Glæsileg á galakvöldi Kim Kardashian var guðdómleg í kóngabláum síðkjól og með fasta fléttu í hári er hún mætti á galaballi í New York í gær. Með henni var kærastinn Kanye West sem var að sjálfsögðu flottur í tauinu líka. Tíska og hönnun 23. október 2012 10:30
Í kjól sem minnti á viskustykki Poppstjarnan Kylie Minogue mætti í heldur sérstökum, köflóttum kjól á Q verðlaunin í London um helgina. Hlaut hún heldur neikvæða dóma fyrir kjólinn sem var svartur og hvítu að lit og minnti jafnvel aðeins á viskustykki. Einnig var sniðið sérstakt og mynstrið ekki alveg fyrir alla. Tíska og hönnun 22. október 2012 17:00
Töff í leðri og sléttbotna skóm Söngkonan Beyonce var töff til fara í leðurbuxum og sléttbotna strigaskóm er hún kíkti út að borða með eiginmanni sínum Jay-Z, móður sinni Tina Knowles og fleirum á veitingastaðinn Gigino í New York á dögunum. Beyonce er nú yfirleitt með puttana á púlsinum þegar kemur að nýjustu tísku en leðrið er sjóðandi heitt um þessar mundir. Tíska og hönnun 22. október 2012 16:00
Náttúran á gólf Sigríður Ólafsdóttir og Sigrún Lára Shanko framleiða gólfmottur úr íslenskri ull. Munstrin eru unnin út frá loftmyndum og kortum. Tíska og hönnun 22. október 2012 14:02
Best klæddu stjörnur vikunnar Þá er komið að því að skoða best klæddu stjörnur vikunnar en þær voru svo sannarlega ekki af lakara taginu. Hin unga og fallega Elle Fanning klæddist síðkjól og mosagrænni jakkapeysu í retró stíl á meðan Gwyneth Paltrow fór gjörólíka leið með klassískum og kynþokkafullum Michael Kors kjól. Tíska og hönnun 22. október 2012 14:00
Stórkostlegir tísku tvíburar Mary-Kate og Ashley Olsen mættu til verðlaunahátíðar hjá tímaritun WSJ. Magazine er það heiðraði frumkvöðla ársins. Systurnar klæddust báðar stórglæsilegum fatnaði sem er þeim afar kær eða úr eigin tískumerki, The Row. Tíska og hönnun 22. október 2012 11:00
Afmælisstelpan Kim Kardashian kann að klæða sig Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian fagnar 32 ára afmælinu sínu í þessum mánuði. Að því tilefni lítum við yfir farinn veg og skoðum bestu dressin hennar á rauða dreglinum. Tíska og hönnun 22. október 2012 10:00
Bók um íslenska fatahönnun "Það er svo mikil gróska í íslenskri fatahönnun að mér fannst við hæfi að gera heila bók og sýna heiminum hvað er í gangi hérna," segir ljósmyndarinn og stílistinn Charlie Strand sem á heiðurinn að ljósmyndabókinni Icelandic Fashion Design sem kemur út í vikunni. Tíska og hönnun 22. október 2012 09:00
Vogue myndar tísku í Hörpu "Vogue hefur boðað komu sína hingað í næsta mánuði og ætlar að mynda stóran tískuþátt,"staðfestir Anna Margrét Björnsson, kynningarfulltrúi tónlistarhússins Hörpu, og segir um leið að húsið sé orðið eftirsótt myndefni. Tíska og hönnun 22. október 2012 07:00
Opna vef um lífið í Reykjavík "Við ætlum að sýna upprennandi ljósmyndara bæði frá Íslandi og hvaðanæva úr heiminum,“ segir ljósmyndarinn Aníta Eldjárn. Hún opnar vefsíðuna Reykjavíknights.com í dag ásamt æskuvinkonu sinni, förðunarfræðingnum og stílistanum Ragnheiði Guðmundsdóttur. Tíska og hönnun 21. október 2012 14:00
Heill kafli um ketti Tíska Grace Coddington listrænn stjórnandi hjá bandaríska Vogue hefur ritað sjálfsævisögu sem bókaforlagið Random House gefur út þann 20. nóvember. Í bókinni segir Coddington meðal annars frá árunum sem hún starfaði sem fyrirsæta. Móðir hennar var vön að klippa út myndir sem hún hélt að væru af dóttur sinni en voru í raun af öðrum fyrirsætum. „Þegar ég leiðrétti hana sagði hún aðeins: „Nú jæja. Þetta er falleg mynd þrátt fyrir það,“ og svo setti hún myndina aftur í úrklippubókina.“ Tíska og hönnun 21. október 2012 09:00
Íslenskur 13 ára tískubloggari Prjónaðar peysur, hermannajakkar, há kuldastígvél og stuttbuxur með málmgöddum (e. studs) eru á meðal þess sem er vinsælt í verslunum bæjarins þetta haustið og það sem hin þrettán ára Katrín Erla Friðriksdóttir tískubloggari festi á filmu á dögunum en hún heldur úti vinsælu bloggi, http://l0ve-fashi0n.blogspot.com. Tíska og hönnun 19. október 2012 18:48
Systur opna nýjan markað "Við systurnar verðum á markaðnum í dag föstudag og á morgun laugardag. Þetta virkar eins og Kolaportið. Margir með bása og miklu ódýrara," svarar Laufey Arnalds Johansen sem opnar í dag markað ásamt systur sinni Kitty Johansen við hliðina á Góða hirðinum. Tíska og hönnun 19. október 2012 12:00
Bombur í buxnadragt Eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni eru kjólarnir ekki alltaf fyrsta val hjá Hollywood sjörnunum á rauða dreglinum. Hér má sjá hverja stjörnuna á fætur annarri klæðast fallegum og vel sniðnum buxnadrögtum í öllum regnbogans litum. Tíska og hönnun 18. október 2012 22:00
Setur sjálfa sig á lista yfir verst klæddu konurnar Kim Kardashian er búin að hringja á tískulögguna og vill að hún handteki sig sjálfa. Kim klæddist gulum toppi fyrir stuttu og er aldeilis ekki ánægð með það uppátæki. Tíska og hönnun 18. október 2012 18:00
Þvílíkt kamelljón Geri aðrir betur hin undurfagra og ljúfa Emma Stone en hún er ein af fáum sem kemstu upp með að skipta reglulega um útlit svo um munar. Stone hefur í gegnum tíðana skipt um hárlit, fatastíl, förðunarstíl og hvað eina og á einhvern undraverðan hátt virðist allt fara henni vel eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni. Tíska og hönnun 17. október 2012 11:01
Nýjustu straumarnir í brúðarkjóla tískunni Nú ríkja brúðardagar í tískuborginni New York þar sem nýjasta brúðartískan er sýnd ásamt fleiru sem við kemur stóra deginum. Hönnuðurinn Douglas Hannant er einn þeirra hönnuða sem hélt glæsilega brúðarkjólasýningu á Plaza hótelinu um helgina og hlaut hann mikið lof fyrir enda var hún vel heppnuð í alla staði. Tíska og hönnun 17. október 2012 10:30
Konur heiðraðar Tískuritið Elle US hélt árlegan fögnuð sinn á Four Seasons-hótelinu í Beverly Hills á sunnudag. Fjöldi þekktra einstaklinga sótti viðburðinn. Elle US fagnaði í 19. sinn viðburðinum Celebration of Women in Hollywood. Leikkonan Emma Watson hlaut Calvin Klein Collection Emerging Star-verðlaunin í ár og einnig voru Cate Blanchett, Elle Fanning, Emma Stone, Shirley MacLaine og Susan Sarandon heiðraðar þetta kvöld. Tíska og hönnun 17. október 2012 00:01
Epískir kjólar sem allir muna eftir Það eru nokkrir kjólar í sögunni sem hafa svo sannarlega skilið eftir sig arfleifð. Tíska og hönnun 17. október 2012 00:01
Klædd í stíl við kettlinginn Kim Kardashian er upptekin við tökur á sjónvarsþættinum Keeping Up With the Kardashians og í þetta sinn fer hún með kettlinginn sinn í gæludýraverslun í Miami í Florida. Eins og sjá má er sjónvarpsstjarnan klædd í stíl við gæludýrið sem er algjört krútt. Tíska og hönnun 16. október 2012 11:05
Steldu stíl ofurfyrirsætu Heidi Klum var án efa best klædda mamman á fótboltavellinum um helgina er hún fylgdist með syni sínum Henry keppa. Dressið sem ofurfyrirsætan valdi sér hefði getað gengið við nánast hvaða tilefni sem er enda klassískt, kvenlegt og pínu rokkaði í senn. Síðast en ekki síst auðvelt að tileinka sér. Tíska og hönnun 16. október 2012 10:20
Elskar bleika kjóla Hin gullfallega Elizabeth Hurley er ötull talsmaður í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Hún hefur lagt lóð sín á vogarskálar baráttunnar síðustu ár, meðal annars með því að vera dugleg að klæðast bleiku. Kíkið á flottustu bleiku kjólana hennar Liz! Tíska og hönnun 16. október 2012 00:01
Spurning um að skipta um stílista Söngkonan Christina Aguilera hefur alltaf verið heldur skrautleg til fara og átt þau mörg tískuslysin í gegnum tíðina. Þótti mörgum hún ekki alveg í takt þegar hún mætti með syni sínum að týna grasker í Hollywood um helgina fyrir hrekkjavökuna sem nú nálgast enda nánast bleikhærð og í druslulegum fötum. Tíska og hönnun 15. október 2012 15:43
Svíar hrifnir af íslenskri hönnun Linda segist hafa orðið mikið vör við það að Svíar hafi áhuga á íslenskri hönnun. Þeir eigi þó oft erfitt með að nálgast hana og fékk Linda því hugmyndina að síðunni. Tíska og hönnun 15. október 2012 10:50
Finndu drauma brúðarkjólinn á netinu Hvað sem hann má kosta og hvaða stíl sem þú aðhyllist þá geturðu fundið drauma brúðarkjólinn á netinu - og sleppur við allt búðarrápið. Flestar erlendar heimasíður sem selja brúðarkjóla bjóða upp á sérsaum. Fáðu vinkonu til að hjálpa þér með málin, finndu kjól drauma þinna og hann verður komin til þín áður en þú veist af. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá brot af því sem er í boði... Tíska og hönnun 15. október 2012 10:24
Best klæddu konur vikunnar Þrátt fyrir að hitinn fari lækkandi í Hollywood um þessar mundir rétt eins og hér heima þá virðast stjörnurnar enn klæða sig eins og um hásumar sé að ræða, nema Kate Middleton. Tíska og hönnun 15. október 2012 00:01
Peysustríð! Appelsínugular og æðislegar Leikkonurnar Jessica Biel og Halle Berry þora að sýna smá lit. Tíska og hönnun 15. október 2012 00:01
Óléttar í himinháum hælum Skvísurnar í Hollywood láta óléttuna ekki stöðva sig í að vera í himinháum hælaskóm sem kosta morðfjár. Tíska og hönnun 14. október 2012 00:01
Hártískuslys! Hvað voru þær að hugsa? Hárhnútar eru það heitasta í Hollywood um þessar mundir en þessar píur misskildu trendið gjörsamlega. Tíska og hönnun 14. október 2012 00:01