Krónan - mælitæki eða orsök hagsveiflna? Nýr Kveiksþáttur í Ríkissjónvarpinu hefur óvænt vakið upp kunnuglegar deilur í samfélaginu, en þær snúast um íslensku krónuna og þann skaða sem það fyrirbæri hefur valdið og er að valda alþýðu þessa lands. Skoðun 7. desember 2023 14:00
Íbúðarleigufyrirtæki skjóti sér undan skatti Fjármálaráðherra segir að rétta þurfi samkeppnisstöðu AirBnB og þeirra fyrirtækja sem væru með íbúðir á leigu og efla samstarf ríkis og sveitarfélaga í eftirliti með þessari starfsemi. Formaður Samfylkingarinnar segir fjölda fyrirtækja koma sér undan því að greiða hærri fasteignagjöld af íbúðaleigu með því að skrá íbúðirnar sem íbúðarhúsnæði. Innlent 7. desember 2023 13:29
Að draga lærdóm af PISA Fólk er alls staðar fólk, við erum öll eins þótt menning, uppeldi og fleiri félagslegir þættir móti okkur hvert og eitt. Það er enginn eðlismunur á fólki eftir því hvar það fæðist. Þetta segi ég vegna niðurstaðna PISA könnunarinnar sem verða reglulega að þrætuepli í samfélaginu. Skoðun 7. desember 2023 13:00
Loka grunnskólanum á Hólum Grunnskólanum austan Vatna á Hólum verður lokað frá og með næsta skólaári. Þess í stað fara nemendur skólans á Hofsós í skóla. Einungis níu nemendur voru við skólann á síðustu önn. Innlent 7. desember 2023 11:37
Orkustofnun „brestur hæfi“ til að ráðstafa forgangsraforku, að mati SI Fyrirhugað frumvarp um breytingar á raforkulögum, sem veitir Orkustofnun heimild til að veita öðrum en stórnotendum forgang að kaupum á raforku, er gagnrýnt harðlega af Samtökum iðnaðarins sem segja að með því verði samkeppnismarkaður með raforku afnuminn og miðstýring innleidd. Þá fer SI hörðum orðum um Orkustofnun, sem að mati samtakanna brestur hæfi til að fara með þau verkefni sem henni er falin í frumvarpinu, en starfshættir stofnunarinnar eru sagðir hafa „tafið verulega alla uppbyggingu í raforkukerfinu.“ Innherji 7. desember 2023 09:42
Enn stefnt að lokun áfangaheimilis Samhjálpar Starfsemi áfangaheimilisins Brúar verður hætt í janúar á næsta ári. Áfangaheimilið er rekið af Samhjálp og er staðsett við Höfðabakka. Greint er frá lokuninni í Morgunblaðinu í dag og rætt við framkvæmdastjóra Samhjálpar, Eddu Jónsdóttur. Félagsþjónusta Reykjavíkur ætlar að tryggja heimilisfólki húsaskjól. Innlent 7. desember 2023 09:13
Gamli Bjarni og nýi Bjarni Þegar formaður stærsta stjórnmálaflokks á Íslandi sakar Kveik á RÚV um áróður gegn krónunni, þá eru það þung orð. Eitt er að gagnrýna efnistök en að ryðjast hneykslaður fram og saka þáttarstjórnendur um annarleg sjónarmið og óheiðarleika, er alvarlegt mál hjá ráðherra í ríkisstjórn. Skoðun 7. desember 2023 08:00
Fórnarkostnaður Fjárlagafrumvarp næsta árs opinberar það fyrir hvaða pólitík ríkisstjórnin stendur. Einkunnarorð fjárlaga næsta árs er fórnarkostnaður. Aðgerðir en ekki síður aðgerðaleysi ríkisstjórnar hafa mikil áhrif á fjölskyldur þessa lands. Hér skortir bæði ábyrgð og réttlæti. Skoðun 7. desember 2023 07:45
Segir gamlan vin valda sér vonbrigðum Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir gamlan vin sinn, Sigmar Guðmundsson þingmann Viðreisnar, valda sér vonbrigðum með málflutningi sínum. Báðir hafa þeir fjallað um Kveiksþátt sem var sýndur í Ríkissjónvarpinu í gær og varðaði íslensku krónuna. Viðskipti innlent 7. desember 2023 00:21
Segir mál drengjanna skera sig í hjartað Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra hefur kallað eftir gögnum um palestínsku drengina Sameer Omran, 12 ára, og Yazan Kawave, 14 ára, sem á að vísa úr landi. Innlent 6. desember 2023 23:18
Segir nýja Bjarna gagnrýna gamla Bjarna Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, segist ósammála Bjarna Benediktssyni, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, um Kveiksþátt sem var sýndur í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi. Bjarni deildi þeirri skoðun sinni í dag að þátturinn innihéldi áróður og væri „eiginlega hneyksli“, en Sigmar segir hins vegar þáttinn stórfínan og hið raunverulega hneyksli vera gagnrýni Bjarna. Viðskipti innlent 6. desember 2023 21:02
„Ég óttast um börnin, að þau endi á sama stað“ Formaður ÖBÍ réttindasamtaka segir að börn séu helstu fórnarlömbin í sárri fátækt og nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til ráðstafana svo fjölskyldur þeirra komist út úr henni. Umsjónaraðili Hjálparstarfs kirkjunnar tekur í sama streng og segir þann hóp sem leiti til sín fara stækkandi. Alþýðusamband Íslands vekur athygli á að staða einhleypra foreldra með fötlun sé sérstaklega alvarleg. Innlent 6. desember 2023 20:07
Kjarapakki Samfylkingar: Mildum höggið og vinnum gegn verðbólgu Fjölmörg heimili á Íslandi hafa orðið fyrir þungu höggi vegna hárra vaxta og verðbólgu. Ríkisstjórnin tekur þennan vanda almennings ekki alvarlega. Og það gerir vont ástand verra. Skoðun 6. desember 2023 16:02
„Ég fyrirlít þessi stjórnvöld!“ Inga Sæland var ómyrk í máli þegar hún ræddi nýja skýrslu um stöðu fatlaðra á Íslandi á Alþingi í dag. „Þetta eru ógeðsleg stjórnvöld. Ég fyrirlít þessi stjórnvöld. Þau kunna ekki að skammast sín,“ hrópaði hún úr pontu Alþingis. Innlent 6. desember 2023 16:01
Ár mikilla tímamóta hjá Berglindi og Daníel Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og Daníel Matthíasson verkefnastjóri giftu sig á föstudaginn á Akureyri. Þau greina frá tíðindunum á samfélagsmiðlum. Lífið 6. desember 2023 15:51
Hvert er hneykslið? Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins fetar í fótspor ýmissa samflokksmanna sinna og hjólar í Ríkissjónvarpið fyrir umfjöllun sem honum er ekki þóknanleg. Það var umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um íslensku krónuna sem fór svona fyrir brjóstið á honum, helst þeir viðmælendur sem bentu á galla gjaldmiðilsins. Hann kallaði umfjöllunina hneyksli. Skoðun 6. desember 2023 14:02
Rannsakendur trúðu varla eigin augum Stór hluti fatlaðs fólks á Íslandi býr við sárafátækt og almennt eru lífsskilyrði þess miklu verri en launafólks samkvæmt nýrri vinnumarkaðsrannsókn. Rannsakendur segja niðurstöðurnar sláandi. Það hafi komið á óvart hversu slæm staða hópsins er. Formaður BSRB segir velferðakerfið hafa brugðist. Innlent 6. desember 2023 14:02
Seðlabankastjóri ánægður með tóninn í kjaraviðræðum Seðlabankastjóri segir minnkandi einkaneyslu og fjárfestingar og versnandi fjármálaskilyrði sýna að aðgerðir bankans til að draga úr verðbólgu væru að virka. Mjög jákvæður tónn berist nú frá aðilum vinnumarkaðarins varðandi nýja kjarasamninga sem geti leitt til þess að hraðar dragi úr verðbólgu. Innlent 6. desember 2023 11:55
Ákveðnar sprungur mögulega varðveittar Bæjarráð Grindavíkur ákvað á fundi sínum í gær að fresta viðgerð á ákveðnum sprungum í bænum. Það verði ákveðið síðar hvort að þeim verði leyft að vera sem einskonar minnisvarða um náttúruhamfarirnar þann 10. nóvember síðastliðinn. Innlent 6. desember 2023 11:45
Hvar stendur Framsókn? Þann 9. nóvember síðastliðinn samþykkti ríkisstjórn Íslands samhljóða ályktun um ákall til vopnahlés. Að fjórum vikum liðnum frá samþykki ályktunarinnar hefur ástandið versnað til muna en íslenskir ráðamenn hafa ennþá ekki séð ástæðu til að setja meiri þrýsting á ísraelsku ríkisstjórnina. Skoðun 6. desember 2023 11:00
Aðför að lánakjörum almennings Margt fólk er hart leikið af lánastofnunum þessa dagana. Ekki bara fyrir dýrtíð og verðbólgu, heldur ekki síður vegna þess hvernig fjármálastofnanir, bankar og lánveitendur fá að komast upp með að beita fólk margskonar harðræði og þrengja að möguleikum þess til að fá notið eðlilegra og sanngjarnra lánakjara og úrlausna sinna mála hjá viðskiptabönkum sínum. Skoðun 6. desember 2023 10:10
Áfram verði „stórt gat“ í rekstri fjölmargra bænda Samtök ungra bænda segja aðgerðir ráðherra til að mæta efnahagsvanda bænda ekki nægjanlegar. Í yfirlýsingu fagna samtökin aðgerðunum en segja að þótt þeim væri öllum hrint í framkvæmd sé ljóst að „áfram verði stórt gat í rekstri fjölmargra bænda“. Bændasamtökin taka undir þetta. Innlent 6. desember 2023 09:09
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur samþykkt í nótt Gert er ráð fyrir tæplega 600 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu A-hluta í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 og fimm ára áætlun 2024-2028 sem samþykkt var í borgarstjórn um miðnætti. Innlent 6. desember 2023 08:34
Af hverju háir skattar og rándýr framtíðarstrætó? Ég tek gjarnan á móti ungmennum sem vilja heimsækja vinnustaðinn minn, Alþingi. Þessar heimsóknir eru hreinlega með því skemmtilegra sem ég geri. Nýlega tókum við kollegi minn á móti ungmennaráði. Ungmennaráð eru frábær vettvangur fyrir ungt fólk til að hafa áhrif á samfélagið. Skoðun 6. desember 2023 07:30
Orð pabba höfðu gríðarleg áhrif Arnar Þór Jónsson, lögfræðingur og varaþingmaður segist lifa eftir síðustu ráðleggingum pabba síns áður en hann varð Alzheimer´s að bráð. Arnar, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segist hafa ákveðið að elta sannleikann og eigin sannfæringu alla tíð síðan. Lífið 6. desember 2023 07:01
Ætlar landsstjórnin að taka mark á Ríkisendurskoðun? Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu sína til Alþingis um rekstur Fangelsismálastofnunar. Skýrslan ber heitið „Aðbúnaður – endurhæfing – árangur“ en gæti fullt eins heitið „Illur aðbúnaður – götótt endurhæfing – slakur árangur“. Skýrslan er áfellisdómur yfir rekstri Fangelsismálastofnunar. Skoðun 6. desember 2023 07:01
Segja íslensk stjórnvöld „í kappi að botninum“ Íslensk félagasamtök og hagsmunaaðilar segja íslensk stjórnvöld vera „í kappi að botninum“ og að ef verði af fyrirhuguðum breytingum dómsmálaráðherra á lögum um útlendinga stefni íslensk stjórnvöld að því að verða „lægsti samnefnari réttinda flóttafólks á Norðurlöndum“. Innlent 6. desember 2023 06:19
Forystufólk ASÍ og SA segir alla þurfa að leggjast á eitt Forystufólk Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins er sammála um að gera eigi nýja langtíma kjarasamninga sem skapi stöðugleika og stuðli að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Nú eru átta vikur þar til gildandi skammtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði renna út. Innlent 5. desember 2023 19:21
Er Barnasáttmálinn einskis virði í augum stjórnvalda? Finnst ykkur í fullri alvöru ekkert athugavert við það að brottvísa 12 og 14 ára börnum á flótta undan ógnarstjórn aðskilnaðarríkis Ísraels sem nú fremur hrottalegt þjóðarmorð þar sem jafnvel hvítvoðungum er ekki þyrmt? Skoðun 5. desember 2023 18:00
Tæplega þúsund bændur fá 1,6 milljarð í styrk Áætlað er að stuðningur sem nemur alls 1.600 milljónum króna verði geiddur til 982 bænda, sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna núverandi efnahagsástands, fyrir árslok 2023. Innlent 5. desember 2023 17:45