsóknastofnun leggur til að sjávarútvegsráðherra lækki þorskkvóta um 13% á þessu fiskveiðiári. Vísar stofnunin til ofmats á stærð þorskstofnsins undanfarin ár og lítilla árganga. Innlent 15. júní 2021 10:26
Píratar sakaðir um að senda tundurskeyti inn í samningaviðræður Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir Pírata hafa sent tundurskeyti inn í samningaviðræður um þinglok með því að fara fram á umræðu um strandveiðifrumvarp formanns atvinnuveganefndar Alþingis. Þingmaður Pírata segir stjórnvöld hafa logið að smábátasjómönnum þar sem minnihlutinn hafi verið sakaður um standa því í vegi. Innlent 11. júní 2021 11:51
Stefna að 50 prósenta samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda Íslensk stjórnvöld ásamt Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi stefna í sameiningu að 50 prósenta samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda vegna olíunotkunar íslensks sjávarútvegs frá 2005 til 2030. Innlent 10. júní 2021 14:30
Allt fyrir gróðann Atli Eide, fyrrverandi forstjóri norska laxeldisrisans Mowi og stjórnarformaður Salmar í Noregi sem á Arnarlax á Vestfjörðum, spáir því í blaðaviðtali að sjókvíaeldi muni heyra sögunni til innan tíu ára, segir það ósjálfbært og ekki umhverfisvænt. Skoðun 10. júní 2021 12:01
Systurnar loks lausar allra mála í Sjólaskipamálinu Systur sem kenndar hafa verið við útgerðina Sjólaskip voru á dögunum sýknaðar af ákæru um skattsvik. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. maí en hefur enn ekki verið birtur á vef héraðsdóms. Ríkissaksóknari ætlar ekki að áfrýja dómnum. Málaferlin hafa staðið yfir í áratug. Viðskipti innlent 9. júní 2021 06:00
Heilbrigð höf lykill að heilbrigðu mannkyni Dagur hafsins er að þessu sinni haldinn við upphaf áratugar hafrannsókna í þágu sjálfbærrar þróunar. Heimsmarkmiðin 8. júní 2021 14:21
Blæs á gagnrýni SFS og telur sig hafa verið einmana í viðræðum við Breta Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja nýjan fríverslunarsamnning við Breta vonbrigði. Verðmæti sem hefði verið hægt að sækja með bættum tollakjörum séu ekki í samningnum. Utanríksiráðherra fagnar áhuga samtakanna á málinu, barátta hans hafi verið einmannaleg til þessa Innlent 8. júní 2021 12:05
Keypti skuldir þrotabúsins og sækir skuldlaus á miðin Útgerðarmaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi segist hafa ákveðið að gera upp við alla kröfuhafa í þrotabú útgerðarinnar Sælindar ehf í topp í stað þess að bíða eftir niðurstöðu í dómsmáli. Guðmundur Gísli var í nóvember 2019 dæmdur í héraðsdómi til að greiða þrotabúinu fimmtíu milljónir króna auk vaxta vegna gjafagjörnings. Viðskipti innlent 7. júní 2021 15:06
Telur umræðuna um Samherja smita út frá sér Neikvæð umræða um stórútgerðina Samherja smitar út frá sér og hefur áhrif á tiltrú almennings á sjávarútveginn í heild sinni, að mati Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra. Hann telur Samherja ekki hafa gert hreint fyrir sínum dyrum. Innlent 5. júní 2021 08:08
Sérfræðingar hafa helst áhyggjur af súrnun sjávar Horfur á ástandi sjávar í kringum Ísland eru almennt góðar næstu áratugina samkvæmt nýrri skýrslu Hafrannsóknastofnunar. Súrnun sjávar er þó áhyggjuefni sem sérfræðingar segja að auka þurfi þekkinguna á. Innlent 3. júní 2021 13:28
Þættir Sjávarútvegsskólans um heimsmarkmið fjórtán sýndir á Hringbraut Þættirnir eru byggðir á rúmlega tuttugu ára reynslu Sjávarútvegsskóla GRÓ í að aðstoða fátækar þjóðir heims í nýtingu á sjálfbæran hátt lifandi auðlinda sjávar og vatna. Heimsmarkmiðin 1. júní 2021 10:37
Samherji bað Lilju um útskýringu á ummælum hennar Lögmaður á vegum Samherja sendi bréf til Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, þar sem þess var óskað að hún útskýrði nákvæmlega hvað hún átti við þegar hún sagði á þingi að fyrirtækið hefði gengið of langt. Innlent 31. maí 2021 19:22
Gylfi Þór fjárfestir í glænýjum bát Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður hefur ásamt fjölskyldu sinni fjárfest í glænýjum bát, Huldu GK 17, sem smíðuð var í Hafnarfirði í bátasmiðjunni Trefjum. Báturinn er allur hinn glæsilegasti, um 29,5 brúttótonn, tæpir tólf metrar á lengd og er breiðasti bátur í öllu krókaaflamarkskerfinu. Viðskipti innlent 31. maí 2021 15:43
„Einstakt, fordæmalaust og grafalvarlegt“ Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri Ríkisútvarpsins gefur lítið fyrir þá gagnrýni að frétta- og fjölmiðlamenn séu viðkvæmir og þoli ekki gagnrýni. Þeir sem starfi á þeim vettvangi séu ýmsu vanir og því sé kjánalegt að setja hlutina í það samhengi. Þá sé það fordæmalaust að fjölmiðlamaður þurfi að þola árásir líkt og Helgi Seljan hefur gert í kjölfar umfjöllunar Kveiks um Samherja. Innlent 30. maí 2021 17:06
Samherji biðst afsökunar „Stjórnendur Samherja hafa brugðist harkalega við neikvæðri umfjöllun um félagið og ljóst að of langt hefur verið gengið í þeim viðbrögðum. Af þeim sökum vill Samherji biðjast afsökunar á þeirri framgöngu.“ Innlent 30. maí 2021 11:43