Keflvíkingar missa besta miðherja deildarinnar Keflvíkingar tilkynntu það á heimasíðu sinni í dag að ísfirski miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson muni ekki endurnýja samning sinn við félagið. Sigurður Gunnar hefur verið í stóru hlutverki hjá Keflvíkingum undanfarin fimm ár og var á dögunum valinn í úrvalslið ársins í annað skiptið á þremur árum. Körfubolti 10. maí 2011 13:00
Teitur verður áfram með Stjörnuliðið - samdi til 2013 Teitur Örlygsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna um tvö ár og verður því áfram við stjórnvölinn í Garðabænum. Þetta kemur fram á heimasíðu Stjörnunnar.Teitur hefur þjálfað Stjörnuna síðan í ársloks 2008 og hefur síðan þá komið liðinu í hóp bestu liða deildarinnar. Körfubolti 4. maí 2011 10:45
Pavel og Margrét Kara valin best KR-ingarnir Pavel Ermolinskij og Margrét Kara Sturludóttir voru í gærkvöldi valin bestu leikmenn Iceland Express-deildanna í körfubolta á lokahófi KKÍ sem haldið var á Broadway. Körfubolti 1. maí 2011 11:32
Ingi Þór búinn að semja við Snæfell til ársins 2014 Ingi Þór Steinþórsson framlengdi í gær samning sinn við Snæfell um tvö ár og mun því þjálfa karla- og kvennalið félagsins til ársins 2014. Ingi Þór var að klára sitt annað tímabil í Hólminum en hann gerði karlaliðið að tvöföldum meisturum á sínu fyrsta ári og í vetur vann liðið Lengjubikarinn og Meistarakeppnina. Körfubolti 30. apríl 2011 09:00
Sigurður tekur við Keflavíkurliðinu Sigurður Ingimundarson hefur gert tveggja ára samning við Keflavík um að taka við karlaliði félagsins. Sigurður var látinn fara frá Njarðvík á miðjutímabili en snýr nú aftur á heimaslóðirnar. Þetta kemur fram á Víkurfréttum. Körfubolti 29. apríl 2011 15:54
Einar Árni og Friðrik verða áfram með Njarðvík Njarðvík tilkynnti í dag að þeir Einar Árni Jóhannsson og Friðrik Ragnarsson myndu stýra körfuboltaliði félagsins næstu þrjú árin. Körfubolti 26. apríl 2011 14:00
Marcus tók stigametið af Damon Marcus Walker verður örugglega á milli tannanna hjá íslensku körfuboltafólki um ókomna tíð eftir magnaða frammistöðu sína í úrslitakeppninni. Þegar menn fóru að skoða sögubækurnar betur kom líka í ljós að spilamennska þessa eldfljóta og stórskemmtilega bakvarðar væri einstök í 28 ára sögu úrslitakeppninnar. Körfubolti 21. apríl 2011 07:00
KR átti fjóra bestu leikmenn úrslitaeinvígisins Fjórir KR-ingar voru efstir á listanum yfir hæsta framlagið í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla sem lauk með öruggum sigri KR-inga í fjórða leiknum í Garðabænum í gær. KR vann einvígið 3-1. Körfubolti 20. apríl 2011 16:45
Vinna bara á oddaárunum eins og San Antonio Spurs KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í gær með því að vinna fjórða leikinn í úrslitaeinvígi sínu á móti Stjörnunni. Þetta er í þriðja sinn frá og með árinu 2007 sem Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti Íslandsbikarnum glæsilega en líkt og hjá NBA-liðinu San Antonio Spurs þá hafa KR-ingar bara unnið titilinn á oddaárum síðan að Fannar kom í Vesturbæinn. Körfubolti 20. apríl 2011 16:00
Hrafn og Fannar fetuðu í fótspor Gunnars og Einars Bolla Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, og Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, fetuðu í gærkvöldi í fótspor Gunnars Gunnarssonar og Einars Bollasonar þegar KR-ingar urðu Íslandsmeistarar. Þetta er nefnilega í fyrsta sinn í 32 ár sem KR vinnur tvöfalt í karlakörfunni, það er verður Íslandsmeistari og bikarmeistari á sama tímabilinu. Körfubolti 20. apríl 2011 14:15
KR Íslandsmeistari 2011 - myndir Það var glatt á hjalla hjá KR-ingum í Ásgarði í gær en þá varð körfuboltalið félagsins Íslandsmeistari eftir afar sannfærandi sigur á Stjörnunni. KR vann einvígi liðanna, 3-1. Körfubolti 20. apríl 2011 08:00
Finnur: Það var komin tími á mig „Þetta er yndisleg tilfinning, ég er búin að horfa á bræður mína báða taka þennan titil, en núna var komið að mér,“ sagði Finnur Atli Magnússon, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn gegn Stjörnunni í Ásgarði í kvöld eftir að hafa unnið einvígið 3-1. Körfubolti 19. apríl 2011 23:12
Marcus: Frábært að spila fyrir framan þetta fólk „Ég get ekki útskýrt hvernig mér líður,“ sagði Marcus Walker, leikmaður KR, eftir sigurinn gegn Stjörnunni í kvöld. KR varð Íslandsmeistari eftir að hafa unnið Stjörnuna 3-1 í einvíginu. Körfubolti 19. apríl 2011 22:58
Pavel: Ég á heiminn „Manni líður bara eins og ég eigi heiminn,“ sagði Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, eftir að lið hans hafði hampað Íslandsmeistaratitlinum í Iceland-Express deild karla. KR vann Stjörnuna 3-1 í einvíginu um titilinn stóra. Körfubolti 19. apríl 2011 22:49
Brynjar Þór: Auðveldasti titillinn Brynjar Þór Björnsson varð í kvöld Íslandsmeistari í þriðja sinn með KR og segir hann þennan titil hafa verið þann auðveldasta á ferlinum. Körfubolti 19. apríl 2011 22:47
Teitur: KR-ingarnir bara betri Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að betra liðið hafi unnið rimmuna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en KR varð í kvöld meistari eftir sigur á Stjörnunni, 3-1, í lokaúrslitunum. Körfubolti 19. apríl 2011 22:46
Fannar: Tilfinningin alltaf betri og betri Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti í kvöld Íslandsmeistarabikarnum á loft í þriðja sinn á ferlinum - ávallt með KR. Hann varð Íslandsmeistari í fimmta sinn alls en hann náði þeim áfanga tvívegis er hann spilaði með Keflavík. Körfubolti 19. apríl 2011 22:38
Hrafn: Ég svíf um á skýi „Ég er bara í skýjunum og svíf bara um,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deilda karla. Körfubolti 19. apríl 2011 22:34
Brynjar um Walker: Stórkostlegur "Hann er stórkostlegur og það var ótrúlegt að fylgjast með því hvernig honum óx ásmegin eftir því sem leið á tímabilið.“ Körfubolti 19. apríl 2011 21:52
Umfjöllun: KR Íslandsmeistari eftir sannfærandi sigur í Garðabænum KR-ingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta karla í þriðja sinn á fjórum árum og í tólfta sinn frá upphafi eftir sannfærandi fjórtán stiga sigur á Stjörnunni í kvöld, 109-95, í fjórða leik liðanna úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í Ásgarði í Garðabæ. KR vann því úrslitaeinvígið 3-1. Körfubolti 19. apríl 2011 21:04
Brjóta KR-ingar hundrað stiga múrinn áttunda leikinn í röð? KR-ingar geta sett nýtt met í úrslitakeppninni í kvöld skori liðið hundrað stig eða meira í fjórða leik lokaúrslitanna á móti Stjörnunni. KR-ingar geta því ekki aðeins tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn því með því að skora hundrað stig bæta þeir met Keflvíkinga frá 2003. Körfubolti 19. apríl 2011 18:15
Marcus Walker: Mamma er besti vinur minn Marcus Walker er lykilmaður í liði KR sem í kvöld getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri á Stjörnunni í fjórða leik liðanna í lokaúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 19. apríl 2011 16:00
Teitur: Fór aðeins yfir strikið Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, viðurkennir að hann hafi farið yfir strikið í gagnrýni sinni á dómara eftir síðasta leik sinna manna gegn KR í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn um körfubolta. Körfubolti 19. apríl 2011 13:30
Keflavík vann alla titlana í kvennaflokki Keflavík náði sögulegum árangri nú í vetur en liðið er eftir tímabilið handhafi allra Íslandsmeistaratitla í kvennaflokki, frá yngsta flokki til meistaraflokks. Körfubolti 18. apríl 2011 19:45
Frábær seinni hálfleikur tryggði sigurinn KR er komið í 2-1 gegn Stjörnunni í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta eftir sigur á heimavelli í gærkvöldi, 101-81. Körfubolti 18. apríl 2011 07:00
Hreggviður: Það vita það allir á Íslandi að við erum betra liðið "Þessi varnarleikur á eftir að skila okkur Íslandsmeistaratitlinum,“ sagði Hreggviður Magnússon, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld. KR vann þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn, 101-81, og leiðir einvígið 2-1. Körfubolti 17. apríl 2011 22:29
Marcus og Mamma: Klárum dæmið í næsta leik "Það sem hefur alltaf skilað okkur sigrum er varnarleikur okkar í síðari hálfleik. Um leið og liðið nær að stoppa 2-3 sóknir frá andstæðingnum þá smitað þar frá sér og við eflumst,“ sagði Walker. Körfubolti 17. apríl 2011 22:08
Teitur: Þetta var bara búið í hálfleik "Við spiluðum vel í fyrri hálfleik, en áttum aldrei séns í þeim síðari,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir ósigurinn í kvöld. Körfubolti 17. apríl 2011 21:59
Hrafn: Besta vörn sem ég hef séð frá liðinu "Við hrukkum heldur betur í gírinn í þriðja leikhlutanum,“ sagði Hrafn Krisjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld. Körfubolti 17. apríl 2011 21:54
Umfjöllun: KR átti í engum vandræðum með Stjörnuna KR-ingar settust í bílstjórasætið í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld þegar þeir unnu Stjörnuna, 101- 81, í þriðja leik liðanna og leiða því einvígið 2-1. KR keyrði yfir Stjörnuna í þriðja leikhlutanum og voru tuttugu stigum yfir þegar einn leikhluti var eftir. Marcus Walker átti enn einn stórleikinn og skoraði 33 stig. Körfubolti 17. apríl 2011 21:04