Hagræðing í rekstri sé bændum og neytendum til heilla Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir öllum ljóst að gríðarleg tækifæri séu til hagræðingar í rekstri kjötafurðastöðva. Hagræðingin gangi út á að geta greitt bændum hærra afurðaverð, án þess að það þýði hækkun á verði til neytenda. Hún telur samruna Kaupfélags Skagfirðinga og Kjarnafæðis Norðlenska jákvætt skref í rétta átt. Innlent 9. júlí 2024 22:39
Fagnar umræðu um kynfæralimlestingar barna Silja Dögg Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, fagnar nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um ofbeldi gegn börnum, sem tók kynfæralimlestingar á börnum meðal annars til umfjöllunar. Silja lagði fram frumvarp árið 2018 þar sem banna átti umskurð á drengjum, sem náði ekki fram að ganga. Innlent 9. júlí 2024 20:48
Stjórnvöld verði að stöðva erlendu veðmálasíðurnar Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir það ólíðandi að erlendar veðmálasíður fái að troða sér inn í íslenskt samfélag. Stjórnvöld þurfi að bregðast við. Innlent 9. júlí 2024 19:07
Um traust og vantraust Traust er ein meginundirstaða viðskipta. Alþingi hefur í ýmsu tilliti stutt við bak einstaklinga og ýmissa hópa til að stuðla að jafnri stöðu í viðskiptum. Til grundvallar liggur sú hugmynd að jöfn staða stuðli að trausti og tilvist trausts liðki fyrir viðskiptum. Viðskipti eru meðal forsendna þróunar, framleiðni, nýsköpunar, tæknibreytinga o.fl. Skoðun 9. júlí 2024 15:31
Ráðherra beitir sér ekki og eftirlitið í öngum sínum Matvælaráðherra ætlar ekki að beita sér fyrir breytingum á undanþáguheimildum í búvörulögum. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins gagnrýnir ráðherra og atvinnuveganefnd og segir vinnubrögðin óforsvaranleg. Innlent 9. júlí 2024 13:57
Réttur til sambúðar á hjúkrunarheimilum „Það er eins og við séum slitin í sundur, það er ekki hægt að segja annað, og einmitt þegar kannski væri mest þörfin fyrir stuðning.” Þetta sagði viðmælandi í Kastljóssviðtali árið 2013. Eiginkona hans þurfti að flytjast á hjúkrunarheimili og hann vildi fara með henni en fékk ekki samþykkt færni- og heilsumat. Maðurinn heimsótti konuna sína daglega í þrjú ár. Skoðun 9. júlí 2024 11:01
Umræða um útlendinga oft harkaleg og ekki uppbyggileg Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir umræðu um útlendinga hafa verið harkalega og ekki uppbyggilega. Hann kynnti nýlega fyrstu stefnu Íslands í málefnum innflytjenda. Markmiðið með stefnunni er að búa til samfélag sem er jafnara og býður upp á sömu tækifæri fyrir alla, óháð uppruna. Í haust mun hann leggja fram tillögu til þingsályktunarum stefnuna til fimmtán ára og framkvæmdaáætlun til fjögurra ára. Innlent 9. júlí 2024 06:25
Ríkið taki við uppbyggingu hjúkrunarheimila Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur birt til umsagnar í samráðsgátt breytingu á lögum sem fellir brott skyldu sveitarfélaga til að greiða fimmtán prósent stofnkostnaðar við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Einar Þorsteinsson borgarstjóri segist fagna breytingunum og að þær komi til með að létta byrði smærri sveitarfélaga sem gætu átt erfitt með að standa undir sínum hluta. Innlent 8. júlí 2024 21:20
Búið að afvopna neytendur Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda. Neytendur 8. júlí 2024 20:22
Afmælisfundur NATO í skugga átaka í gjörbreyttum heimi Utanríkisráðherra segir 75 ára afmælisleiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington á morgun, haldinn í skugga meiriháttar breytinga og spennu í alþjóðakerfinu. Á fundinum muni bandalagsríkin formfesta stuðning sinn við Úkraínu til lengri tíma. Innlent 8. júlí 2024 19:20
Stefna að útrýmingu sauðfjárriðu innan tuttugu ára Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í dag landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu ásamt Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtaka Íslands. Stefnt er að því að útrýma riðuveiki í sauðfé á Íslandi innan tuttugu ára. Innlent 8. júlí 2024 19:18
Flestir treysta ríkisstjórninni miklu verr eftir að Bjarni tók við Sjötíu og tvö prósent landsmanna treysta ríkisstjórninni verr eftir að Bjarni Benediktsson tók við embætti forsætisráðherra. Hins vegar treysta ellefu prósent ríkisstjórninni betur eftir að Bjarni tók við stjórnartaumunum en átján prósent jafn mikið. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu. Innlent 8. júlí 2024 14:26
Þaulskipulagt af hagsmunaaðilum og þeirra fulltrúum á þingi Formaður atvinnuveganefndar Alþingis á hlut í félagi sem Kaupfélag Skagfirðinga er að kaupa. Kaupin ganga í gegn án aðkomu Samkeppniseftirlitsins vegna breytinga á búvörulögum sem atvinnuveganefnd gerði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir um skipulagða aðgerða hagsmunaaðila og fulltrúa þeirra á þingi að ræða. Innlent 8. júlí 2024 13:41
Til stuðnings Kristrúnu Frostadóttur Nú býðst sósíaldemókrötum og vinstri mönnum að sameinast um ábyrga stefnu í útlendingamálum – og fleiri málum. Ekki er óhugsandi að einhverjum hafi þótt mál til komið. Skoðun 8. júlí 2024 13:00
Afstaða Sjálfstæðismanna á skjön við lýðheilsustefnu stjórnvalda „Standa þarf vörð um íslenska forvarnarmódelið og gagnreynda áfengisstefnu sem m.a. felst í takmörkun á aðgengi með því að viðhalda einkasölufyrirkomulagi ríkisins,“ segir í nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára. Innlent 8. júlí 2024 11:27
„Klæðingin er engin skítaredding“ Forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar segir klæðingu á vegum ekki skítareddingu. Vegakerfið á Íslandi væri ekki að meirihluta á bundnu slitlagi ef ekki væri fyrir hana. Það sem sé hamlandi sé að vegna fjármagns nái Vegagerðin ekki að sinna viðhaldi eftir þörf. Viðhaldsskuld í íslensku vegakerfi kosti líklega tugi eða hundrað milljarða. Innlent 8. júlí 2024 11:06
Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar, á um það bil 0,8 prósenta hlut í Búsæld ehf., sem á rúmlega 43 prósent hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska hf.. Hluthafar Kjarnafæði Norðlenska hafa samþykkt kaup Kaupfélags Skagfirðinga á allt að hundrað prósent hlutafjár í félaginu. Nýsamþykkt lög, sem fóru í gegnum atvinnuveganefnd, gera kaupin möguleg. Viðskipti innlent 8. júlí 2024 11:00
Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf. Viðskipti innlent 8. júlí 2024 08:29
Ráðherra segir fyrirkomulag borgaraþjónustunnar á Spáni ósjálfbært Utanríkisráðuneytið telur núverandi fyrirkomulag borgaraþjónustu á Spáni ósjálfbært til skemmri og lengri tíma. Áætlaður kostnaður við sendiskrifstofu er um 132 milljónir króna á ári að viðbættum stofnkostnaði fyrsta árið. Innlent 8. júlí 2024 06:47
Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Kerecis hlaut nýverið 24 milljóna styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs í alþjóðlegt samstarfsverkefni sem snýr að því að bæta meðferð brunasára í Afganistan. Kerecis framleiðir roð til sáragræðinga en brunasár eru afar algeng í þeim heimshluta. Forstjóri segir mikilvægt að varan sé ekki einungis aðgengileg í vestrænum heimi. Viðskipti innlent 7. júlí 2024 22:01
Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Samþykkt hefur verið að hefja formlegar sameiningarviðræður sveitarfélaganna Skorradalshrepps og Borgarbyggðar. Lagt er upp með að stefnt verið að íbúakosningu um sameiningu árið 2025. Skiptar skoðanir eru uppi innan sveitarstjórnar Skorradalshrepps um áformin en minnihluti hreppsnefndar telur varaoddvita vanhæfan í málinu. Innlent 7. júlí 2024 12:59
Nýjar stofnanir hafi aðsetur á landsbyggðinni Aðsetur nýrra stofnana umhverfis- orku og loftslagsráðuneytisins verður utan höfuðborgarsvæðisins samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar ráðherra. Embætti forstjóra nýrra stofnana verða auglýst um helgina og mun forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnun hafa aðsetur á Akureyri. Innlent 6. júlí 2024 10:11
Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Kristrún Frostadóttir segir eðlilegt að ágreiningur eigi sér stað innan breiðfylkingar og stórs flokks líkt og Samfylkingarinnar. Þannig svarar hún gagnrýni innan flokksins sem snýr að hjásetu flokksins við afgreiðslu nýrra útlendingalaga. Innlent 6. júlí 2024 06:31
Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Árið 2020 voru 52 karlmenn með erlent ríkisfang grunaðir um kynferðisbrot hér á landi. Tveimur árum síðar voru þeir eitt hundrað. Innlent 5. júlí 2024 14:01
Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fagnaði kosningasigri Verkamannaflokksins í Bretlandi með formanni flokksins, Keir Starmer. Kristrún segir Starmer meðvitaðan um uppgang Samfylkingarinnar á Íslandi. Innlent 5. júlí 2024 13:38
Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lætur Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins ekki eiga neitt inni hjá sér en í kröftugri svargrein um Mannréttindastofu segir hún Sigmund og þá Miðflokksmenn innilega ósamkvæma sjálfum sér. Innlent 5. júlí 2024 13:25
Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Meira en tvö þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista á vef Ísland.is þar sem skorað er á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að grípa inn í svo Yazan Tamimi og fjölskyldu hans verða ekki vísað úr landi. Innlent 4. júlí 2024 22:44
Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands skilur ekki hvers vegna dómsmálaráðuneytið hefur ekki tekið skref í áttina að breytingu á lögum um veðmálastarfsemi. Það verði að bregðast við sem fyrst. Innlent 4. júlí 2024 22:29
Hagfræðingur Kviku hefur „ekki verulegar áhyggjur“ af aukinni útgáfu ríkisbréfa Aðalhagfræðingur Kviku hefur „ekki verulegar áhyggjur“ af fjármögnun ríkissjóðs og það hafi því komið honum um „örlítið spánskt fyrir sjónir“ hvað markaðsvextir ríkisbréfa hækkuðu skarpt þegar ríkið upplýsti um 30 milljarða aukna útgáfu af ríkisbréfum. Hann telur „fjármögnunarbrekkuna“ framundan ekki líta út fyrir að vera óyfirstíganleg. Innherji 4. júlí 2024 15:44
Sigmundur Davíð þvær hendur sínar af Mannréttindastofnun Íslands Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur lítinn sem engan áhuga á því að Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, takist að gera Miðflokkinn ábyrgan fyrir nýrri Mannréttastofnun Íslands. Innlent 4. júlí 2024 14:24