Tónlist

Tónlist

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Fréttamynd

Frægir gítarleikarar á djasshátíð

Japanski gítarleikarinn Kazumi Watanabe og hinn belgíski Philip Catherine koma fram á gítarveislu Jazzhátíðar í Háskólabíói annað kvöld, 28. ágúst. Watanabe er afar hátt skrifaður bæði í heimalandi sínu og í hinum alþjóðlega gítarheimi. Hefur hann verið kostinn besti djassleikari ársins í 24 ár samfleytt í japanska tímaritinu Swing Journal. Catherine, sem hefur áður heimsótt Ísland, hefur verið í fremstu röð gítarleikara heims um árabil.

Tónlist
Fréttamynd

Djassinn vinsæll

Jasspíanistinn Agnar Már Magnússon heldur tvenna tónleika í kvöld í tengslum við Jazzhátíð Reykjavíkur. Agnar fær til liðs við sig tvo heimsþekkta tónlistarmenn, þá Ben Street og Bill Stewart sem báðir eru vel þekktir innan jasssenunnar. Sjálfur hefur Agnar vakið mikla athygli fyrir tónlist sína og vann hann meðal annars verðlaun fyrir bestu tónsmíð á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Tónleikarnir verða haldnir í Vonarsal, þar sem einn glæsilegasta flygil landsins er að finna.

Tónlist
Fréttamynd

Rokkarar heiðraðir

Rokkararnir í Metallica og Rage Against the Machine voru hylltir sem hetjur á hinni árlegu verðlaunahátíð tímaritsins Kerrang! í London. Metallica fékk verðlaun fyrir að hafa veitt öðrum rokksveitum innblástur á meðan Rage voru vígðir inn í frægðarhöll tímaritsins.

Tónlist
Fréttamynd

Múm notar hljóðnema úr skriðdrekahlutum

Tónlistarmaðurinn Gunnar Örn Tynes dvaldist í sumar í hinum afskekkta Galtarvita á Vestfjörðum, en vinnur nú að upptöku nýjustu plötu hljómsveitarinnar Múm - þar sem meðal annars er notast við hljóðnema úr skriðdrekahlutum.

Tónlist
Fréttamynd

Órafmögnuð Björk

Björk Guðmundsdóttir heldur órafmagnaða tónleika í Langholtskirkju næstkomandi þriðjudagskvöld. Henni til halds og trausts verða Wonderbrass og Jónas Sen sem hafa staðið þétt við bakið á söngkonunni á nýafstaðinni tónleikaferð um heiminn. Á tónleikunum verða flutt lög sem hafa verið uppistaðan í tónleikadagskrá Bjarkar, þar á meðal lög af síðustu plötu hennar, Volta.

Tónlist
Fréttamynd

Heimstúr Madonnu hefst á morgun

Söngkonan Madonna undirbýr sig þessa dagana undir tónleikaferð um heiminn sem hefst á morgun á Þúsaldarvellinum í Cardiff. Madonna sem varð fimmtug fyrir rúmri viku mun koma fram á 16 tónleikum í Evrópu, þar á meðal á Wembley í London, áður en hún færir sig yfir til Norður- og Suður-Ameríku.

Tónlist
Fréttamynd

Sign fékk gullplötu fyrir lag á safnplötu Kerrang!

Árleg verðlaunahátíð Kerrang! tímaritsins fór fram í gærkvöldi. Á meðal viðurkenninga sem voru veittar var gullplata til þeirra hljómsveita sem tóku þátt í að heiðra Iron Maiden með ábreiðu en safndiskur var gefinn út með tímaritinu fyrr í sumar. Tímaritið seldist í yfir hundrað þúsund eintökum þá vikuna en venjuleg sala er í kringum fjörtíu þúsund eintök. Sign voru sérstakir gestir ritstjóra Kerrang! Paul Brannigan en hann hefur verið einlægur stuðningsmaður þeirra um langt skeið.

Tónlist
Fréttamynd

Raddaður ævintýraheimur

Seattle-sveitin Fleet Foxes er á meðal heitustu nýliðanna í poppheiminum á árinu 2008, en fyrsta platan hennar samnefnd sveitinni hefur verið að fá hástemmda lofdóma beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu.

Tónlist
Fréttamynd

Tónlistarhátíð fyrir unglinga

Tónlistarhátíðin Iceland Music Festival 2008 verður haldin í fyrsta sinn á Tunglinu um miðjan september. Á meðal þeirra sem koma fram eru Ultra Mega Technobandið Stefán, Sometime, Sesar A, Kicks!, Dabbi T, The Nellies og Dagstraumur.

Tónlist
Fréttamynd

Samdi lagið Þú og ég fyrir gamla vinnuveitandann

KK er með mörg járn í eldinum um þessar mundir. Hann á nýtt lag í auglýsingu fyrir SS og fyrsta plata hans í sex ár með eigin efni kemur út í október. Auk þess kennir hann á böskaranámskeiði á Skagaströnd um næstu helgi.

Tónlist
Fréttamynd

Klúbbakvöld

Trevor Loveys, einn þekktra plötusnúða hjá Ministry of Sound, klúbbnum og plötufyrirtækinu, spilar í Sjallanum, Akureyri á föstudagskvöld og á Tunglinu á laugardagskvöld. Hann er þekktastur fyrir að hafa verið hluti af tvíeykinu Switch sem hefur endurhljóðblandað fjölda laga, m.a. eftir Chemical Brothers og Róisin Murphy.

Tónlist
Fréttamynd

Dönnuð stemming

Bogomil Font og Milljónamæringarnir spila á miðnæturtónleikum í Þrastalundi um verslunarmannahelgina, 1. og 2. ágúst. Boðið verður upp á karnivalstemningu í lundinum, sprell yfir daginn fyrir fjölskyldur, hlaðborð að hætti hússins og dansskemmtun fyrir fullorðna.

Tónlist
Fréttamynd

Þetta er bara músik

Ómar Guðjónsson, yngri bróðir saxófónleikarans Óskars, hefur gefið út aðra plötuna sína, Fram af. „Á fyrstu plötunni var saxófónninn hjá Óskari í forgrunni en nú hef ég losnað við hækjuna og gítarinn er orðinn aðalröddin," segir Ómar.

Tónlist
Fréttamynd

Fagna plötu

Útgáfu plötunnar Jawbreaker með Tommygun Preachers verður fagnað á Organ í kvöld. „Það verður örugglega þrusustemming. Fólk er að hita upp fyrir verslunarmannahelgina og auðvitað afmælishátíð Organ. Við erum loksins að koma aftur og ryðjast inn í bæinn, en við erum búnir að vera að spila mikið í Keflavík," segir Smári, gítarleikari Tommygun Preachers.

Tónlist
Fréttamynd

Vel heppnað hliðarspor

Á morgun hefur að geyma nýjar útgáfur Megasar og hljómsveitarinnar Senuþjófanna á sextán gömlum lögum, tólf þeirra eru íslensk, en fjögur erlend við íslenska texta. Lagavalið er fjölbreytt, en lögin eiga það sameiginlegt að Megas ólst upp með þeim og hefur á þeim dálæti. Þarna eru m.a. lög við texta eftir Hannes Hafstein og Halldór Laxness og sígild dægurlög, flest frá sjötta áratugnum. Eins og við er að búast eiga þessi lög það líka flest sameiginlegt að textarnir eru góðir.

Tónlist
Fréttamynd

Ungar hæfileikakonur í Hömrum

Tónleikar undir yfirskriftinni Seiðandi sumarhljómar fara fram í tónleikasalnum Hömrum á Ísafirði annað kvöld kl. 20. Þar koma fram þær Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir fiðluleikari og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari og leika verk eftir Mozart, Ravel og Sarasate.

Tónlist
Fréttamynd

Hætt við tónleika Nightwish

Snorri H. Guðmundsson þurfti að hætta við tónleika með þungarokkssveitinni Nightwish vegna ástands í efnahagslífinu. Finnska þungarokksveitin Nightwish mun ekki spila í Laugardalshöll þann 25. október eins og ætlað var. Á heimasíðu hljómsveitarinnar kemur fram að tónleikunum hafi „verið aflýst af tónleikahaldara, sem dró bókunina til baka í flýti áður en forsala hófst“.

Tónlist
Fréttamynd

Miklu kraftmeiri en Nylon

Stúlknasveitin Kári? gæti orðið næsta stórmál í íslenska poppinu. Sveitina skipa fjórar stúlkur fæddar 1993, þær Silvía, Auður, Lilja og Margrét. Tvær koma úr Árbænum, ein úr Grafarvogi og ein frá Norðlingaholti. Þetta er því ekta úthverfaband.

Tónlist
Fréttamynd

Djasshátíð haldin í ágúst

Nítjánda Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin í borginni dagana 26.-30. ágúst. Að þessu sinni verða á þriðja tug tónleika á þeim fimm dögum sem djassinn dunar í borginni og koma nálægt eitt hundrað listamenn að hátíðinni að þessu sinni.

Tónlist
Fréttamynd

Tónlist fyrir orgel og horn á hádegistónleikum

Á hádegistónleikunum í Dómkirkjunni í Reykjavík á morgun koma fram hornleikarinn Svafa Þórhallsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgelleikari. Tónleikarnir, sem hefjast kl. 12.15, eru hluti af röð tónleika sem haldnir eru í samvinnu Félags íslenskra organleikara og Alþjóðlegs orgelsumars.

Tónlist
Fréttamynd

Abba selst og selst

Diskur með sönglögum Benny Anderson og Björn Ulveaus úr kvikmyndinni Mamma mia! þaut upp Billboard-listann í vikunni sem leið og kom inn á listann í sjöunda sæti en myndin var frumsýnd vestanhafs hinn 11. júlí. Hefur þessum herrum ekki tekist eins vel í sölu áður. Abba Gold er líka stokkin upp listann en hún var á sínum tíma í tvö ár á listanum.

Tónlist
Fréttamynd

Húsband spilar eftir fíling

Vegfarendur um Bankastrætið hafa eflaust orðið varir við djasstónlistina sem þar hefur ómað reglulega í sumar. Að baki henni er óeiginlegt húsband skemmtistaðarins Priksins.

Tónlist
Fréttamynd

Ræða þróun tónlistarheimsins

Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, IMX, stendur fyrir ráðstefnu 15.-16. október næstkomandi. Ber hún yfirskriftina You are in control, eða Þú ert við stjórnvölinn og verður haldin á Hótel sögu.

Tónlist
Fréttamynd

Tónlistarfólk í stjörnusápu

Amy Winehouse, Razorlight og Bloc Party leika í nýrri sjónvarpsseríu á netinu. Þá má sjá Duffy, Girls Aloud og The Feeling í aukahlutverkum. Sápan heitir 'The Secret World Of Sam King' og verður aðeins aðgengileg þeim sem nota Bebo-vefsvæðið.

Tónlist
Fréttamynd

Nóg að gera hjá Bang Gang

Hljómsveitin Bang Gang verður mikið á ferð og flugi næstu daga. Í gær var hún stödd í Frakklandi til að spila á rokktónlistarhátíðinni Plage de Rock sem haldin er rétt fyrir utan St. Tropez. Bang Gang heldur svo til Parísar í dag þar sem hljómsveitin verður með útgáfutónleika og að þeim loknum er ferðinni heitið alla leið austur á land þar sem hljómsveitin spilar á LungA á Seyðisfirði.

Tónlist
Fréttamynd

Fá Færeyinga til að dansa

Íslenskir plötusnúðar spila á tónlistarhátíð í Færeyjum um helgina. Færeyska tónlistarhátíðin G-festival verður haldin nú um helgina. Í ár mun hátíðin bera yfirskriftina G-mini og verður hún eitthvað minni í sniðum en fyrri hátíðir.

Tónlist
Fréttamynd

Ennþá óháð, ennþá fersk

Um síðustu helgi blés bandaríska plötuútgáfan Sub Pop til mikillar tónlistarveislu í Redmond í nágrenni Seattle til að fagna tuttugu ára starfsafmæli útgáfunnar. Trausti Júlíusson rifjaði upp sögu þessarar merku útgáfu sem m.a. kom Nirvana á framfæri og sem hefur í gegn um öll tuttugu árin haldið áfram að gefa út frábæra tónlist.

Lífið